Vill færa flokkinn frá hægri
Eftir Þóru Kristínu Ásgeirsdóttur Mbl sjónvarpi. tka@mbl.isSigmundur Davíð Gunnlaugsson nýr formaður Framsóknarflokksins ætlar að færa Framsóknarflokkinn frá hægri og aftur inn á miðjuna. Þá segist hann ætla að kappkosta að leita eftir ráðleggingum bestu fáanlegu sérfræðinga í hverju máli og einskorða sig ekki við flokksmenn Framsóknarflokksins. Hann segir að núverandi stjórnvöld hafi orðið ber að því að halda hlutunum of mikið í lokuðum hópi en ekki leitað til þeirra sem best væru til þess fallnir að ráðleggja.
Sigmundur hefur talað fyrir athyglisverðum hugmyndum sem falla að því að vernda gamla götumynd miðbæjarins og byggja upp í anda þess gamla en færa þó notagildi húsanna nær nútímanum til að mynda með því að nýta baklóðirnar. Þetta gerir það að verkum að margir horfa til hans í umhverfismálum.
Sigmundur segir að mörgum Framsóknarmönnum þyki leiðinlegt hvernig ímynd flokksins hafi breyst í umhverfismálum. Flokkurinn hafi alltaf verið flokkur umhverfisverndarsinna og það verði aukin áhersla á slík mál ekki síst landgræðslu og skógrækt. Hvað varði iðnað sé þó ljóst að það þurfi að skapa sem flest störf í því ástandi sem nú sé. Það verði hinsvegar að gerast í sem bestir sátt við náttúruna. Hann útilokar þó ekki að hann muni tala fyrir því að hraða umhverfismatsferlinu til að greiða fyrir framkvæmdum til atvinnusköpunar.
Framsóknarflokkurinn samþykkti að setja það sem stefnu sína að farið yrði í aðildarviðræður við Evrópusambandið. Flokkurinn setti þó ýmsa íslenska hagsmuni sem skilyrði fyrir aðildarviðræðum en venjulega nálgunin er sú að setja skilyrði í viðræðum. Sigmundur Davíð sem hefur gagnrýnt undanlátssemi íslenskra stjórnvalda við Evrópusambandið, segist telja að flokkurinn þurfi að einbeita sér að þvi að vera heill og sameinaður. Hann segir að niðurstaða flokksþingsins í Evrópumálunum hafi að því leytinu til verið ákaflega farsæl. Evrópusinnar og Evrópuandstæðingar hafi getað sameinast um þessa niðurstöðu. Í henni sé fallist á viðræður en einnig staðið mjög fast á því að ekki verði gefið eftir hvað varði hagsmuni Íslands.
Sigmundur Davíð segir að fyrst og fremst þurfi að vinna að því að leysa brýnan efnahagsvanda sem birtist í skuldastöðu heimila og fyrirtækja. Eftir það sé hægt að fara að hugleiða Evrópumálin. Það sé engin eftirspurn í Evrópusambandinu eftir gjaldþrota þjóð.
Bloggað um fréttina
-
Júlíus Björnsson Hægri og Vinstri -
Sigurður Sigurðsson Var ekki Guðni búinn að færa hann til vinstri ??? -
Guðmundur Auðunsson Framsókn gerir upp við fortíðina -
Guðjón Sigþór Jensson Nýju fötin keisarans? -
Ómar Ragnarsson Ekkert nýtt í umhverfismálum. -
Jóhannes Ragnarsson Óheiðarleg og óskammfeilin yfirlýsing nýrrar fígúru í útstillingarglugganum -
S i g u r ð u r Sigurðarson Gott að fá hægri vænginn aftur -
-
Eygló Þóra Harðardóttir Að svara kallinu -
Stefán Friðrik Stefánsson Nýtt upphaf í Framsókn frá miðju og vinstri -
Sigurbjörg Enn einn erfðaprinsinn -
percy B. Stefánsson Endurnýjun í forustu allra flokka? -
Vilhjálmur Árnason Heiti grauturinn. -
Sigurður Hrellir Græni karlinn? -
Ólafur Ingólfsson Dæmigerður framsóknarmaður -
Hallur Magnússon #9541 Samfylking og Sjálfstæðisflokkur í sjálfheldu
Innlent »
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 8. apríl 2009, Innlent Greiðsluaðlögun stórhættuleg ein og sér
- Mánudagur, 30. mars 2009, Innlent Þolinmæði framsóknarmanna þrotin
- Fimmtudagur, 23. apríl 2009, Innlent Sigmundur Davíð spáir öðru hruni
- Þriðjudagur, 27. janúar 2009, Innlent Skýrt umboð aðalatriðið
- Föstudagur, 10. júlí 2009, Innlent Sigmundur Davíð: Trúverðugleikann vantar
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli




































