Fagna frestun réttarhalda í Guantanamó

Frá fangabúðunum við Guantanamó flóa á Kúbu stækka

Frá fangabúðunum við Guantanamó flóa á Kúbu Reuters

Amnesty International fagnar ákvörðun Barack Obama um að fresta öllum réttarhöldum sem fyrirhuguð voru fyrir herdómstól í Guantanamó. Í tilkynningu Amnesty segir að samtökin bindi miklar vonir við að þessi fyrstu skref forsetans við stjórnvölin gefi vísbendingar um fyrirætlun hinnar nýju ríkisstjórnar að hverfa frá öllum ólögmætum aðgerðum sem fráfarandi stjórn hefur beitt sér fyrir.

Amnesty International lýsti því yfir á þriðjudaginn síðastliðinn að þessi fyrstu skref nýrrar ríkisstjórnar lofuðu góðu. Þau vonuðust til að þeim yrði fylgt eftir með lokun Guantanamó fangabúðanna og að horfið yrði að fullu frá þessum ólögmætu réttarhöldum.
Amnesty International benti á að Barack Obama hafi undirstrikað í innsetningarræðu sinni að skýr þörf væri á að segja skilið við fortíðina. "Forsetinn kvað valið á milli þjóðaröryggis og hugsjóna byggt á fölskum forsendum, og fagna samtökin því," segir í tilkynningu Amnesty.

Í tilskipun sem gefin var út þann 20. janúar er kveðið á um hundrað og tuttugu daga frest á fyrirhuguðum réttarhöldum í Guantanamó yfir fimm föngum sem sætt hafa leynilegu gæsluvarðhaldi undir eftirliti Leyniþjónustu Bandaríkjanna. Fram kom í fyrrgreindri tilskipun að fresturinn væri nauðsynlegur til að ný ríkisstjórn gæti vandlega farið yfir mál Guantanamó-fanga sem ekki verða leystir úr haldi í bráð, fluttir til síns heima eða til þriðja lands. Þá þurfi að meta hvort lögsókn á hendur þessum föngum eigi rétt á sér og hvaða vettvangur hentar lögsókn af þessu tagi í framtíðinni.

Framkvæmdastjóri Amnesty International, Irene Khan sagði að opinber tilskipun Barack Obama um lokun Guantanamó fangabúðanna væri stórt stökk fram á við og merki um að ný ríkisstjórn væri viljug að hverfa frá misgjörðum fortíðarinnar.

„Með því að láta lokun Guantanamó hafa algeran forgang á fyrstu fjörtíu og átta stundunum í embætti, sendir Barack Obama, þau mikilvægu skilaboð til heimsins, að nú séu Bandaríkin að loka á myrkan kafla í sögu þjóðarinnar."

Amnesty fagnar einnig annarri tilskipun sem Barack Obama hefur undirritað. hún mælir fyrir um að allir starfmenn sem starfa í umboði ríkisins skuli fara að ákvæðum í handbók bandaríska hersins frá árinu 2006, en þau leggja blátt bann við tilteknum aðferðum, ef þær eru notaðar samhliða yfirheyrslu; þar með talið pyndingaraðferðir í vatni (pyndingaraðferð sem líkist drukknun) þvinguð nekt eða kynferðislega niðurlægjandi aðferðir, barsmíðar, rafmagnsstuð, notkun á kuflhettum, öfgar í hitastigi eða sviðsettar líflátsaðgerðir.

Fyrrgreind tilskipun mælir jafnframt fyrir um að Leyniþjónusta Bandaríkjanna loki öllum leynifangelsum, hvar sem þau kunna að vera niðurkominn og leggur bann við starfrækslu slíkra fangelsa í framtíðinni.

PDF-skrá Fréttatilkynning Amnesty
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Kanadadollari. Úr myndasafni.

Segir stuðning við Kanadadollar

Í gær, 22:15 „Þetta er rætt í alvöru á Íslandi. Efnahagsráðherrann fór til Kanada fyrir sex vikum og fundaði með kanadíska seðlabankanum og með þingmönnum og að ég tel fjármálaráðuneytinu líka. Hann kom síðan aftur til Íslands og sagði opinberlega að þetta væri möguleiki sem væri ekki hægt að útiloka.“ Meira »

Brotist inn meðan íbúar skruppu frá

Í gær, 21:09 Tilkynnt var um innbrot í heimahús í Grafarvogi klukkan sjö í kvöld og söknuðu húsráðendur sjónvarps og ýmissa raftækja. Þeir brugðu sér af bæ í rúma klukkustund og þegar þeir komu heim var búið að brjóta rúðu og komust þjófarnir þannig inn. Meira »

Stefnan áframhaldandi lágt gengi

Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður.
Í gær, 20:11 „Það er alveg ljóst mál að þetta kosningaplagg ríkisstjórnarinnar sem kallað hefur verið framkvæmdaáætlun er byggð á þeirri forsendu að gengi íslensku krónunnar haldist álíka veikt og það er í dag,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is. Meira »

Tryggja að allir komist heilir heim

Í gær, 18:59 Haldið verður úti auknu umferðareftirliti í sumar á Vesturlandsvegi, Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut af hálfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra. Meira »

Fundur Háskólalestarinnar fellur niður

Frá Ísafirði. Úr myndasafni.
Í gær, 18:22 Fram kemur í tilkynningu frá Háskólalestinni að fyrirlestur um forsetaframboðið sem fara átti fram á Ísafirði í kvöld klukkan 20:00 falli niður vegna þess að öllu flugi frá Reykjavíkur til Ísafjarðar í dag hafi verið aflýst. Meira »

Meintar falsanir til lögreglunnar

Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 19:39 Tekin var ákvörðun um það í dag af yfirkjörstjórnum í Reykjavík að vísa meintum fölsunum á undirskriftum á meðmælendalistum Ástþórs Magnússonar, forsetaframbjóðanda, til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Gæsluvarðhaldið staðfest

Í gær, 18:29 Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir tveimur karlmönnum sem grunaðir eru um að hafa valdið dauða samfanga síns í fangelsinu á Litla-Hrauni fyrir rúmri viku. Héraðsdómur hafði áður úrskurðað mennina í gæsluvarðhald til 13. júní. Meira »

Húsbíll fauk af vegi

Í gær, 18:09 Húsbíll fauk í Fljótum, skammt frá Ketilási um hádegisbilið í dag. Tvennt var í bílnum og voru þau flutt á heilsugæsluna á Siglufirði til aðhlynningar. Meira »

Ólafur mælist með mest fylgi

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.
Í gær, 18:09 Mikill viðsnúningur hefur orðið í fylgi við forsetaframbjóðendurna Ólaf Ragnar Grímsson og Þóru Arnórsdóttur ef marka niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Capacent Gallup sem greint var frá í fréttum Ríkisútvarpsins. Meira »

Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð

Í gær, 17:49 Talsvert magn af fíkniefnum fannst við húsleit lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í kjallaraíbúð í miðborginni í gær.   Meira »

Yfirheyrslur héldu áfram í dag

Fangelsið á Litla-Hrauni.
Í gær, 18:00 Yfirheyrslur vegna láts fanga á Litla-Hrauni, sem talið er hafa borið að með sviplegum hætti, héldu áfram í dag og var nokkur fjöldi vitna yfirheyrður, þar á meðal fólk sem tengist fangelsinu. Meira »

Bátur fauk á annan bát

Hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í dag.
Í gær, 17:49 Afar hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í allan dag og í morgun fauk bátur á annan bát í Grindavíkurhöfn.  Meira »

Harður árekstur í Engidal

Í gær, 17:42 Harður árekstur tveggja fólksbíla varð í Engidal í Hafnarfirði, til móts við hús Actavis, skömmu eftir klukkan hálf sex í kvöld. Annar bílinn valt á hliðina við áreksturinn. Meira »

Fylgjast þarf með Krýsuvík

Frá Krýsuvík.
Í gær, 17:01 Sprungugos í norðurhluta þess sprungukerfis, sem liggur frá megineldstöðinni í Krýsuvík, geta hugsanlega komið upp í Heiðmörk eða í grennd við Elliðavatn og því er full ástæða til að fylgjast náið með því sem gerist á Krýsuvíkursvæðinu. Meira »

Harma óvæginn fréttaflutning

Í gær, 16:49 Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur leggur ríka áherslu á að mótuð verði vöktunar- og viðbragðsáætlun vegna umhverfismála á svæðinu í grennd við Hellisheiðarvirkjun. Stjórnin harmar jafnframt óvæginn fréttaflutning um tjarnarmyndun í grennd við svæðið. Meira »

33 brotlegir ökumenn myndaðir

Í gær, 17:36 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu myndaði brot 33 ökumanna í Langarima í Reykjavík í dag en fylgst var með ökutækjum sem ekið var í suðurátt að Rósarima. Meira »

Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru

Í gær, 16:51 Fylgi Ólafs Ragnars Grímssonar og Þóru Arnórsdóttur er jafnt samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar MMR sem birtar voru í dag. Samtals sögðust 41,2% ætla að kjósa hvorn forsetaframbjóðandann. Meira »

Farinn frá Landsbankanum

Jens Garðar Helgason
Í gær, 16:12 „Ég tek ekki ákvörðun fyrir aðra, en ég stofnaði í dag reikning í Sparisjóði Norðfjarðar og ætla að flytja öll mín viðskipti frá Landsbankanum.“ Þetta segir Jens Garðar Helgason, formaður bæjarráðs í Fjarðabyggð, í samtali við mbl.is. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Hermannabuxur
Hermannabuxur til sölu. Upplýsingar í síma: 8935005...
Hyundai Trajet 2002
Hyundai Trajet 2002. Ekinn 174þ. Heillegur bíll. Nýleg tímareim, nýtt í bremsum,...
TÖLVUÞJÓNUSTA
Tölvuþjónusta Alhliða tölvuviðgerðir; Stýrikerfi...
Leiðiskrossar til sölu
Mjög fallegir leiðiskrossar til sölu galvanseraðir og pólýhúðaðir. Upplýsingar í...
 
Aðalfundur félags háskólakvenna

Félag háskólakvenna og kvenstúdenta Aðal...
Kynning skipulagsmála í rangárþingi eystra

Kynning skipulagstillöguí Rangárþin...
12834 stofnstígur - reykjavíkurborg

út­boð Reykja­víkur­bor­g Innka­upa­...