Endurskoðar fjárnámsaðgerðir
Ólafur Helgi Kjartansson sýslumaður í Árnessýslu.
Sýslumaðurinn á Selfossi hefur tilkynnt dómsmálaráðuneytinu, að hér eftir sem hingað til muni verða beitt vægustu aðferðum við innheimtu gjalda. Hefur ráðuneytið eftir sýslumanninum, að yfirlýsing sem hann gaf í gær um fyrirhugaðar innheimtuaðgerðir hafi ekk verið viðeigandi.
Ólafur Helgi Kjartansson, sýslumaður á Selfossi, sagði við fjölmiðla í gær að hann ætlaði að gefa fyrirmæli til lögreglu um að handtaka 370 einstaklinga í Árnessýslu, þar sem þeir hefðu ekki skilað sér í fjárnám hjá embætti hans.
Dómsmálaráðuneytið segir í tilkynningu, sem barst nú um hádegið, að Ólafur Helgi hafi tekið ákvörðun sína án samráðs við dómsmálaráðuneyti. Í tilefni hennar vilji dómsmálaráðherra taka fram, að hann telji ekki skynsamlegt af sýslumanni að kynna ákvörðun sína með þeim hætti, sem hann hafi gert í fjölmiðlum. Þá sé það ekki í samræmi við ákvarðanir ríkisstjórnarinnar, að nú sé gripið til óvenjulegra og harkalegra innheimtuaðgerða af hálfu sýslumanns. Í því efni beri að gæta reglna stjórnsýsluréttarins um jafnræði og meðalhóf í ljósi aðstæðna í þjóðfélaginu.
„Hefur dómsmálaráðuneytið beint þeim tilmælum til sýslumannsins á Selfossi, að hann hafi ofangreind meginsjónarmið í huga. Sýslumaðurinn hefur tilkynnt ráðuneytinu, að hér eftir sem hingað til muni verða beitt vægustu aðferðum við innheimtu gjalda auk þess sem sýslumaður segir, að yfirlýsing sín hafi ekki verið viðeigandi í hinu erfiða umróti í þjóðfélaginu um þessar mundir.
Sýslumaður hefur jafnframt skýrt ráðuneytinu frá því, að hann muni taka til endurskoðunar vinnubrögð í þeim tilvikum að ítrekuðum kvaðningum hafi ekki verið sinnt og hvetji alla hlutaðeigandi til þess að hafa samband vegna sinna mála þannig að þeim verði lokið með farsælum hætti. En slíkt sé allra hagur," segir í tilkynningu dómsmálaráðuneytisins.
Ólafur Helgi sagði við Morgunblaðið í gær, að skuldirnar að baki fjárnámsbeiðnunum væru af öllum toga: viðskiptaskuldir og skuldir vegna kreditkorta og bankalána. Þá væru upphæðirnar líka mjög misháar. Í sumum tilfellum hafi skuldin upphaflega verið nokkur hundruð krónur en um verulega háar upphæðir sé að ræða í öðrum tilfellum.
Bloggað um fréttina
-
Ásdís Sigurðardóttir Verður þetta svona "yfirlýsingadagur" ? þá hef ég varla undan ... -
Bergur Thorberg Ruby Tuesday á Selfossi -
Ófeigur Guðmundsson Sýslumaðurinn á Selfossi -
Guðfinna Elsa Haraldsdóttir Er Ólafur Helgi alveg að missa sig -
Ingólfur H Þorleifsson Athyglissýki á hæsta stigi. -
Benedikt V. Warén Er hann ekki bara eins og Davíð...., -
Magnús Helgi Björgvinsson Gott að þetta mál er leyst en.....! -
Bjarni Kjartansson Ólafur til bjargar skuldurum. Skilja menn EKKERT?????????????? -
Guðrún María Óskarsdóttir. Þátt ráðherra í málinu ber að þakka. -
Jón Snæbjörnsson Tekjur sýslumanns í svona aðgerðum / innheimtum -
Hermann Kristjánsson Ofbeldisfullur lúðrasveitarstjóri -
Hólmdís Hjartardóttir Snjall sýslumaður. -
Haraldur Bjarnason Meira að segja Bangsa dáta blöskraði -
Þórbergur Torfason Snjöll lausn. -
Pálmi Freyr Óskarsson Ég legg til að hann.................. -
Sigríður Laufey Einarsdóttir "Ljósið í kreppunni" -
Sigurbjörn Svavarsson Fjölmiðlasjúkur sýslumaður -
Haraldur Davíðsson Hvaða hvaða, enn verð ég að hrósa BB, þetta er ...
Innlent »
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 21. janúar 2009, Innlent Ekki sýslumanna að gefa skuldurum frest
- Mánudagur, 19. janúar 2009, Innlent Hátt í 400 handtökuskipanir
- Laugardagur, 21. mars 2009, Innlent Sýknaður af ákæru um að hafa reykspólað á Selfossi
- Þriðjudagur, 20. janúar 2009, Innlent 500 mál enda hjá lögreglu
- Laugardagur, 6. desember 2008, Innlent Bústaðir á tombóluverði
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli




































