Telur lögreglu njóta stuðnings
Geir H. Haarde forsætisráðherra kveðst vera þess fullviss að lögreglan á Íslandi fái þann stuðning og traust sem hún þarf af hálfu stjórnvalda og njóti auk þess velvilja almennings í landinu. Þetta kemur fram í yfirlýsingu forsætisráðherrans sem hann gaf vegna opins bréfs formanns Landssambands lögreglumanna.
Yfirlýsingin er dagsett 21. janúar 2009 og er svohljóðandi:
„Forsætisráðherra átti í dag fund með Snorra Magnússyni, formanni Landssambands lögreglumanna og öðrum forsvarsmönnum félagsins. Á fundinum ítrekaði ráðherra velvilja sinn í garð lögreglunnar og ánægju með störf hennar. Mat ráðherrans er að lögreglan og lögreglumenn hafi sinnt sínu starfi með miklum sóma undanfarna mánuði við erfiðar aðstæður.
Fundurinn var haldinn í kjölfar opins bréfs sem Snorri Magnússon skrifaði forsætisráðherra í Morgunblaðið þriðjudaginn 13. janúar. Þar er lýst þeirri hættu sem lögreglumenn búa við í starfi í tilefni af ummælum ráðherra í sjónvarpsviðtali á Stöð 2 6. janúar vegna mótmæla á gamlársdag.
Forsætisráðherra er mæta vel kunnugt um starfsskilyrði lögreglumanna og hefur fullan skilning á hlutskipti þeirra og fjölskyldna þeirra og þeirri hættu sem lögreglumenn leggja sig í þegar átök brjótast út.
Landssamband lögreglumanna gegnir mikilvægu hlutverki fyrir lögreglumenn og er mikilvægur vettvangur faglegrar umræðu um störf lögreglunnar. Forsætisráðherra fagnar af þeim sökum tækifæri til að skiptast á skoðunum við forsvarsmenn félagsins og kynnast sjónarmiðum þeirra. Báðir aðilar gera sér fulla grein fyrir því að lögregla getur aðeins sinnt starfi sínu fái hún til þess þann stuðning og það traust sem hún þarf af hálfu stjórnvalda og njóti auk þess velvilja almennings í landinu. Það er fullvissa forsætisráðherra að svo sé um lögregluna á Íslandi.“
Innlent »
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 21. janúar 2009, Innlent Lífsnauðsyn að auka fjárveitingar til lögreglu
- Mánudagur, 26. janúar 2009, Innlent Lögreglumenn skoða úrsögn úr BSRB
- Föstudagur, 19. september 2008, Innlent Lögreglu vantar marga menn og mikla peninga
- Þriðjudagur, 9. september 2008, Innlent Lögregla fái meiri þjálfun í að verjast
- Laugardagur, 25. október 2008, Innlent Samið við lögreglumenn
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli




































