Tilraun undirbúin með rafrænar kosningar
Kosið með gamla laginu. Rafrænar sveitastjórnar- eða alþingiskosningar hafa ekki farið fram hérlendis mbl.is/Eyþór
Unnið er nú að undirbúningi tilraunar með rafrænar
sveitastjórnarkosningar árið 2010. Tilraunin yrði bundin við tvö sveitarfélög.
Fulltrúar samgönguráðuneytisins, Sambands íslenskra sveitarfélaga og dóms- og
kirkjumálaráðuneytisins skipa starfshóp sem undirbýr tilraunina.
„Rafrænar sveitastjórnar- eða alþingiskosningar hafa ekki farið fram hérlendis en við könnun á afstöðu íbúa til Reykjavíkurflugvallar og skipulagsmála vegna álversins í Straumsvík var til dæmis unnt að kjósa rafrænt. Rafrænar kosningar hafa farið fram erlendis og hefur starfshópurinn aflað sér upplýsinga um tilhögun og reynslu meðal annars í Eistlandi og Kanada.
Geir Ragnarsson, verkfræðingur í samgönguráðuneytinu og verkefnisstjóri starfshópsins um rafrænar kosningar, segir að líta þurfi í mörg horn við tilraun sem þessa. Undirbúa þurfi lagabreytingar til að heimila rafræna kjörskrá og rafræna kosningu en gera má ráð fyrir að unnt verði að viðhafa bæði hefðbundna aðferð og hina rafrænu í tilrauninni sem stendur fyrir dyrum.
Tilraunin tekur því bæði til formreglna um rafræna kjörskrá sem kæmi í stað bóka og þess að greiða atkvæði rafrænt. Geir segir að mikilvægt sé í því sambandi að útiloka að hægt sé að tengja kjósanda við atkvæði hans. Mikilvægt sé að óháður aðili votti þann búnað sem notaður verður við kosningarnar þannig að tryggt sé að hann uppfylli þær öryggiskröfur sem gera verður til rafrænna kosninga.
Starfshópurinn hóf nýlega störf og er stefnt að því að á
vormánuðum verði ljóst hvernig málinu vindur fram. Gera verði ráð fyrir góðum
tíma til að kynna hugmyndina nánar og leggja fram tillögur um lagabreytingar en
áætlað er að tilraunin fari fram í tveimur sveitarfélögum við næstu
sveitarstjórnarkosningar vorið 2010,“ segir á vef samgönguráðuneytisins.
Bloggað um fréttina
-
Guðmundur Ásgeirsson Rafrænar kosningar... Varúð! -
Arnþór Helgason Aðgengi allra verði tryggt
Innlent »
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 9. maí 2008, Innlent Kosið rafrænt í þremur sveitarfélögum
- Fimmtudagur, 14. maí 2009, Innlent Sveitarstjórnarmenn vilja persónukjör
- Þriðjudagur, 15. september 2009, Innlent Ríkið greiði viðbótarkostnað vegna persónukjörs
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli




































