Aldrei meiri ánægja með Íbúðalánasjóð

Íbúðalánasjóður

Íbúðalánasjóður

Í viðhorfsrannsókn sem Capacent Gallup gerði nýlega fyrir Íbúðalánasjóð kom í ljós að jákvæðni gagnvart sjóðnum meðal almennings hefur ekki verið meiri frá því að reglubundnar mælingar á viðhorfum í garð Íbúðalánasjóðs hófust.

Aðeins 3,9% segjast nú vera frekar eða mjög neikvæðir gagnvart sjóðnum, en 14,3% segjast hvorki neikvæðir né jákvæðir. Alls segjast 81,7% jákvæðir í garð Íbúðalánasjóðs, þar af eru 45% mjög jákvæðir og 36,7% frekar jákvæðir. Þeir sem eru mjög jákvæðir hafa ekki verið svo margir áður, eða 45%, en voru 28,5% fyrir þremur árum, 30,4% fyrir tveimur árum og 39% fyrir einu ári.

93,8 prósent telja að Íbúðalánasjóður eigi að starfa áfram í óbreyttri mynd. Þessi tala hefur líka hækkað jafnt og þétt í könnunum á undanförnum árum. Þannig töldu 74,2% að sjóðurinn ætti að starfa óbreyttur áfram fyrir þremur árum, 82,9 prósent voru þeirrar skoðunar fyrir tveimur árum og 85,8 prósent fyrir ári, að því er segir í tilkynningu.

Í könnuninni var m.a. spurt hvort menn teldu að lán í íslenskum krónum ættu að vera verðtryggð áfram. 23,6% vildu halda verðtryggingunni, en 76,4% vildu afnema hana.

60,8% sögðust telja ólíklegt að þeir lentu í greiðsluerfiðleikum vegna afborgana af íbúðarhúsnæði á næstu 6 mánuðum.

55,7% sögðust mjög eða frekar ánægðir með að húsnæðislán sem ekki er hjá Íbúðalánasjóði yrði fært til sjóðsins. 33,4% sögðust hvorki ánægðir né óánægðir, en 10,9 frekar eða mjög óánægðir.

Í könnuninni var m.a. spurt hversu hátt hlutfall af kaupverði verðtryggð húsnæðislán ættu að vera að hámarki. Flestir, eða 33,6%, töldu að lánin ættu að vera 80 prósent af kaupverði, en 22,1% vildu miða þau við hærra hlutfall kaupverðs en 80%.

Spurt var hver hámarksfjárhæð verðtryggðra húsnæðislána ætti að vera. 44% þeirra sem svöruðu nefndu 30 milljónir eða hærra, 34,8% sögðu 20 – 29 milljónir, 6% töldu 15 – 19 milljónir hæfilega hámarksfjárhæð og 15,2% lægra en 15 milljónir. 74,5% sögðust vilja að Íbúðalánasjóður sæi um slík lán, en 5,4% viðskiptabankar eða sparisjóðir og 19,6% sögðu að báðir aðilar, þ.e. Íbúðalánasjóður og bankar/sparisjóðir, ættu að sjá um húsnæðislánin.

Allir greiðsluseðlar Íbúðalánasjóðs birtast nú rafrænt í heimabönkum, en heimsendingu seðlanna á pappír var hætt í desember sl. 60,4% sögðu að þeim litist vel á þessa ráðstöfun.

1322 manns á landinu öllu á aldrinum 16 – 75 ára voru í úrtaki könnunarinnar, sem var gerð 24. nóvember til 8. desember 2008. Svarhlutfall var 64,1 prósent.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Kanadadollari. Úr myndasafni.

Segir stuðning við Kanadadollar

Í gær, 22:15 „Þetta er rætt í alvöru á Íslandi. Efnahagsráðherrann fór til Kanada fyrir sex vikum og fundaði með kanadíska seðlabankanum og með þingmönnum og að ég tel fjármálaráðuneytinu líka. Hann kom síðan aftur til Íslands og sagði opinberlega að þetta væri möguleiki sem væri ekki hægt að útiloka.“ Meira »

Brotist inn meðan íbúar skruppu frá

Í gær, 21:09 Tilkynnt var um innbrot í heimahús í Grafarvogi klukkan sjö í kvöld og söknuðu húsráðendur sjónvarps og ýmissa raftækja. Þeir brugðu sér af bæ í rúma klukkustund og þegar þeir komu heim var búið að brjóta rúðu og komust þjófarnir þannig inn. Meira »

Stefnan áframhaldandi lágt gengi

Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður.
Í gær, 20:11 „Það er alveg ljóst mál að þetta kosningaplagg ríkisstjórnarinnar sem kallað hefur verið framkvæmdaáætlun er byggð á þeirri forsendu að gengi íslensku krónunnar haldist álíka veikt og það er í dag,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is. Meira »

Tryggja að allir komist heilir heim

Í gær, 18:59 Haldið verður úti auknu umferðareftirliti í sumar á Vesturlandsvegi, Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut af hálfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra. Meira »

Fundur Háskólalestarinnar fellur niður

Frá Ísafirði. Úr myndasafni.
Í gær, 18:22 Fram kemur í tilkynningu frá Háskólalestinni að fyrirlestur um forsetaframboðið sem fara átti fram á Ísafirði í kvöld klukkan 20:00 falli niður vegna þess að öllu flugi frá Reykjavíkur til Ísafjarðar í dag hafi verið aflýst. Meira »

Meintar falsanir til lögreglunnar

Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 19:39 Tekin var ákvörðun um það í dag af yfirkjörstjórnum í Reykjavík að vísa meintum fölsunum á undirskriftum á meðmælendalistum Ástþórs Magnússonar, forsetaframbjóðanda, til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Gæsluvarðhaldið staðfest

Í gær, 18:29 Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir tveimur karlmönnum sem grunaðir eru um að hafa valdið dauða samfanga síns í fangelsinu á Litla-Hrauni fyrir rúmri viku. Héraðsdómur hafði áður úrskurðað mennina í gæsluvarðhald til 13. júní. Meira »

Húsbíll fauk af vegi

Í gær, 18:09 Húsbíll fauk í Fljótum, skammt frá Ketilási um hádegisbilið í dag. Tvennt var í bílnum og voru þau flutt á heilsugæsluna á Siglufirði til aðhlynningar. Meira »

Ólafur mælist með mest fylgi

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.
Í gær, 18:09 Mikill viðsnúningur hefur orðið í fylgi við forsetaframbjóðendurna Ólaf Ragnar Grímsson og Þóru Arnórsdóttur ef marka niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Capacent Gallup sem greint var frá í fréttum Ríkisútvarpsins. Meira »

Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð

Í gær, 17:49 Talsvert magn af fíkniefnum fannst við húsleit lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í kjallaraíbúð í miðborginni í gær.   Meira »

Yfirheyrslur héldu áfram í dag

Fangelsið á Litla-Hrauni.
Í gær, 18:00 Yfirheyrslur vegna láts fanga á Litla-Hrauni, sem talið er hafa borið að með sviplegum hætti, héldu áfram í dag og var nokkur fjöldi vitna yfirheyrður, þar á meðal fólk sem tengist fangelsinu. Meira »

Bátur fauk á annan bát

Hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í dag.
Í gær, 17:49 Afar hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í allan dag og í morgun fauk bátur á annan bát í Grindavíkurhöfn.  Meira »

Harður árekstur í Engidal

Í gær, 17:42 Harður árekstur tveggja fólksbíla varð í Engidal í Hafnarfirði, til móts við hús Actavis, skömmu eftir klukkan hálf sex í kvöld. Annar bílinn valt á hliðina við áreksturinn. Meira »

Fylgjast þarf með Krýsuvík

Frá Krýsuvík.
Í gær, 17:01 Sprungugos í norðurhluta þess sprungukerfis, sem liggur frá megineldstöðinni í Krýsuvík, geta hugsanlega komið upp í Heiðmörk eða í grennd við Elliðavatn og því er full ástæða til að fylgjast náið með því sem gerist á Krýsuvíkursvæðinu. Meira »

Harma óvæginn fréttaflutning

Í gær, 16:49 Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur leggur ríka áherslu á að mótuð verði vöktunar- og viðbragðsáætlun vegna umhverfismála á svæðinu í grennd við Hellisheiðarvirkjun. Stjórnin harmar jafnframt óvæginn fréttaflutning um tjarnarmyndun í grennd við svæðið. Meira »

33 brotlegir ökumenn myndaðir

Í gær, 17:36 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu myndaði brot 33 ökumanna í Langarima í Reykjavík í dag en fylgst var með ökutækjum sem ekið var í suðurátt að Rósarima. Meira »

Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru

Í gær, 16:51 Fylgi Ólafs Ragnars Grímssonar og Þóru Arnórsdóttur er jafnt samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar MMR sem birtar voru í dag. Samtals sögðust 41,2% ætla að kjósa hvorn forsetaframbjóðandann. Meira »

Farinn frá Landsbankanum

Jens Garðar Helgason
Í gær, 16:12 „Ég tek ekki ákvörðun fyrir aðra, en ég stofnaði í dag reikning í Sparisjóði Norðfjarðar og ætla að flytja öll mín viðskipti frá Landsbankanum.“ Þetta segir Jens Garðar Helgason, formaður bæjarráðs í Fjarðabyggð, í samtali við mbl.is. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
TILBOÐ TOYOTA LANDCRUSIER 90 VX FLOTT EINTAK 50 ÁRA AFMÆLISÚTGÁFA
Er með flott eintak af 50 ára afmælisútgáfunni af Toyota Landcrusier 90 VX. Ekin...
GARÐSKÁLI GEYMSLUR GESTAHÚS
Garðskáli - geymslur - gestahús Vönduð hús ú...
NÝJAR VÖRUR Í HVERRI VIKU
FLOTTUR BARNAFATNAÐUR, BARNAVÖRUR, SNYRTIVÖRUR OG MARGT FLEIRA. FRÁBÆR VERÐ - E...
Til sölu Nissan Almera - árgerð 2005
Til sölu Nissan Almera 1.8l, árgerð 2005. Sjálfskiptur. Dráttarkúla. Ekinn 110....
 
Aðalfundur búmanna hsf

Aðalfundur Aðalfundur Búmanna hsf. ver...
Sýslumaðurinn í reykjavík - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Aðalfundarboð félag skipstjórnarmanna

Félag skipstjórnarmanna Aðalfundarboð...
Opinn fundur
Félagsstarf
Félag sjálfstæð...