Góðir gangvegir milli Ögmundar og Össurar

Ögmundur Jónasson. stækka

Ögmundur Jónasson. mbl.is

„Það er rétt að við hittumst, við Össur, til að fara almennt yfir stöðuna og horfurnar framundan,“ sagði Ögmundur Jónasson, formaður þingflokks Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs, um fund hans og Össurar Skarphéðinssonar, iðnaðarráðherra og starfandi utanríkisráðherra, í gær. Ögmundur sagði góða gangvegi milli þeirra Össurar og að ekki megi gera of mikið út úr þessum óformlega fundi.

„Það er öllum ljóst hvernig komið er og það ber öllum skylda til að kanna með hvaða hætti þeir geti lagt eitthvað gott til málanna,“ sagði Ögmundur. Hann sagði jafnframt að viðræður þeirra Össurar hafi ekki verið formlegar, enda ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar enn í Stjórnarráðinu. Ögmundur sagði það vera ríkisstjórnarinnar að stíga næstu skref. „Það er að slíta stjórnarsamstarfinu og boða til kosninga. Það er sú áhersla sem við höfum uppi, Vinstri hreyfingin grænt framboð, að verða við kröfum um kosningar sem allra fyrst. Þá erum við að tala um allra næstu vikur.“

En hver átti frumkvæði að fundinum?

„Það eru ágætir gangvegir milli okkar Össurar Skarphéðinssonar og við ræðumst mjög oft við, þannig að það er rangt að gera of mikið úr þessum fundi,“ sagði Ögmundur.

En var þá tilefnið ekki að ræða mögulega stjórnarmyndun?

„Tilefnið var að ræða þá stöðu sem nú er uppi. Auðvitað höfum við áhuga á að vita hvernig ráðherrar Samfylkingarinnar meta hugsanlega framvindu í þeim efnum,“ sagði Ögmundur. Hann sagði aðstæður nú vera mjög sérstakar og mætti furðu sæta ef menn töluðust ekki við um möguleikana framundan. 

Ögmundur kvaðst ekkert geta sagt um niðurstöðu þessa fundar. „Ég býð þess að sjá hvaða ákvörðun Samfylkingin tekur um framhaldið,“ sagði Ögmundur. En á hann von á ákvörðun hennar fljótlega?

„Mér finnst grasrótin vera að senda mjög skýr skilaboð. Þessar yfirlýsingar úr Stjórnarráðinu um að það megi ekki skapa upplausnarástand í samfélaginu með kosningum eru byrjaðar að hljóma hálf undarlega fyrir þá sem horfa á það sem er raunverulega að gerast hér í þjóðfélaginu. Hér er að skapast mjög alvarlegt öngþveiti og það er ábyrgðarhluti að bregðast ekki við. Þegar krafan er lýðræði þá skil ég ekki hvað vakir fyrir stjórnvöldum að þverskallast við.“

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Kanadadollari. Úr myndasafni.

Segir stuðning við Kanadadollar

Í gær, 22:15 „Þetta er rætt í alvöru á Íslandi. Efnahagsráðherrann fór til Kanada fyrir sex vikum og fundaði með kanadíska seðlabankanum og með þingmönnum og að ég tel fjármálaráðuneytinu líka. Hann kom síðan aftur til Íslands og sagði opinberlega að þetta væri möguleiki sem væri ekki hægt að útiloka.“ Meira »

Brotist inn meðan íbúar skruppu frá

Í gær, 21:09 Tilkynnt var um innbrot í heimahús í Grafarvogi klukkan sjö í kvöld og söknuðu húsráðendur sjónvarps og ýmissa raftækja. Þeir brugðu sér af bæ í rúma klukkustund og þegar þeir komu heim var búið að brjóta rúðu og komust þjófarnir þannig inn. Meira »

Stefnan áframhaldandi lágt gengi

Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður.
Í gær, 20:11 „Það er alveg ljóst mál að þetta kosningaplagg ríkisstjórnarinnar sem kallað hefur verið framkvæmdaáætlun er byggð á þeirri forsendu að gengi íslensku krónunnar haldist álíka veikt og það er í dag,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is. Meira »

Tryggja að allir komist heilir heim

Í gær, 18:59 Haldið verður úti auknu umferðareftirliti í sumar á Vesturlandsvegi, Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut af hálfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra. Meira »

Fundur Háskólalestarinnar fellur niður

Frá Ísafirði. Úr myndasafni.
Í gær, 18:22 Fram kemur í tilkynningu frá Háskólalestinni að fyrirlestur um forsetaframboðið sem fara átti fram á Ísafirði í kvöld klukkan 20:00 falli niður vegna þess að öllu flugi frá Reykjavíkur til Ísafjarðar í dag hafi verið aflýst. Meira »

Meintar falsanir til lögreglunnar

Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 19:39 Tekin var ákvörðun um það í dag af yfirkjörstjórnum í Reykjavík að vísa meintum fölsunum á undirskriftum á meðmælendalistum Ástþórs Magnússonar, forsetaframbjóðanda, til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Gæsluvarðhaldið staðfest

Í gær, 18:29 Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir tveimur karlmönnum sem grunaðir eru um að hafa valdið dauða samfanga síns í fangelsinu á Litla-Hrauni fyrir rúmri viku. Héraðsdómur hafði áður úrskurðað mennina í gæsluvarðhald til 13. júní. Meira »

Húsbíll fauk af vegi

Í gær, 18:09 Húsbíll fauk í Fljótum, skammt frá Ketilási um hádegisbilið í dag. Tvennt var í bílnum og voru þau flutt á heilsugæsluna á Siglufirði til aðhlynningar. Meira »

Ólafur mælist með mest fylgi

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.
Í gær, 18:09 Mikill viðsnúningur hefur orðið í fylgi við forsetaframbjóðendurna Ólaf Ragnar Grímsson og Þóru Arnórsdóttur ef marka niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Capacent Gallup sem greint var frá í fréttum Ríkisútvarpsins. Meira »

Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð

Í gær, 17:49 Talsvert magn af fíkniefnum fannst við húsleit lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í kjallaraíbúð í miðborginni í gær.   Meira »

Yfirheyrslur héldu áfram í dag

Fangelsið á Litla-Hrauni.
Í gær, 18:00 Yfirheyrslur vegna láts fanga á Litla-Hrauni, sem talið er hafa borið að með sviplegum hætti, héldu áfram í dag og var nokkur fjöldi vitna yfirheyrður, þar á meðal fólk sem tengist fangelsinu. Meira »

Bátur fauk á annan bát

Hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í dag.
Í gær, 17:49 Afar hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í allan dag og í morgun fauk bátur á annan bát í Grindavíkurhöfn.  Meira »

Harður árekstur í Engidal

Í gær, 17:42 Harður árekstur tveggja fólksbíla varð í Engidal í Hafnarfirði, til móts við hús Actavis, skömmu eftir klukkan hálf sex í kvöld. Annar bílinn valt á hliðina við áreksturinn. Meira »

Fylgjast þarf með Krýsuvík

Frá Krýsuvík.
Í gær, 17:01 Sprungugos í norðurhluta þess sprungukerfis, sem liggur frá megineldstöðinni í Krýsuvík, geta hugsanlega komið upp í Heiðmörk eða í grennd við Elliðavatn og því er full ástæða til að fylgjast náið með því sem gerist á Krýsuvíkursvæðinu. Meira »

Harma óvæginn fréttaflutning

Í gær, 16:49 Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur leggur ríka áherslu á að mótuð verði vöktunar- og viðbragðsáætlun vegna umhverfismála á svæðinu í grennd við Hellisheiðarvirkjun. Stjórnin harmar jafnframt óvæginn fréttaflutning um tjarnarmyndun í grennd við svæðið. Meira »

33 brotlegir ökumenn myndaðir

Í gær, 17:36 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu myndaði brot 33 ökumanna í Langarima í Reykjavík í dag en fylgst var með ökutækjum sem ekið var í suðurátt að Rósarima. Meira »

Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru

Í gær, 16:51 Fylgi Ólafs Ragnars Grímssonar og Þóru Arnórsdóttur er jafnt samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar MMR sem birtar voru í dag. Samtals sögðust 41,2% ætla að kjósa hvorn forsetaframbjóðandann. Meira »

Farinn frá Landsbankanum

Jens Garðar Helgason
Í gær, 16:12 „Ég tek ekki ákvörðun fyrir aðra, en ég stofnaði í dag reikning í Sparisjóði Norðfjarðar og ætla að flytja öll mín viðskipti frá Landsbankanum.“ Þetta segir Jens Garðar Helgason, formaður bæjarráðs í Fjarðabyggð, í samtali við mbl.is. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Hermannabuxur
Hermannabuxur til sölu. Upplýsingar í síma: 8935005...
Hyundai Trajet 2002
Hyundai Trajet 2002. Ekinn 174þ. Heillegur bíll. Nýleg tímareim, nýtt í bremsum,...
TÖLVUÞJÓNUSTA
Tölvuþjónusta Alhliða tölvuviðgerðir; Stýrikerfi...
Leiðiskrossar til sölu
Mjög fallegir leiðiskrossar til sölu galvanseraðir og pólýhúðaðir. Upplýsingar í...
 
Trjáplöntusala bjarkarholti mosfellsbæ

Trjáplöntusala Bjarkarholti 1, Mosfellsb...
Aðalfundur alliance

Aðalfundur 2012 Aðalfundur Alliance...
Kynning skipulagsmála í rangárþingi eystra

Kynning skipulagstillöguí Rangárþin...
Breyting á deiliskipulagi á húsavík

Norðurþing Skipulags- og byggingarfullt...