Kreppan á Íslandi kemur við Dani

Pihl og Søn áætlar að velta Ístaks dragist saman um helming á árinu.

Pihl og Søn áætlar að velta Ístaks dragist saman um helming á árinu. mbl.is/Kristinn

Danir sjá fram á að verða af umtalsverðum tekjum vegna kreppunnar á Íslandi. Áætla dönsk stjórnvöld, að innflutningur frá Danmörku til Íslands dragist saman um 17% á þessu ári miðað við síðasta ár. Þá segir móðurfélag verktakafélagsins Ístaks að velta þess félags muni dragast saman um helming.

Fram kemur á vef Berlingske Tidende, að útflutningur til Íslands svari til 0,5% af öllum útflutningi Dana. Haft er eftir Ernst Hemmingsen, viðskiptaráðgjafa í danska sendiráðinu í Reykjavík, að á síðustu tveimur árum hafi Danir flutt vörur til Íslands fyrir um 3 milljarða danskra króna hvort ár, jafnvirði 64 milljarða íslenskra króna. Nú sé gert ráð fyrir um hálfs milljarðs danskra króna samdrætti eða sem svarar til 17%.

Hann segir, að frá markaðslegum sjónarmiðum hefði verið betra að íslenska ríkisstjórnin héldi velli því það auki líkurnar á því að ró haldist á mörkuðum. „En stemmningin á götunum hefur verið með öðrum hætti," segir hann og vísar til mótmælanna að undanförnu.

Blaðið hefur eftir Jacob Warburg, yfirhagfræðingi danska viðskiptaráðsins, að reikna megi með að danskur útflutningur dragist saman í heild um 4% á árinu. 

Byggingariðnaður liggur nánast niðri á Íslandi um þessar mundir. Berlingske hefur eftir Søren Langvad, forstjóra Pihl og Søn, móðurfélags Ístaks, að búist sé við að velta íslenska félagsins dragist saman um helming á árinu. Veltan var um það bil milljarður danskra króna á síðasta ári, jafnvirði um 22 milljörðum íslenskra króna.

Langvad segir, að þetta muni kalla á tilfærslur í störfum en vonast sé til að hægt verði að bjóða íslenskum starfsmönnum störf í öðrum löndum þar sem  Pihl og Søn er með starfsemi.

Langvad segir að tekjur Ístaks svari til um 15% af heildarveltu  Pihl og Søns. 

Danska félagið Idealcombi framleiðir glugga og hurðir og hefur verið með töluverð umsvif á Íslandi. Berlingske hefur eftir  Claus Winther, sölu- og markaðsstjóra fyrirtækisins, að þar búi menn sig undir að veltan á Íslandi dragist saman um 70%.

„Breytingarnar hafa verið hraðar en það voru þær einnig þegar uppsveiflan hófst. Þegar litið er til þess hve mikið hefur verið byggt (á Íslandi) síðustu árin, er ljóst að það mun líða langur tími þar til jafnvægi næst," segir Winther, sem undirstrikar þó að viðskiptin við Íslands séu þó lítill hluti heildarumsvifa fyrirtækisins.  

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Kanadadollari. Úr myndasafni.

Segir stuðning við Kanadadollar

Í gær, 22:15 „Þetta er rætt í alvöru á Íslandi. Efnahagsráðherrann fór til Kanada fyrir sex vikum og fundaði með kanadíska seðlabankanum og með þingmönnum og að ég tel fjármálaráðuneytinu líka. Hann kom síðan aftur til Íslands og sagði opinberlega að þetta væri möguleiki sem væri ekki hægt að útiloka.“ Meira »

Brotist inn meðan íbúar skruppu frá

Í gær, 21:09 Tilkynnt var um innbrot í heimahús í Grafarvogi klukkan sjö í kvöld og söknuðu húsráðendur sjónvarps og ýmissa raftækja. Þeir brugðu sér af bæ í rúma klukkustund og þegar þeir komu heim var búið að brjóta rúðu og komust þjófarnir þannig inn. Meira »

Stefnan áframhaldandi lágt gengi

Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður.
Í gær, 20:11 „Það er alveg ljóst mál að þetta kosningaplagg ríkisstjórnarinnar sem kallað hefur verið framkvæmdaáætlun er byggð á þeirri forsendu að gengi íslensku krónunnar haldist álíka veikt og það er í dag,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is. Meira »

Tryggja að allir komist heilir heim

Í gær, 18:59 Haldið verður úti auknu umferðareftirliti í sumar á Vesturlandsvegi, Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut af hálfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra. Meira »

Fundur Háskólalestarinnar fellur niður

Frá Ísafirði. Úr myndasafni.
Í gær, 18:22 Fram kemur í tilkynningu frá Háskólalestinni að fyrirlestur um forsetaframboðið sem fara átti fram á Ísafirði í kvöld klukkan 20:00 falli niður vegna þess að öllu flugi frá Reykjavíkur til Ísafjarðar í dag hafi verið aflýst. Meira »

Meintar falsanir til lögreglunnar

Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 19:39 Tekin var ákvörðun um það í dag af yfirkjörstjórnum í Reykjavík að vísa meintum fölsunum á undirskriftum á meðmælendalistum Ástþórs Magnússonar, forsetaframbjóðanda, til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Gæsluvarðhaldið staðfest

Í gær, 18:29 Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir tveimur karlmönnum sem grunaðir eru um að hafa valdið dauða samfanga síns í fangelsinu á Litla-Hrauni fyrir rúmri viku. Héraðsdómur hafði áður úrskurðað mennina í gæsluvarðhald til 13. júní. Meira »

Húsbíll fauk af vegi

Í gær, 18:09 Húsbíll fauk í Fljótum, skammt frá Ketilási um hádegisbilið í dag. Tvennt var í bílnum og voru þau flutt á heilsugæsluna á Siglufirði til aðhlynningar. Meira »

Ólafur mælist með mest fylgi

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.
Í gær, 18:09 Mikill viðsnúningur hefur orðið í fylgi við forsetaframbjóðendurna Ólaf Ragnar Grímsson og Þóru Arnórsdóttur ef marka niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Capacent Gallup sem greint var frá í fréttum Ríkisútvarpsins. Meira »

Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð

Í gær, 17:49 Talsvert magn af fíkniefnum fannst við húsleit lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í kjallaraíbúð í miðborginni í gær.   Meira »

Yfirheyrslur héldu áfram í dag

Fangelsið á Litla-Hrauni.
Í gær, 18:00 Yfirheyrslur vegna láts fanga á Litla-Hrauni, sem talið er hafa borið að með sviplegum hætti, héldu áfram í dag og var nokkur fjöldi vitna yfirheyrður, þar á meðal fólk sem tengist fangelsinu. Meira »

Bátur fauk á annan bát

Hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í dag.
Í gær, 17:49 Afar hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í allan dag og í morgun fauk bátur á annan bát í Grindavíkurhöfn.  Meira »

Harður árekstur í Engidal

Í gær, 17:42 Harður árekstur tveggja fólksbíla varð í Engidal í Hafnarfirði, til móts við hús Actavis, skömmu eftir klukkan hálf sex í kvöld. Annar bílinn valt á hliðina við áreksturinn. Meira »

Fylgjast þarf með Krýsuvík

Frá Krýsuvík.
Í gær, 17:01 Sprungugos í norðurhluta þess sprungukerfis, sem liggur frá megineldstöðinni í Krýsuvík, geta hugsanlega komið upp í Heiðmörk eða í grennd við Elliðavatn og því er full ástæða til að fylgjast náið með því sem gerist á Krýsuvíkursvæðinu. Meira »

Harma óvæginn fréttaflutning

Í gær, 16:49 Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur leggur ríka áherslu á að mótuð verði vöktunar- og viðbragðsáætlun vegna umhverfismála á svæðinu í grennd við Hellisheiðarvirkjun. Stjórnin harmar jafnframt óvæginn fréttaflutning um tjarnarmyndun í grennd við svæðið. Meira »

33 brotlegir ökumenn myndaðir

Í gær, 17:36 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu myndaði brot 33 ökumanna í Langarima í Reykjavík í dag en fylgst var með ökutækjum sem ekið var í suðurátt að Rósarima. Meira »

Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru

Í gær, 16:51 Fylgi Ólafs Ragnars Grímssonar og Þóru Arnórsdóttur er jafnt samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar MMR sem birtar voru í dag. Samtals sögðust 41,2% ætla að kjósa hvorn forsetaframbjóðandann. Meira »

Farinn frá Landsbankanum

Jens Garðar Helgason
Í gær, 16:12 „Ég tek ekki ákvörðun fyrir aðra, en ég stofnaði í dag reikning í Sparisjóði Norðfjarðar og ætla að flytja öll mín viðskipti frá Landsbankanum.“ Þetta segir Jens Garðar Helgason, formaður bæjarráðs í Fjarðabyggð, í samtali við mbl.is. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Húsnæði óskast til leigu - 120fm-200fm
Leita að húsnæði fyrir tvö yfir fimmtugt - róleg og reglusöm. Óska eftir íbúð...
Til leigu
Til leigu í sumar 3 herbergja íbúð í Grafarvogi. 8940458...
HANNA OG SMÍÐA STIGAFÁST Á ÝMSUM BYGGING
Hanna og smíða stiga Fást á ýmsum byggingarstigu...
UKELELE
Ukulele í úrvali. Verð frá 5.900. Gítarinn ehf., Stórhöfða 27. S. 552 2125. www....
 
Samkoma - hjálpræðisherinn
Félagsstarf
Kjallarinn, fimmtudag, kl.20 Ung...
Ársfundur vina vatnajökuls

Ársfundur Vina Vatnajökuls, hollvinasamt...
Trjáplöntusala bjarkarholti mosfellsbæ

Trjáplöntusala Bjarkarholti 1, Mosfellsb...
Kristniboðssambandið samkoma
Félagsstarf
Háaleitisbraut 58-60 Samkoma í kvöld kl....