Orkuveitunni dæmdar jarðir
Héraðsdómur Suðurlands staðfesti í dag fullan eignarrétt Orkuveitu Reykjavíkur að landsvæðum sem Orkuveitan hefur keypt úr níu jörðum í sveitarfélaginu Ölfusi. Héraðsdómur felldi þar með úr gildi að hluta úrskurði óbyggðanefndar frá 31. maí 2006 sem hafði úrskurðað landsvæðin þjóðlendur.
Orkuveita Reykjavíkur stefndi íslenska ríkinu, sveitarfélaginu Ölfusi og Grímsnes- og Grafningshreppi og 16 landeigendum til réttargæslu.
Orkuveitan krafðist þess að felldir yrðu úr gildi að hluta úrskurðir óbyggðanefndar frá 31. maí 2006. Í dómi héraðsdóms Suðurlands er rakið að íslenska ríkið afsalaði hluta þess landsvæðis sem um var deilt til Orkuveitunnar að fenginni heimild Alþingis.
Orkuveitan gætti að sögn ítrustu varfærni í kaupum á landinu og gekk ekki frá kaupsamningum fyrr en löggjafinn hafði heimilað að selja hluta af umræddum jörðum sem fullkomið eignarland.
Þá segir í dóm héraðsdóms að ríkið hafi viðurkennt landamerkjabréf annarra jarða í þessu máli með því að falla frá forkaupsrétti og árita alla samninga.
Þrátt fyrir þessa gerninga gerði íslenska ríkið hins vegar þá kröfu fyrir óbyggðanefnd að stór hluti þess lands sem selt var Orkuveitunni teldist til þjóðlendu.
Héraðsdómur telur að þessi kröfugerð ríkisins hafi verið ósamrýmanleg fyrri viðskiptum ríkisins og Orkuveitunnar og því verði að fallast á þá kröfu Orkuveitunnar að viðurkenna eignarrétt Orkuveitunnar að landsvæðum sem keypt voru úr framangreindum jörðum.
Í dómsorði segir að viðurkenndur sé fullkominn eignarréttur stefnanda, Orkuveitu Reykjavíkur, að landsvæðum þeim er hann hefur keypt úr jörðunum Ytri-Þurá, Núpum I, II og III, Vatna, Kröggólfsstaða, Þúfu, Litla-Saurbæjar og Stóra- Saurbæjar í sveitarfélaginu Ölfusi og er þinglýstur eigandi að og liggja að mörkum afréttar Ölfuss í sveitarfélaginu Ölfusi og Grímsnes- og Grafningshreppi og er þar engin þjóðlenda.
Íslenska ríkinu var gert að greiða Orkuveitunni tvær milljónir í málskostnað.
Innlent »
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 30. júlí 2008, Innlent Mótmælendur í skjólfatnaði merktum OR
- Mánudagur, 22. júní 2009, Innlent 13 svæði þjóðlendur að öllu leyti
- Miðvikudagur, 1. júlí 2009, Innlent Álftanesskógar eru þjóðlenda
- Þriðjudagur, 12. febrúar 2008, Innlent Orkuveitan á ekki að vera bitbein stjórnmálamanna
- Miðvikudagur, 16. júlí 2008, Innlent OR fær loks bætur vegna jarðskjálftanna árið 2000
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli




































