Geir með illkynja æxli í vélinda - kosið í maí
Geir H. Haarde, forsætisráðherra, ætlar ekki að sækjast eftir endurkjöri sem formaður Sjálfstæðisflokksins en hann greindist nýverið með illkynja æxli í vélinda. Sjálfstæðisflokkurinn vill að boðað verði til kosninga þann 9. maí næstkomandi. Landsfundi flokksins verður frestað þar til í lok mars.
Þetta kom fram í ávarpi Geirs, sem hann las fyrir fréttamenn í Valhöll en þar stendur yfir miðstjórnarfundur Sjálfstæðisflokksins. Geir gaf ekki kost á spurningum fréttamanna að loknu ávarpi sínu.
Að sögn Geirs greindist hann með lítið æxli í vélinda við reglubundna læknisskoðun fyrir skömmu. Síðastliðinn þriðjudag var honum greint frá því að rannsókn hafi leitt í ljós að æxlið er illkynja. Hafa læknar lagt það til að hann fari í aðgerð til þess að fjarlægja meinið. „Slíka aðgerð er ekki hægt að gera hér á landi og verður hún því framkvæmd erlendis um eða skömmu eftir næstu mánaðamót. Ég er bjartsýnn á að sigrast á þessum veikindum og er sagt að batahorfur séu ágætar og ég geti vænst þess að ná fullri starfsorku á næstu mánuðum hið minnsta. Hins vegar er aldrei hægt að útiloka að mál sem þessi geti þróast til verri vegar þegar til lengri tíma er litið," segir Geir.
Í þeirrar óvissu sem leiðir af eðli þessa meins hefur Geir ákveðið að sækjast ekki eftir endurkjöri sem formaður Sjálfstæðisflokksins á komandi landsfundi. „Ég hef þegar greint samherjum mínum í þingflokki og miðstjórn flokksins sem funda hér í næsta herbergi frá þessu," sagði hann.
„Það gerir mína ákvörðun auðveldari að Sjálfstæðisflokkurinn á úr breiðum hópi frambærilegra forystumanna að velja og fyrir hönd flokksins kvíði ég þess vegna ekki framtíðinni. Ég vil jafnframt greina frá því að þingflokkur Sjálfstæðisflokksins og miðstjórn hans vilja að gengið verði til alþingiskosninga laugardaginn 9. maí næstkomandi. Ég hef þegar rætt við formann samstarfsflokksins um ofangreinda dagsetningu og munum við ræða nánar saman um helgina eftir að hún er komin heim til landsins.
Geir segist leggja áherslu á að ríkisstjórnin vinni áfram ótrauð saman að þeim verkefnum sem hennar bíða fram að kosningum til bjargar heimilum og fyrirtækjum í landinu. „Ég mun leggja allt kapp á það að samstarfið við aðra flokka að undirbúningi að komandi þingkosningum muni ekki raska þeirri efnahagsáætlun sem við vinnum eftir í samstarfi við Alþjóða gjaldeyrissjóðinn. Þar eru miklir hagsmunir í húfi eins og ég hef margítrekað lagt áherslu á.
Í ljósi þess að allar líkur eru á að gengið verði til alþingiskosninga strax í vor þá hefur miðstjórn Sjálfstæðisflokksins ákveðið að fresta landsfundi flokksins og verður hann haldinn dagana 26. til 29. mars næstkomandi. Á þeim landsfundi mun Sjálfstæðisflokkurinn móta stefnu sína fyrir kosningar og velja sér nýjan formann sem mun leiða flokkinn í næstu kosningum," sagði Geir við fréttamenn nú í hádeginu.
|
|
Yfirlýsing Geirs H. Haarde |
Bloggað um fréttina
-
Guðrún Sæmundsdóttir Guð blessi þig og styrki Geir Haarde -
Jenný Anna Baldursdóttir Hvað gerist nú? -
Heiða B. Heiðars Kæri Geir... -
Skaz Já....VÁ -
Haraldur Davíðsson Ég óska Geir góðs bata, og fagna afsögn ríkisstjórnarinnar,en.... -
Jakobína Ingunn Ólafsdóttir Kosningar í maí- Geir á förum -
Þórarinn M Friðgeirsson Góðan bata Geir - hverju ætlar fólk nú að mótmæla ... -
Gísli Birgir Ómarsson Þó svo að ég sé þeim reiður.......... -
Friðrik Hansen Guðmundsson Ögurstund fyrir Íslenska þjóð -
Júlíus Björnsson Geir er Hetja -
Björn Leví Gunnarsson Vald spillir ... heilsu? - Kosningar í prófum -
Viggó H. Viggósson Á "öruggum" hraða? -
Bryndís Eva Vilhjálmsdóttir Vonandi fer þetta vel! -
Kristbjörg Þórisdóttir Kosningar á afmælisdaginn minn? -
Matthias Freyr Matthiasson Vorkenni Geir en..... -
Hörður Hilmarsson Bestu óskir um góðan bata ! -
Nýi Jón Jónsson ehf Ég óska Geir H. Haarde og hans fjölskyldu hlýhugar kveðjur ... -
Ólafur Ingi Hrólfsson Geir Hilmar Haarde -
Bogi Jónsson Krabbamein og mikið álag fer ekki saman -
Gylfi Björgvinsson Sendi Forsætisráðherra Geir H Harde óskir um góðan bata -
Heimir L Fjeldsted Ferlegar fréttir -
Gísli Már Marinósson Sendi Geir og fjölskyldu bestu kveðjur. -
Å s d ì s Sig Nú er ég illa slegin. Geir með krabbamein. -
Sigurbjörn Svavarsson Ósk um góðan bata. -
Ía Jóhannsdóttir Bestu kveðjur héðan frá Prag. -
Stefán Óli Sæbjörnsson Gangi þér vel Geir -
Ingunn Guðnadóttir Hvað er?? -
Gunnar Karl Níelsson Eldskírn og batakveðjur! -
Sigurður Hrellir Utanþingsstjórn! -
Ólafur Björnsson Mótmælum áfram!!!! -
Marta B Helgadóttir Allt er hverfult -
Fríða Rakel Kaaber Sorglegar fréttir -
Sigurður Bogi Sævarsson Á stórum stundum -
Þórdís Bára Hannesdóttir Óbreytt stjórnarsamstarf fram að kosningum. -
Haukur Nikulásson Eðlilegt að þau segi bæði af sér nú þegar - ... -
Ævar Rafn Kjartansson Er mótmælunum sjálfhætt? -
Stefán Friðrik Stefánsson Geir hættir vegna krabbameins - kosningar í maí -
Arndís Ásta Gestsdóttir Illkynja og góðkynja æxli -
Ágúst Hjörtur Yfirveguð ákvörðun -
Haukur Gunnarsson Sendi Geir og fjölskildu mínar bestu óskir -
Guðmundur Jónas Kristjánsson Sjálfstæðisflokkur í vanda og þjóðleg borgaraleg öfl -
Frikkinn Of langt í kosningar. -
Ólöf de Bont Veikindi -
-
Ómar Ragnarsson Man hvar maður var staddur. -
Ingimar Eggertsson Ég óska honum alls góðs og vonir um góðan bata. -
Helena Leifsdóttir Geir og Inga Jóna - Bænir okkar eru hjá þér ... -
Sigrún Jónsdóttir Gefum þeim svigrúm og tíma. -
Sigrún Ingvarsdóttir Gangi þér vel Geir! -
Jón Aðalsteinn Jónsson Ósk um góðan bata -
Ingólfur H Þorleifsson Nýtt upphaf. -
Guðrún Emilía Guðnadóttir Gangi þér allt í haginn Geir. -
Sigríður Sigurðardóttir Krabbamein er ekkert grín. -
Jón Rúnar Ipsen Geir: Kosið í maí -
Vilborg Traustadóttir Ósk um góðan bata -
Páll Höskuldsson Bata kveðja -
Jón Baldur L'Orange Hugur allra er hjá Geir -
-
Guðsteinn Haukur Barkarson Guð blessi Geir Hilmar Haarde -
-
Árni Viðar Björgvinsson Stórtíðindi í stjórnmálum landsins -
Rúnar Þór Þórarinsson Minnir á samúðina með Ingibjörgu -
Sigurður Þórðarson Lélegasta ríkisstjórn Íslandssögunnar á förum -
Gudrún Hauksdótttir Tad á ekki af teim ad ganga rádamömmun okkar. -
Benedikt Bjarnason Óska Geir góðs bata. -
Súsanna Svavarsdóttir Mannvonska -
Inga Lára Helgadóttir Þetta er högg :( -
Kristján Logason Byltingin er ekki búin!!! -
Baldur Gautur Baldursson Of seint að kjósa í maí -
Magnús Þór Jónsson Kjaftstopp! -
Sigríður Laufey Einarsdóttir Hörmuleg tíðindi - utanþingsstjórn? -
Harpa Karlsdóttir Vonandi færist ró yfir mannskapinn -
-
Magnús Helgi Björgvinsson Heilsuspillandi embætti! -
Magnús Guðjónsson Óska Geir alls hins besta -
-
Eyþór Arnalds Sorgleg tíðindi -
Kjartan Pálmarsson Ég mun biðja fyrir þér. -
Sólveig Þóra Jónsdóttir Sorglegt -
Kent Lárus Björnsson I get to vote in May -
Björgvin R. Leifsson Ríkisstjórnin verður að fara -
Þorleifur Ágústsson Ekkert annað í stöðunni. -
Bergur Thorberg Lífið sjálft -
Baldvin Jónsson Ég bið Guð að gefa þér skjótan bata Geir - ... -
Snjólaug A. Sigurfinnsdóttir Þegar mótlæti hendir
Innlent »
- Ný fiðrildategund á Íslandi
- „Mjög hrottafengin árás“
- Ráðist á mann á áttræðisaldri
- Hass og árás á leigubílstjóra
- Viðskotaillur og vildi ekki hjálp
- Gestgjafinn varð æfur
- Maður stunginn í Hafnarfirði
- Hrun í ruslinu frá hruni
- 112-dagurinn er í dag
- Hafa gert hugtakið merkingarlaust
- Fá 10 þúsund kr. fyrir skinnið
- Hálka víða um land
- Of ungir inni á Kónginum
- Opið á skíðasvæðum norðan og austan
- Óbreyttur dagafjöldi á grásleppu
- Vilja starfshóp um atvinnumálin
- Bjartviðri austanvert
- Fengu lán úr sjóðum
- Vildu vera í Póllandi
- Þrír forsætisráðherrar á sólarhring
- Lífeyrissjóðir bjóða í krónur
- Þór er kominn til Noregs
- Ýsan var dýrari en þorskurinn
- Vilja breyta skipan á höfuðborgarsvæðinu
- Fljótsdalshérað vann Hveragerði
- Æfa í þröngu, köldu og leku húsnæði
- Vel á annað þúsund á Bessastöðum
- Akureyrarstofa óánægð með Alþingi
- Fíkniefni ætluð fanga fundust
- Meirihluti vill kosningar í vor
- Gáleysi að fara upp lausan stiga
- Stuðningsmenn Sigurðar Árna boða fund
- Miklaborg hreinsuð af ásökunum
- Karl á áttræðisaldri í haldi
- Frystir með kvöldinu
- Handtekinn vegna sprengjumáls
- Náð samkomulagi um vaxtabætur
- Hnífstungumaður áfram í gæsluvarðhaldi
- Á fimmta tug umsókna um starf
-
Keppt í hugviti
- Greiddi barni fyrir vændi
- Margt um manninn á Bessastöðum
- Tilraunaverkefni í vinnumiðlun
- Samstaða gerir athugasemd við Samstöðu
- Vilja framkvæmdastjóra á skrifstofuna
- Stefna að opnun í Skálafelli
- Boðuð á fund í Reykjavík
- Skipulagsmálum víða áfátt
- Bleikjueldi ekki háð umhverfismati
- Ekið á stúlku á Akureyri
- Karl biskup í Kenía
- Bjóða brúðhjónunum til Íslands
- Um 65% með leka púða
Innlend málefni
- Hallgrímur SI fórst undan ströndum Noregs
- Landsdómur
- Bæjarstjórnarmeirihluti sprunginn í Kópavogi
- Baldur Guðlaugsson - dómsmál
- Ólga innan VG
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 2. febrúar 2009, Innlent Aðgerð á Geir heppnaðist vel
- Föstudagur, 23. janúar 2009, Innlent Erlendir fjölmiðlar fjalla um Geir
- Föstudagur, 23. janúar 2009, Innlent Sjálfstæðismenn í sjokki
- Laugardagur, 31. janúar 2009, Innlent Bjarni staðfestir framboð
- Laugardagur, 31. janúar 2009, Innlent Geir heldur utan á morgun
-
Veður hamlar aðgerðum á strandstað
-
Íranar fagna byltingarafmæli
-
Rómarborg snæviþakin
-
Ofbeldið í Sýrlandi eykst
-
Adele í viðtali við 60 mínútur
-
Ingvar: Við verðum að vinna síðustu þrjá
-
Steinar Páll: Þetta var mjög gaman
-
Samsteypustjórnin samþykkti skilyrðin






































