„Vilja sýna sig sem stjórntækan kost"

Geir H. Haarde, formaður Sjálfstæðisflokksins, og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir varaformaður. stækka

Geir H. Haarde, formaður Sjálfstæðisflokksins, og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir varaformaður. mbl.is/Golli

Stefanía Óskarsdóttir stjórnmálafræðingur segir mjög erfitt að spá nokkru um þróun mála í íslenskum stjórnmálum eftir að Geir H. Haarde gerði grein fyrir veikindum sínum í morgun og því að hann myndi ekki sækjast eftir endurkjöri sem formaður  Sjálfstæðisflokksins á landsfundi hans í mars.

„Mér er brugðið að heyra af veikindum hans og ég vona að hann nái sem fyrst heilsu á ný,” sagði hún er blaðamaður mbl.is ræddi við hana í dag.

„Hvað varðar þær ákvarðanir að fresta landsfundi sjálfstæðisflokksins og stefna á kosningar í vor þá finnst mér þær skynsamlegar. Þannig finnst mér tímasetning landsfundarins í mars mjög heppileg. Hún gefur þeim sem íhuga framboð svigrúm til þess og okkur öllum svigrúm til að ná örlítið meiri yfirsýn yfir stöðuna."

Stefanía segir nær útilokað að spá nokkru um framhaldið á þessari stundu en að hún hafi þó tekið eftir því í máli Steingríms J. Sigfússonar í sjónvarpsviðtali  strax eftir yfirlýsingu forsætisráðherra, að hann virtist ekki vera jafn harður og áður í afstöðu sinni gegn Alþjóða gjaldeyrissjóðnum og áður. Sagðst hún hafa túlkað það svo að hann vildi nú sýna flokk sinn sem ábrygan og stjórntækan kost.

"Þetta er svolítið skondið í ljósi þess að fyrr í vikunni snérist umræðan um það hvort Samfylkingin væri stjórntækur flokkur, sagði Stefanía.   

Spurning hvort Þorgerður bjóði sig fram 

Spurð um hugsanlegan eftirmann Geirs sagði Stefanía enn mjög erfitt að spá nokkru um það. „Það hafa allt í einu opnast þarna dyr en það á eftir að kom aí ljós hverjir reyni að nýta sér það. Það á til dæmis enn eftir að koma í ljós hvort Þorgerður Katrín, varaformaður flokksins, sækist eftir formannsembættinu og hverjir bjóði sig þá fram á móti henni. Það er hefð fyrir því innan flokksins að bjóði varaformaður sig fram þá hljóti hann formannsembættið en þó er ómögulegt að slá nokkru föstu um það."

Hún segir að einnig verði áhugavert að sjá hverjir bjóða sig fram í önnur embætti þar sem einnig sé hef fyrir því innan flokksins að fólk geri sig gildandi innan hans með framboðum til æðstu embætta hans.”

Stefanía sagðist helst hafa heyrt nöfn Bjarna Benediktssonar , Kristjáns Þórs Júlíussonar og Gunnlaugs Þórs heilbrigðisráðherra nefnd í slíku sambandi en að ekkert hafi verið staðfest í þeim efnum og enn geti mjög margt gerst.”

Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG.

Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG. mbl.is/Ómar

Bjarni Benediktsson

Bjarni Benediktsson

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Kanadadollari. Úr myndasafni.

Segir stuðning við Kanadadollar

Í gær, 22:15 „Þetta er rætt í alvöru á Íslandi. Efnahagsráðherrann fór til Kanada fyrir sex vikum og fundaði með kanadíska seðlabankanum og með þingmönnum og að ég tel fjármálaráðuneytinu líka. Hann kom síðan aftur til Íslands og sagði opinberlega að þetta væri möguleiki sem væri ekki hægt að útiloka.“ Meira »

Brotist inn meðan íbúar skruppu frá

Í gær, 21:09 Tilkynnt var um innbrot í heimahús í Grafarvogi klukkan sjö í kvöld og söknuðu húsráðendur sjónvarps og ýmissa raftækja. Þeir brugðu sér af bæ í rúma klukkustund og þegar þeir komu heim var búið að brjóta rúðu og komust þjófarnir þannig inn. Meira »

Stefnan áframhaldandi lágt gengi

Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður.
Í gær, 20:11 „Það er alveg ljóst mál að þetta kosningaplagg ríkisstjórnarinnar sem kallað hefur verið framkvæmdaáætlun er byggð á þeirri forsendu að gengi íslensku krónunnar haldist álíka veikt og það er í dag,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is. Meira »

Tryggja að allir komist heilir heim

Í gær, 18:59 Haldið verður úti auknu umferðareftirliti í sumar á Vesturlandsvegi, Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut af hálfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra. Meira »

Fundur Háskólalestarinnar fellur niður

Frá Ísafirði. Úr myndasafni.
Í gær, 18:22 Fram kemur í tilkynningu frá Háskólalestinni að fyrirlestur um forsetaframboðið sem fara átti fram á Ísafirði í kvöld klukkan 20:00 falli niður vegna þess að öllu flugi frá Reykjavíkur til Ísafjarðar í dag hafi verið aflýst. Meira »

Meintar falsanir til lögreglunnar

Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 19:39 Tekin var ákvörðun um það í dag af yfirkjörstjórnum í Reykjavík að vísa meintum fölsunum á undirskriftum á meðmælendalistum Ástþórs Magnússonar, forsetaframbjóðanda, til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Gæsluvarðhaldið staðfest

Í gær, 18:29 Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir tveimur karlmönnum sem grunaðir eru um að hafa valdið dauða samfanga síns í fangelsinu á Litla-Hrauni fyrir rúmri viku. Héraðsdómur hafði áður úrskurðað mennina í gæsluvarðhald til 13. júní. Meira »

Húsbíll fauk af vegi

Í gær, 18:09 Húsbíll fauk í Fljótum, skammt frá Ketilási um hádegisbilið í dag. Tvennt var í bílnum og voru þau flutt á heilsugæsluna á Siglufirði til aðhlynningar. Meira »

Ólafur mælist með mest fylgi

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.
Í gær, 18:09 Mikill viðsnúningur hefur orðið í fylgi við forsetaframbjóðendurna Ólaf Ragnar Grímsson og Þóru Arnórsdóttur ef marka niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Capacent Gallup sem greint var frá í fréttum Ríkisútvarpsins. Meira »

Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð

Í gær, 17:49 Talsvert magn af fíkniefnum fannst við húsleit lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í kjallaraíbúð í miðborginni í gær.   Meira »

Yfirheyrslur héldu áfram í dag

Fangelsið á Litla-Hrauni.
Í gær, 18:00 Yfirheyrslur vegna láts fanga á Litla-Hrauni, sem talið er hafa borið að með sviplegum hætti, héldu áfram í dag og var nokkur fjöldi vitna yfirheyrður, þar á meðal fólk sem tengist fangelsinu. Meira »

Bátur fauk á annan bát

Hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í dag.
Í gær, 17:49 Afar hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í allan dag og í morgun fauk bátur á annan bát í Grindavíkurhöfn.  Meira »

Harður árekstur í Engidal

Í gær, 17:42 Harður árekstur tveggja fólksbíla varð í Engidal í Hafnarfirði, til móts við hús Actavis, skömmu eftir klukkan hálf sex í kvöld. Annar bílinn valt á hliðina við áreksturinn. Meira »

Fylgjast þarf með Krýsuvík

Frá Krýsuvík.
Í gær, 17:01 Sprungugos í norðurhluta þess sprungukerfis, sem liggur frá megineldstöðinni í Krýsuvík, geta hugsanlega komið upp í Heiðmörk eða í grennd við Elliðavatn og því er full ástæða til að fylgjast náið með því sem gerist á Krýsuvíkursvæðinu. Meira »

Harma óvæginn fréttaflutning

Í gær, 16:49 Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur leggur ríka áherslu á að mótuð verði vöktunar- og viðbragðsáætlun vegna umhverfismála á svæðinu í grennd við Hellisheiðarvirkjun. Stjórnin harmar jafnframt óvæginn fréttaflutning um tjarnarmyndun í grennd við svæðið. Meira »

33 brotlegir ökumenn myndaðir

Í gær, 17:36 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu myndaði brot 33 ökumanna í Langarima í Reykjavík í dag en fylgst var með ökutækjum sem ekið var í suðurátt að Rósarima. Meira »

Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru

Í gær, 16:51 Fylgi Ólafs Ragnars Grímssonar og Þóru Arnórsdóttur er jafnt samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar MMR sem birtar voru í dag. Samtals sögðust 41,2% ætla að kjósa hvorn forsetaframbjóðandann. Meira »

Farinn frá Landsbankanum

Jens Garðar Helgason
Í gær, 16:12 „Ég tek ekki ákvörðun fyrir aðra, en ég stofnaði í dag reikning í Sparisjóði Norðfjarðar og ætla að flytja öll mín viðskipti frá Landsbankanum.“ Þetta segir Jens Garðar Helgason, formaður bæjarráðs í Fjarðabyggð, í samtali við mbl.is. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Juki hraðsaumavél til sölu
Juki hraðsaumavél DLU-450 til sölu. Mjög lítið notuð. Frekari upplýsingar hjá Si...
Húsasmíðameistari.
Tek að mér smíði sumarhúsa. Get séð um frá sökkli að fullbúnu. Fagmennska uppl. ...
Bíll til sölu
Er með flottan Subaru Impreza,árgerð 2007, hann er ekinn 174 km.og hann kostar 1...
Fótboltaspil
Til sölu er þetta glæsilega fótboltaspil, er eins og nýtt. Verð kr. 10.000 að lá...
 
Kynning skipulagsmála í rangárþingi eystra

Kynning skipulagstillöguí Rangárþin...
Breyting á deiliskipulagi á húsavík

Norðurþing Skipulags- og byggingarfullt...
12834 stofnstígur - reykjavíkurborg

út­boð Reykja­víkur­bor­g Innka­upa­...
Opinn fundur
Félagsstarf
Félag sjálfstæð...