Fréttaskýring: Stjórnarsamstarfið hangir á bláþræði
Eftir Magnús Halldórsson magnush@mbl.is
Þrátt fyrir að slagorð mótmælenda, „vanhæf ríkisstjórn“, hafi hljómað ótt og títt í eyrum stjórnarþingmanna hafa sjálfstæðismenn ekki hug á því að slíta stjórnarsamstarfinu. Vilji til þess er hins vegar mikill innan raða Samfylkingarinnar og hefur farið vaxandi síðustu tvo daga, eftir að mótmæli við Austurvöll og fyrir framan stjórnarráðið tóku að harðna. Það mátti heyra það á þingmönnum sem Morgunblaðið ræddi við í gærkvöldi að þau miklu mótmæli sem staðið hafa undanfarna tvo daga, hafa virkilega hreyft við þingmönnum. Þeir „skynja betur reiði fólks“, sagði einn stjórnarþingmanna.
Mikil mótmæli
Þunginn í mótmælunum náði hámarki um miðjan dag í gær þegar stór hópur fólks, um þúsund manns, safnaðist saman fyrir framan stjórnarráðið og mótmælti kröftuglega. Eftir að Geir H. Haarde forsætisráðherra settist upp í bíl sinn gerðu mótmælendur harða hríð að ráðherra, grýttu bíl hans og hrópuðu að honum. „Mér brá við þetta, og þetta var ekki skemmtileg reynsla,“ sagði Geir í samtali við blaðamenn í Valhöll um atvikið þegar fundur þingflokksins stóð yfir seinni partinn í gær.Á þeim fundi ræddu þingmenn flokksins um stöðu landsmála, vaxandi ólgu meðal almennings og mál sem unnið er að á vegum ríkisstjórnarinnar vegna efnahagshrunsins. Geir hafði þá þegar rætt við Ingibjörgu Sólrúnu, formann Samfylkingarinnar, sem fullvissaði hann um að samstarfið væri ekki í hættu.
Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins lýstu þingmenn Sjálfstæðisflokksins óánægju sinni með „ístöðuleysi“ þingmanna Samfylkingarinnar. Voru margir óánægðir með að ríkisstjórnarsamstarfinu væri ógnað á viðkvæmasta tíma fyrir stjórnvöld, þegar verið væri að reyna að bjarga fyrirtækjum frá gjaldþroti.
Samstaða aðalatriðið
Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins voru margir þingmanna Sjálfstæðisflokksins á því að krafan um að kosningar færu fram síðar á þessu ári væri ekki endilega ósanngjörn. Hins vegar skipti miklu máli að stjórnarflokkarnir sýndu samstöðu.Á þingflokksfundi Samfylkingarinnar, sem fór fram á sama tíma, var annað uppi á teningnum. Þar voru þingmenn sammála um að staða í landsmálum, og einkum sá mikli órói sem mótmælin endurspegla, væri „mikið áhyggjuefni“. Margir þingmenn, ekki færri en tíu að því er einn þingmanna greindi frá, voru á því að kosningar á fyrri hluta þessa árs væru óhjákvæmilegar. Ekki væri hægt að horfa framhjá því að óánægjan meðal almennings væri víðtæk og ekki einskorðuð við eina stjórnmálastefnu frekar en aðra. Almenningur væri einfaldlega búinn að fá nóg af „ástandinu“ sem hrun bankanna hefði framkallað. Þá höfðu margir einnig áhyggjur af því að staðan ætti eftir að versna enn eftir því sem atvinnuleysi myndi aukast, en því er spáð að það muni ná hámarki á vormánuðum og verða þá um tíu prósent.
Eftir því sem leið á daginn í gær varð þingmönnum Samfylkingarinnar betur og betur ljóst að margir fylgismanna flokksins vildu kosningar sem allra fyrst.
Spennan fyrir landsfund Sjálfstæðisflokksins, sem fram fer í lok mánaðarins, er nú ekki aðeins bundin við niðurstöður fundarins heldu ekki síður hvort ríkisstjórnin „lifir fram að fundinum“ eins og einn viðmælenda komst að orði. Miðað við þá spennu sem magnast hefur upp undanfarna daga er ljóst að stjórnarsamstarfið hangir á bláþræði.





































