Hvalveiðar leyfðar til 2013

Hvalveiðiskip gangsett í Reykjavíkurhöfn
Hvalveiðiskip gangsett í Reykjavíkurhöfn mbl.is/ÞÖK

Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur í dag gefið út reglugerð um veiðar á hrefnu og langreyði á árunum 2009, 2010, 2011, 2012 og 2013. Leyfilegur heildarafli skal nema þeim fjölda dýra sem kveðið er á um í veiðiráðgjöf Hafrannsóknastofnunarinnar.

Samkvæmt þessu verður heimild að veiða allt að 150 langreyðar á ári og 100 hrefnur. Heimilt verður að flytja allt að 20% af veiðiheimildum hvers árs yfir á næsta ár á eftir.

Í tilkynningu frá ráðuneytinu segir, að veiðar á langreyði í atvinnuskyni hafi byrjað haustið 2006 en legið niðri síðan vegna óvissu um sölu afurða. Nú hafi þeirri óvissu verið eytt.

Þá hófust veiðar á hrefnu í vísindaskyni árið 2003 og lauk árið 2007. Alls voru veidd 200 dýr. Veiðar á hrefnu í atvinnuskyni hófust árið 2006 og hafa verið stundaðar síðan. Alls hafa 46 dýr verið veidd í atvinnuskyni og afurðirnar að langmestu leyti farið á innlendan markað. Á þessum tíma hafa því alls verið veiddar 246 hrefnur.

Samkvæmt reglugerðinni skal veita leyfi til veiða á hrefnu á árunum 2009-2013  þeim íslensku skipum, sem eru í eigu eða leigu einstaklinga eða lögaðila sem hafa stundað hrefnuveiðar í atvinnuskyni á árunum 2006-2008 eða félaga sem þeir hafa stofnað um slíka útgerð. Einnig er heimilt að veita leyfi þeim einstaklingum eða lögaðilum sem að mati ráðherra hafa sambærilega reynslu af útgerð á hrefnuveiðum í atvinnuskyni.

Þá verður eingöngu þeim skipum, sem eru sérútbúin til veiða á stórhvölum, heimilt að taka þátt í veiðum á langreyði.

Þá segir ráðuneytið, að sú ákvörðun að veiðiheimildir séu til 5 ára sé í samræmi við almenna venju innan Alþjóðahvalveiðiráðsins. Þar séu veiðiheimildir, t.d. veiðiheimildir Bandaríkjanna, jafnan ákveðnar til 5 ára í senn.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert