Fjórði hver ökumaður ók of hratt

mbl.is/Ómar

Brot 123 ökumanna voru mynduð á Kringlumýrarbraut í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Kringlumýrarbraut í suðurátt, við Sigtún. Á einni klukkustund fyrir hádegi fóru 528 ökutæki þessa akstursleið og því óku margir ökumenn, eða 23%, of hratt eða yfir afskiptahraða, segir á vef lögreglunnar.

„Meðalhraði hinna brotlegu var rúmlega 74 km á klst. en þarna er 60 km hámarkshraði. Tuttugu og einn ók á 80 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 93. 

Þess má geta að skammt undan eru gatnamót Kringlumýrarbrautar, Suðurlandsbrautar og Laugavegs. Umrædd gatnamót eru þau slysahæstu á öllu höfuðborgarsvæðinu, líkt og kynnt var sl. haust en um það má lesa með því að smella hér. Ljóst er að ökumenn sem eiga leið þarna um þurfa að hægja á sér,“ segir á vef lögreglunnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert