„Leiðtogar stjórnarflokkanna að einangrast"

Mótmælendur við Alþinghúsið. stækka

Mótmælendur við Alþinghúsið. mbl.is/Júlíus

Stefanía Óskarsdóttir stjórnmálafræðingur segist telja að stjórnarslit séuu það besta sem geti komið fyrir Sjálfstæðisflokkinn eins og málum sé nú háttað. Segir hún hann eins og aðra flokka þurfa að fara í gegn um ákveðna eldskírn í kjölfar atburða undanfarinna mánaða. Þá segir hún rök forsætisráðherra gegn því að boðað verði til kosninga ekki sannfærandi.

„Þrátt fyrir yfirlýsingar Geirs H. Haarde forsætisráðherra um góða samstöðu hans og formanns Samfylkingarinnar um að halda núverandi stjórnarsamstafi áfram virðist það blasa við út á við að þetta stjórnarsamstarf er dautt,” sagði Stefanía er blaðamaður mbl.is ræddi við hana í dag. „Það heldur engin ríkisstjórn af því að tveir einstaklingar eru búnir að ákveða það.” 

Stefanía segist telja að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, sé að einangrast í afstöðu sinni til stjórnarsamstarfsins og að þó að þingmenn Sjálfstæðisflokksins fari ekki eins hátt með efasemdir sínar skynji almenningur vaxandi óróa meðal þeirra.

„Verði boðað til kosninga fyrir landsfund Sjálfstæðisflokksins mun það gefa flokksmönnum tækifæri til að endurmeta stefnu sína og forystu. Það væri því ákveðin opnun fyrir þann fund. Ekki síst þar sem stór hópur sjálfstæðismanna er trygglynt fólk sem leggur mikið upp úr því að standa með sínum forystumönnum. Þetta er fólk sem mun aldrei standa upp gegn sitjandi  formanni, sem einnig er forsætisráðherra í ríkisstjórn.”

Stefanía segir það einnig kvíðvænlegt verði landsfundur Sjálfstæðisflokksins haldinn á meðan hávær mótmæli fari fram. Líkt sé í raun þvingun sem muni hamla lýðræðislegum viðræðum.  „Það er ekki hægt að bjóða fólki upp á slíkt. Það er ekki hægt að bjóða almenningi upp á fleiri svona kvöld, þegar fólk og heimili eru hreinlega í stórhættu,” segir hún. 

En er það lýðræði að nokkur þúsund manns geti hrakið ríkisstjórn frá völdum?  

„Það er rétt að það eru ekki nema um tvöþúsund manns sem hafa tekið virkan þátt í mótmælunum undanfarna daga og af þeim eru ekki nema nokkrir tugir sem hafi gengið enn lengra,” segir Stefanía. „Almenningur er hins vegar með það á tilfinninguna að það ríki upplausnarástand.  Það þarf að binda enda á það og ef eina leiðin til þess og að koma á friði í samfélaginu, er að boða til kosninga, þá þarf að gera það. Það er ekki hægt að stjórna með lögregluvaldi. Við höfum bara ekki efni á því hvorki fjárhagslega né samfélagslega. Á slíkum tímum þurfum við að standa saman.”

Stefanía segir að geti sitjandi ríkisstjórn ekki náð sambandi við þjóðina og slegið á örvæntingu fólks verði einhverjir aðrir að fá tækifæri til þess. Þá segir hún að kosningabarátta, eins og sér með þeim umræðum sem henni fylgi, geti einnig skilað miklum árangri. Hún geti hjálpað bæði almenningi og stjórnmálamönnum við að skerpa sýn sína og fá yfirsýn yfir hlutina. 

Einnig bendir hún á að erlendir sérfræðingar hafi kallað eftir því að íslenskir  ráðamenn endurnýi umboð sitt til að auka trúverðugleika Íslendinga út á við.    

Rök forsætisráðherra ekki sannfærndi 

Stefanía segir þó vel hugsanlegt að mjög erfitt muni reynast að mynda nýja stjórn að loknu slíku ferli. „Það er ekkert endilega víst að við fáum betri fólk eða betri stjórn en við fáum a.m.k. fólk með endurnýjað umboð,” segir hún.

Þá segist hún ekki telja rök forsætisráðherra gegn því að boðað verði til kosninga sannfærandi. „Það yrði aldrei þannig að landið yrði stjórnlaust. Það yrði alltaf starfandi stjórn, á þeim millibilstímabilum sem kosningar sköpuðu,  jafnvel stjórn hans og Samfylkingarinnar,” segir hún. 

Að lokum segist Stefanía hafa mikla samúð með formanni Samfylkingarinnar, sem sé að berjast við erfið veikindi, á sama tíma og hún sé undir miklu álagi vegna ástandsins í þjóðfélaginu. Það sama eigi við um aðra forystumenn stjórnarinnar. Það séu allir að gera sitt besta undir gríðarlegu álagi. Hún líti hins vegar ekki á það sem uppgjöf að boða til kosninga við slíkar aðstæður, heldur sé það raunsæi.

 „Kosningar eru verkfæri lýðræðisins sem við þurfum að láta reyna á,” segir hún.   
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Kanadadollari. Úr myndasafni.

Segir stuðning við Kanadadollar

Í gær, 22:15 „Þetta er rætt í alvöru á Íslandi. Efnahagsráðherrann fór til Kanada fyrir sex vikum og fundaði með kanadíska seðlabankanum og með þingmönnum og að ég tel fjármálaráðuneytinu líka. Hann kom síðan aftur til Íslands og sagði opinberlega að þetta væri möguleiki sem væri ekki hægt að útiloka.“ Meira »

Brotist inn meðan íbúar skruppu frá

Í gær, 21:09 Tilkynnt var um innbrot í heimahús í Grafarvogi klukkan sjö í kvöld og söknuðu húsráðendur sjónvarps og ýmissa raftækja. Þeir brugðu sér af bæ í rúma klukkustund og þegar þeir komu heim var búið að brjóta rúðu og komust þjófarnir þannig inn. Meira »

Stefnan áframhaldandi lágt gengi

Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður.
Í gær, 20:11 „Það er alveg ljóst mál að þetta kosningaplagg ríkisstjórnarinnar sem kallað hefur verið framkvæmdaáætlun er byggð á þeirri forsendu að gengi íslensku krónunnar haldist álíka veikt og það er í dag,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is. Meira »

Tryggja að allir komist heilir heim

Í gær, 18:59 Haldið verður úti auknu umferðareftirliti í sumar á Vesturlandsvegi, Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut af hálfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra. Meira »

Fundur Háskólalestarinnar fellur niður

Frá Ísafirði. Úr myndasafni.
Í gær, 18:22 Fram kemur í tilkynningu frá Háskólalestinni að fyrirlestur um forsetaframboðið sem fara átti fram á Ísafirði í kvöld klukkan 20:00 falli niður vegna þess að öllu flugi frá Reykjavíkur til Ísafjarðar í dag hafi verið aflýst. Meira »

Meintar falsanir til lögreglunnar

Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 19:39 Tekin var ákvörðun um það í dag af yfirkjörstjórnum í Reykjavík að vísa meintum fölsunum á undirskriftum á meðmælendalistum Ástþórs Magnússonar, forsetaframbjóðanda, til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Gæsluvarðhaldið staðfest

Í gær, 18:29 Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir tveimur karlmönnum sem grunaðir eru um að hafa valdið dauða samfanga síns í fangelsinu á Litla-Hrauni fyrir rúmri viku. Héraðsdómur hafði áður úrskurðað mennina í gæsluvarðhald til 13. júní. Meira »

Húsbíll fauk af vegi

Í gær, 18:09 Húsbíll fauk í Fljótum, skammt frá Ketilási um hádegisbilið í dag. Tvennt var í bílnum og voru þau flutt á heilsugæsluna á Siglufirði til aðhlynningar. Meira »

Ólafur mælist með mest fylgi

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.
Í gær, 18:09 Mikill viðsnúningur hefur orðið í fylgi við forsetaframbjóðendurna Ólaf Ragnar Grímsson og Þóru Arnórsdóttur ef marka niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Capacent Gallup sem greint var frá í fréttum Ríkisútvarpsins. Meira »

Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð

Í gær, 17:49 Talsvert magn af fíkniefnum fannst við húsleit lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í kjallaraíbúð í miðborginni í gær.   Meira »

Yfirheyrslur héldu áfram í dag

Fangelsið á Litla-Hrauni.
Í gær, 18:00 Yfirheyrslur vegna láts fanga á Litla-Hrauni, sem talið er hafa borið að með sviplegum hætti, héldu áfram í dag og var nokkur fjöldi vitna yfirheyrður, þar á meðal fólk sem tengist fangelsinu. Meira »

Bátur fauk á annan bát

Hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í dag.
Í gær, 17:49 Afar hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í allan dag og í morgun fauk bátur á annan bát í Grindavíkurhöfn.  Meira »

Harður árekstur í Engidal

Í gær, 17:42 Harður árekstur tveggja fólksbíla varð í Engidal í Hafnarfirði, til móts við hús Actavis, skömmu eftir klukkan hálf sex í kvöld. Annar bílinn valt á hliðina við áreksturinn. Meira »

Fylgjast þarf með Krýsuvík

Frá Krýsuvík.
Í gær, 17:01 Sprungugos í norðurhluta þess sprungukerfis, sem liggur frá megineldstöðinni í Krýsuvík, geta hugsanlega komið upp í Heiðmörk eða í grennd við Elliðavatn og því er full ástæða til að fylgjast náið með því sem gerist á Krýsuvíkursvæðinu. Meira »

Harma óvæginn fréttaflutning

Í gær, 16:49 Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur leggur ríka áherslu á að mótuð verði vöktunar- og viðbragðsáætlun vegna umhverfismála á svæðinu í grennd við Hellisheiðarvirkjun. Stjórnin harmar jafnframt óvæginn fréttaflutning um tjarnarmyndun í grennd við svæðið. Meira »

33 brotlegir ökumenn myndaðir

Í gær, 17:36 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu myndaði brot 33 ökumanna í Langarima í Reykjavík í dag en fylgst var með ökutækjum sem ekið var í suðurátt að Rósarima. Meira »

Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru

Í gær, 16:51 Fylgi Ólafs Ragnars Grímssonar og Þóru Arnórsdóttur er jafnt samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar MMR sem birtar voru í dag. Samtals sögðust 41,2% ætla að kjósa hvorn forsetaframbjóðandann. Meira »

Farinn frá Landsbankanum

Jens Garðar Helgason
Í gær, 16:12 „Ég tek ekki ákvörðun fyrir aðra, en ég stofnaði í dag reikning í Sparisjóði Norðfjarðar og ætla að flytja öll mín viðskipti frá Landsbankanum.“ Þetta segir Jens Garðar Helgason, formaður bæjarráðs í Fjarðabyggð, í samtali við mbl.is. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Óska eftir Dell 2950 þjóni ódýrt
Óska eftir Dell 2950 netþjóni eða sambærilegu. vinsamlegast sendi upplýsingar á ...
20" barnareiðhjól til sölu
Til sölu 20" Mongoose Rockadille barnareiðhjól. Mjög vel með farið í toppstandi ...
Til sölu 20ha
Til sölu c.a.20 ha lóð í Biskupstungum. Frábær staðsetning bæði fyrir hestafólk ...
Vilt Þu Aukatekjur
1 ár hysing + .com url + website builder = 25000 isk http://www.extrapaid.com/...
 
Breyting á deiliskipulagi á húsavík

Norðurþing Skipulags- og byggingarfullt...
Sýslumaður snæfellinga - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Auglýsing byggðakvóti

Auglýsing vegna úthlutunar byggðakvó...