Fréttaskýring: Ræðst í dag hvort ríkisstjórnin heldur velli

stækka

mbl.is/Golli

Morgunblaðið Eftir Pétur Blöndal pebl@mbl.is

Fátt stendur út af borðinu í viðræðum stjórnarflokkanna um áframhaldandi samstarf. Það eina sem forystumenn flokkanna gátu ekki komið sér saman um í gær sneri að stól forsætisráðherra, en Samfylkingin vildi fá að taka að sér „verkstjórnina“.

Einhugur er um það í Samfylkingunni „að fá hreinar línur“ í starf ríkisstjórnarinnar og telja forystumenn flokksins að með því sé verið að mæta kröfum grasrótarinnar.

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, og Össur Skarphéðinsson iðnaðaráðherra lögðu fram aðgerðalista á fundi með Geir H. Haarde, formanni Sjálfstæðisflokksins, og varaformanninum Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur í gær með „brýnustu aðgerðum í efnahagsmálum“ og má búast við niðurstöðu í dag um hvort ríkisstjórnin heldur velli.

Ekkert nýtt í aðgerðalista

Ekkert nýtt er í aðgerðalista Samfylkingarinnar, sem ekki hefur áður verið rætt milli stjórnarflokkanna, að því er heimildir herma. En forystan finnur fyrir mikilli óánægju úr grasrót flokksins með að ekki hafi verið ráðist í þær aðgerðir – þolinmæðin sé á þrotum.

En það stendur hins vegar ekki á sjálfstæðismönnum í þeim efnum. Þeir segjast reiðubúnir að taka undir öll þau atriði sem eru á lista Samfylkingarinnar, þar á meðal að yfirstjórn Seðlabankans víki.

Lagafrumvarp þar að lútandi, sem lýtur að sameiningu Seðlabankans og Fjármálaeftirlitsins, er raunar nú þegar í smíðum, en í því fælist að skipt yrði um stjórnendur í báðum stofnunum.

Það hefði ekki þurft að taka nema nokkrar vikur, samkvæmt heimildum, og náðist samkomulag milli stjórnarflokkanna fyrir jól um að ráðast í þá vinnu, en beðið var með að tilkynna það að beiðni Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, þar til hún yrði komin úr læknismeðferð.

Það kemur til greina af hálfu Sjálfstæðisflokksins að skipta um yfirstjórn Seðlabankans skriflega og má heyra innan þeirra raða að það yrði álitið „skálkaskjól“ Samfylkingarinnar ef Samfylkingin beitti Seðlabankanum fyrir sig við slit samstarfs við Sjálfstæðisflokkinn. Ekki er útilokað að það gangi eftir ef marka má orð ráðherra Samfylkingarinnar í gær, sem sagði að samstarfið væri „sprungið“ ef Davíð yrði ekki látinn fara.

Stjórnarskrárbreytingar mögulegar

Í samkomulagi stjórnarflokkanna fyrir jól fólst einnig að stokkað yrði upp í ríkisstjórninni. Liður í því var að embætti fjármálaráðherra færi yfir til Samfylkingarinnar, en þar með hefði Árni Mathiesen vikið sem ráðherra flokksins.

Embætti utanríkisráðherra hefði farið til Sjálfstæðisflokksins og fleira stóð til samkvæmt samkomulaginu, sem átti að kynna fyrir áramót, en einnig var beðið með að tilkynna það að beiðni Samfylkingarinnar.

Stjórnarskrárbreytingar vegna mögulegrar aðildar að ESB eru einnig á „lista“ Samfylkingarinnar, sem og aðgerðir í málefnum heimilanna, en sjálfstæðismenn segja að ekkert standi samkomulagi fyrir þrifum milli flokkanna í þeim efnum.

Geir H. Haarde forsætisráðherra lagði raunar einnig fram tillögur í gær, sem lúta að endurreisn bankanna og uppbyggingu atvinnulífsins. Samkvæmt heimildum er ekkert í þeim tillögum sem Samfylkingin getur ekki skrifað undir.

Það eina sem út af borðinu stendur í samningaviðræðum flokkanna er að Samfylkingin hefur lýst yfir vilja til að taka „strax“ við „verkstjórn“ í ríkisstjórninni, samkvæmt heimildum, en það felur í sér að forsætisráðuneytið fari til Samfylkingarinnar. „Ég held það hljóti allt að vera í myndinni,“ sagði þingmaður Samfylkingarinnar um það í gær.

En Sjálfstæðisflokkurinn er ekki reiðubúinn að gefa frá sér forsætisráðherraembættið, enda mat manna þar að það myndi fela í sér vantraust á formann flokksins.

Afsögnin óvænt

Ljóst er að afsögn Björgvins G. Sigurðssonar viðskiptaráðherra kom forystu Samfylkingarinnar í opna skjöldu á sunnudagsmorgun. Sumir litu svo á að hann væri að bjarga eigin pólitíska skinni, en afsögnin mæltist þó víðast hvar vel fyrir sem og „hreinsunin“ í Fjármálaeftirlitinu.

Heimildir herma að Árni Mathiesen hafi ráðfært sig við stuðningsmenn sína í gær um sína stöðu – hvort hann ætti að sitja áfram eða segja af sér.

Einhverjir segja að atburðarás síðustu daga innan Samfylkingarinnar sé til marks um að hún sé „að ganga af hjörunum“; hræðslan sé slík innan flokksins vegna mótmæla síðustu daga. Það ýti undir taugaóstyrk Samfylkingar hvað Vinstri grænir séu fastir fyrir.

Úr herbúðum Vinstri grænna má heyra að þingmenn flokksins „sitji bara, bíði og sjái til hvað gerist“. Ögmundur Jónasson og Össur Skarphéðinsson hafi átt óformlegar viðræður, en það hafi ekki náð lengra en það og aldrei hafi neinn „aðgerðalisti“ verið lagður fram af hálfu Samfylkingarinnar. Þar er því neitað að gerð hafi verið krafa um að Vinstri grænir fengju stól forsætisráðherra.

Vinstri grænir hafa ítrekað boðist til þátttöku í þjóðstjórn, sem starfi fram að kosningum. Forsætisráðherra hefur hingað til hafnað því, þar á meðal í gær og vill að fyrst verði látið reyna á hvort ríkisstjórnarsamstarfið haldi. En hins vegar sé allt á borðinu ef það springi. Ekki er þó vilji innan stjórnmálaflokkanna um utanþingsstjórn, enda „vilja þeir axla ábyrgð“.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Kanadadollari. Úr myndasafni.

Segir stuðning við Kanadadollar

Í gær, 22:15 „Þetta er rætt í alvöru á Íslandi. Efnahagsráðherrann fór til Kanada fyrir sex vikum og fundaði með kanadíska seðlabankanum og með þingmönnum og að ég tel fjármálaráðuneytinu líka. Hann kom síðan aftur til Íslands og sagði opinberlega að þetta væri möguleiki sem væri ekki hægt að útiloka.“ Meira »

Brotist inn meðan íbúar skruppu frá

Í gær, 21:09 Tilkynnt var um innbrot í heimahús í Grafarvogi klukkan sjö í kvöld og söknuðu húsráðendur sjónvarps og ýmissa raftækja. Þeir brugðu sér af bæ í rúma klukkustund og þegar þeir komu heim var búið að brjóta rúðu og komust þjófarnir þannig inn. Meira »

Stefnan áframhaldandi lágt gengi

Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður.
Í gær, 20:11 „Það er alveg ljóst mál að þetta kosningaplagg ríkisstjórnarinnar sem kallað hefur verið framkvæmdaáætlun er byggð á þeirri forsendu að gengi íslensku krónunnar haldist álíka veikt og það er í dag,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is. Meira »

Tryggja að allir komist heilir heim

Í gær, 18:59 Haldið verður úti auknu umferðareftirliti í sumar á Vesturlandsvegi, Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut af hálfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra. Meira »

Fundur Háskólalestarinnar fellur niður

Frá Ísafirði. Úr myndasafni.
Í gær, 18:22 Fram kemur í tilkynningu frá Háskólalestinni að fyrirlestur um forsetaframboðið sem fara átti fram á Ísafirði í kvöld klukkan 20:00 falli niður vegna þess að öllu flugi frá Reykjavíkur til Ísafjarðar í dag hafi verið aflýst. Meira »

Meintar falsanir til lögreglunnar

Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 19:39 Tekin var ákvörðun um það í dag af yfirkjörstjórnum í Reykjavík að vísa meintum fölsunum á undirskriftum á meðmælendalistum Ástþórs Magnússonar, forsetaframbjóðanda, til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Gæsluvarðhaldið staðfest

Í gær, 18:29 Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir tveimur karlmönnum sem grunaðir eru um að hafa valdið dauða samfanga síns í fangelsinu á Litla-Hrauni fyrir rúmri viku. Héraðsdómur hafði áður úrskurðað mennina í gæsluvarðhald til 13. júní. Meira »

Húsbíll fauk af vegi

Í gær, 18:09 Húsbíll fauk í Fljótum, skammt frá Ketilási um hádegisbilið í dag. Tvennt var í bílnum og voru þau flutt á heilsugæsluna á Siglufirði til aðhlynningar. Meira »

Ólafur mælist með mest fylgi

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.
Í gær, 18:09 Mikill viðsnúningur hefur orðið í fylgi við forsetaframbjóðendurna Ólaf Ragnar Grímsson og Þóru Arnórsdóttur ef marka niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Capacent Gallup sem greint var frá í fréttum Ríkisútvarpsins. Meira »

Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð

Í gær, 17:49 Talsvert magn af fíkniefnum fannst við húsleit lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í kjallaraíbúð í miðborginni í gær.   Meira »

Yfirheyrslur héldu áfram í dag

Fangelsið á Litla-Hrauni.
Í gær, 18:00 Yfirheyrslur vegna láts fanga á Litla-Hrauni, sem talið er hafa borið að með sviplegum hætti, héldu áfram í dag og var nokkur fjöldi vitna yfirheyrður, þar á meðal fólk sem tengist fangelsinu. Meira »

Bátur fauk á annan bát

Hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í dag.
Í gær, 17:49 Afar hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í allan dag og í morgun fauk bátur á annan bát í Grindavíkurhöfn.  Meira »

Harður árekstur í Engidal

Í gær, 17:42 Harður árekstur tveggja fólksbíla varð í Engidal í Hafnarfirði, til móts við hús Actavis, skömmu eftir klukkan hálf sex í kvöld. Annar bílinn valt á hliðina við áreksturinn. Meira »

Fylgjast þarf með Krýsuvík

Frá Krýsuvík.
Í gær, 17:01 Sprungugos í norðurhluta þess sprungukerfis, sem liggur frá megineldstöðinni í Krýsuvík, geta hugsanlega komið upp í Heiðmörk eða í grennd við Elliðavatn og því er full ástæða til að fylgjast náið með því sem gerist á Krýsuvíkursvæðinu. Meira »

Harma óvæginn fréttaflutning

Í gær, 16:49 Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur leggur ríka áherslu á að mótuð verði vöktunar- og viðbragðsáætlun vegna umhverfismála á svæðinu í grennd við Hellisheiðarvirkjun. Stjórnin harmar jafnframt óvæginn fréttaflutning um tjarnarmyndun í grennd við svæðið. Meira »

33 brotlegir ökumenn myndaðir

Í gær, 17:36 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu myndaði brot 33 ökumanna í Langarima í Reykjavík í dag en fylgst var með ökutækjum sem ekið var í suðurátt að Rósarima. Meira »

Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru

Í gær, 16:51 Fylgi Ólafs Ragnars Grímssonar og Þóru Arnórsdóttur er jafnt samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar MMR sem birtar voru í dag. Samtals sögðust 41,2% ætla að kjósa hvorn forsetaframbjóðandann. Meira »

Farinn frá Landsbankanum

Jens Garðar Helgason
Í gær, 16:12 „Ég tek ekki ákvörðun fyrir aðra, en ég stofnaði í dag reikning í Sparisjóði Norðfjarðar og ætla að flytja öll mín viðskipti frá Landsbankanum.“ Þetta segir Jens Garðar Helgason, formaður bæjarráðs í Fjarðabyggð, í samtali við mbl.is. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
VW TOUAREG V6 TDI
Tilboð 4.200 þ. kr. Ásett 4.600 þ. kr., árg.2005, akst. 110.000 km. Álfelgur, au...
BEAGLE HVOLPAR UNDAN VEL ÆTTUÐUM FORELDRUM
Beagle hvolpar undan vel ættuðum foreldrum eru að leita að góðum heimilum. Verða...
H D Sportster 1200XL
Mikið breytt, mjög öflugt hjól álfelgur screaming eagle kveikja og púst, beint s...
NÝJAR VÖRUR Í HVERRI VIKU
FLOTTUR FATNAÐUR Á FRÁBÆRU VERÐI - ERTU BÚIN AÐ KÍKJA? http://www.123budin.is/...
 
Opinn fundur
Félagsstarf
Félag sjálfstæð...
Aðalfundarboð félag skipstjórnarmanna

Félag skipstjórnarmanna Aðalfundarboð...
Kristniboðssambandið samkoma
Félagsstarf
Háaleitisbraut 58-60 Samkoma í kvöld kl....
12836 fellahverfi - útboð

út­boð Reykja­víkur­bor­g Innka­upa­...