Reiður yfir að lenda í þessari stöðu
eftir Unu Sighvatsdóttur
una@nbl.is
„Þegar reykurinn er að hverfa horfi ég framan í tvo stráka sem eru svona 17-18 ára og ég lét kylfuna síga og sagði: „Farið þið, gerið það fyrir mig farið, ég vil ekki gera þetta,“ og þeir bökkuðu aðeins. Það hefur enginn gaman af þessu, að lenda saman við unglinga.“
Þannig lýsir lögreglumaður sem slasaðist í óeirðunum á miðvikudagskvöld, aðdragandanum að því að rúmlega þriggja kílóa gangstéttarhellu var kastað í öxl hans.
Sjálfur hefur hann ekki verið í götulögreglunni í nokkur ár en var kallaður til sem aukaliðsstyrkur þegar ljóst var í hvað stefndi. „Ég hef ekki notað gasgrímu síðan á æfingu í Lögregluskólanum og ég varð svo hissa þegar fólkið kom aftur eftir gasið, æddi alveg brjálað að okkur og ég hugsaði: Bíddu, virkar gasið ekki? Sjálfur hafði ég ekki skjöld svo það eina sem ég gat gert var að skýla mér á bak við fremstu menn. Það rigndi stanslaust yfir mann glerflöskum og grjóti og maður var bara að bíða eftir að gashylkinu yrði skotið og ég veit að þetta gerðist mjög hratt, en mér fannst óratími líða á meðan þetta stóð yfir.“
Voru tvímælalaust í lífshættu
Þar sem hann skýldi sér á bak við vinnufélaga sína sá hann hvernig næsti maður féll á hnén. Sá hafði fengið hellu í höfuðið og missti meðvitund skömmu síðar. Á meðan lögreglumaðurinn sem blaðamaður ræddi við studdi félaga sinn í skjól varð hann sjálfur fyrir grjóti.„Ég fann allt í einu rosalegt högg og nístandi sársauka í öxlinni og komst að því seinna að ungur maður hefði tekið tilhlaup með grjótið og kastað því í mig. Adrenalínið var alveg á fullu og maður varð hissa og reiður en svo varð sársaukinn alltaf meiri og á leiðinni upp á slysadeild fannst mér að það væri að vaxa annað höfuð út úr öxlinni á mér, það blæddi svo mikið inn á liðinn.“
Hann segist í raun ekki hafa áttað sig á því fyrr en hann heyrði viðbrögð lækna að lögreglan hefði beinlínis verið í lífshættu. Til samanburðar bendir hann á að í Hringbrautarmálinu svokallaða lést maður með þríbrotna höfuðkúpu vegna höggs, eftir að hafa fengið í höfuðið slökkvitæki sem vó rúm þrjú kíló, líkt og gangstéttarhellurnar.
Innlent »
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Laugardagur, 2. maí 2009, Innlent Amma á Facebook
- Laugardagur, 5. september 2009, Innlent Krefst heiðarleika af hálfu stjórnvalda
- Þriðjudagur, 11. mars 2008, Innlent Slegist um stúdentshúfur
- Þriðjudagur, 6. október 2009, Innlent Ekki kreppa í bókaútgáfu
- Laugardagur, 13. september 2008, Innlent „Ég skal drepa konuna þína!“
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli





































