Trúnaðarmannafundur VR kýs í kvöld

Gunnar Páll Pálsson stækka

Gunnar Páll Pálsson mbl.is/Kristinn

Morgunblaðið Eftir Guðna Einarsson gudni@mbl.

Nýársfundur trúnaðarráðs og trúnaðarmanna VR mun í kvöld kjósa um hvern fundarmenn styðja í embætti formanns VR. Þrír hafa gefið kost á sér, þeir Gunnar Páll Pálsson, núverandi formaður VR, Kristinn Örn Jóhannesson og Lúðvík Lúðvíksson. Formannsefnið verður valið með einstaklingsbundinni kosningu, líkt og þrír stjórnarmenn og þrír varamenn í stjórn. Formaður og stjórnarmenn eru kjörnir til tveggja ára.

Halldór Grönvold, formaður kjörstjórnar VR, sagði nýársfundinn snúast um að stilla upp framboði trúnaðarmanna og trúnaðarráðs auk þess að velja formannsefni fundarmanna þar eð þrír hafa boðið sig fram til starfans. Það er fáheyrt, ef ekki einsdæmi í sögu félagsins, að kosið sé á milli formannsefna. „Þessir þrír munu kynna framboð sitt og síðan mun fundurinn velja einn þeirra sem sinn formannskandídat,“ sagði Halldór.

Einnig verður kosið um tillögu uppstillingarnefndar að lista með fjórum stjórnarmönnum og 82 fulltrúum í trúnaðarráð VR. Kosið er um helming stjórnarmanna á hverju ári en 15 sitja í stjórn að formanni meðtöldum.

Alls gáfu 23 einstaklingar kost á sér til stjórnarsetu í VR og 86 til setu í trúnaðarráði, samkvæmt upplýsingum frá kjörstjórn VR á heimasíðu félagsins. Framboðsfrestur til einstaklingsbundins kjörs var auglýstur til hádegis 22. desember 2008. Kjörstjórn samþykkti að framlengja framboðsfrest einstaklinga til formanns, stjórnar og trúnaðarráðs til hádegis þann 12. janúar síðastliðinn. Fresturinn var framlengdur vegna misskilnings sem gætti meðal vissra frambjóðenda um framboðsreglur.

Einstaklingur, sem býður sig fram til embættis formanns, stjórnar eða varastjórnar og nær ekki kjöri á nýársfundinum, hefur tveggja vikna frest til að óska eftir allsherjaratkvæðagreiðslu í félaginu um framboð sitt. Halldór sagði að gengi allt að óskum mundi kjörstjórn væntanlega auglýsa eftir fleiri listum til stjórnar og trúnaðarráðs á fimmtudaginn kemur. Það verður því ekki ljóst fyrr en 12. febrúar hvort fleiri framboðslistar berast en sá sem valinn verður í kvöld.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Kanadadollari. Úr myndasafni.

Segir stuðning við Kanadadollar

Í gær, 22:15 „Þetta er rætt í alvöru á Íslandi. Efnahagsráðherrann fór til Kanada fyrir sex vikum og fundaði með kanadíska seðlabankanum og með þingmönnum og að ég tel fjármálaráðuneytinu líka. Hann kom síðan aftur til Íslands og sagði opinberlega að þetta væri möguleiki sem væri ekki hægt að útiloka.“ Meira »

Brotist inn meðan íbúar skruppu frá

Í gær, 21:09 Tilkynnt var um innbrot í heimahús í Grafarvogi klukkan sjö í kvöld og söknuðu húsráðendur sjónvarps og ýmissa raftækja. Þeir brugðu sér af bæ í rúma klukkustund og þegar þeir komu heim var búið að brjóta rúðu og komust þjófarnir þannig inn. Meira »

Stefnan áframhaldandi lágt gengi

Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður.
Í gær, 20:11 „Það er alveg ljóst mál að þetta kosningaplagg ríkisstjórnarinnar sem kallað hefur verið framkvæmdaáætlun er byggð á þeirri forsendu að gengi íslensku krónunnar haldist álíka veikt og það er í dag,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is. Meira »

Tryggja að allir komist heilir heim

Í gær, 18:59 Haldið verður úti auknu umferðareftirliti í sumar á Vesturlandsvegi, Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut af hálfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra. Meira »

Fundur Háskólalestarinnar fellur niður

Frá Ísafirði. Úr myndasafni.
Í gær, 18:22 Fram kemur í tilkynningu frá Háskólalestinni að fyrirlestur um forsetaframboðið sem fara átti fram á Ísafirði í kvöld klukkan 20:00 falli niður vegna þess að öllu flugi frá Reykjavíkur til Ísafjarðar í dag hafi verið aflýst. Meira »

Meintar falsanir til lögreglunnar

Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 19:39 Tekin var ákvörðun um það í dag af yfirkjörstjórnum í Reykjavík að vísa meintum fölsunum á undirskriftum á meðmælendalistum Ástþórs Magnússonar, forsetaframbjóðanda, til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Gæsluvarðhaldið staðfest

Í gær, 18:29 Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir tveimur karlmönnum sem grunaðir eru um að hafa valdið dauða samfanga síns í fangelsinu á Litla-Hrauni fyrir rúmri viku. Héraðsdómur hafði áður úrskurðað mennina í gæsluvarðhald til 13. júní. Meira »

Húsbíll fauk af vegi

Í gær, 18:09 Húsbíll fauk í Fljótum, skammt frá Ketilási um hádegisbilið í dag. Tvennt var í bílnum og voru þau flutt á heilsugæsluna á Siglufirði til aðhlynningar. Meira »

Ólafur mælist með mest fylgi

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.
Í gær, 18:09 Mikill viðsnúningur hefur orðið í fylgi við forsetaframbjóðendurna Ólaf Ragnar Grímsson og Þóru Arnórsdóttur ef marka niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Capacent Gallup sem greint var frá í fréttum Ríkisútvarpsins. Meira »

Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð

Í gær, 17:49 Talsvert magn af fíkniefnum fannst við húsleit lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í kjallaraíbúð í miðborginni í gær.   Meira »

Yfirheyrslur héldu áfram í dag

Fangelsið á Litla-Hrauni.
Í gær, 18:00 Yfirheyrslur vegna láts fanga á Litla-Hrauni, sem talið er hafa borið að með sviplegum hætti, héldu áfram í dag og var nokkur fjöldi vitna yfirheyrður, þar á meðal fólk sem tengist fangelsinu. Meira »

Bátur fauk á annan bát

Hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í dag.
Í gær, 17:49 Afar hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í allan dag og í morgun fauk bátur á annan bát í Grindavíkurhöfn.  Meira »

Harður árekstur í Engidal

Í gær, 17:42 Harður árekstur tveggja fólksbíla varð í Engidal í Hafnarfirði, til móts við hús Actavis, skömmu eftir klukkan hálf sex í kvöld. Annar bílinn valt á hliðina við áreksturinn. Meira »

Fylgjast þarf með Krýsuvík

Frá Krýsuvík.
Í gær, 17:01 Sprungugos í norðurhluta þess sprungukerfis, sem liggur frá megineldstöðinni í Krýsuvík, geta hugsanlega komið upp í Heiðmörk eða í grennd við Elliðavatn og því er full ástæða til að fylgjast náið með því sem gerist á Krýsuvíkursvæðinu. Meira »

Harma óvæginn fréttaflutning

Í gær, 16:49 Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur leggur ríka áherslu á að mótuð verði vöktunar- og viðbragðsáætlun vegna umhverfismála á svæðinu í grennd við Hellisheiðarvirkjun. Stjórnin harmar jafnframt óvæginn fréttaflutning um tjarnarmyndun í grennd við svæðið. Meira »

33 brotlegir ökumenn myndaðir

Í gær, 17:36 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu myndaði brot 33 ökumanna í Langarima í Reykjavík í dag en fylgst var með ökutækjum sem ekið var í suðurátt að Rósarima. Meira »

Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru

Í gær, 16:51 Fylgi Ólafs Ragnars Grímssonar og Þóru Arnórsdóttur er jafnt samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar MMR sem birtar voru í dag. Samtals sögðust 41,2% ætla að kjósa hvorn forsetaframbjóðandann. Meira »

Farinn frá Landsbankanum

Jens Garðar Helgason
Í gær, 16:12 „Ég tek ekki ákvörðun fyrir aðra, en ég stofnaði í dag reikning í Sparisjóði Norðfjarðar og ætla að flytja öll mín viðskipti frá Landsbankanum.“ Þetta segir Jens Garðar Helgason, formaður bæjarráðs í Fjarðabyggð, í samtali við mbl.is. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
TÖKUM GARÐINN Í GEGN!KLIPPINGAR, TRJÁFEL
Tökum garðinn í gegn! Klippingar, trjáfellingar, beða- hre...
Toyota Yaris
Toyota yaris 2004 árg. Ekinn 114 þ., beinskiptur og skoðaður 2013. Mjög vel með ...
Húsnæði óskast til leigu - 120fm-200fm
Leita að húsnæði fyrir tvö yfir fimmtugt - róleg og reglusöm. Óska eftir íbúð...
Til sölu Harley davidson 100ára afmælisútgáfa
Harley davidson Dyna glide(fxdvg wide 100ára afmælisútgáfa uppl 6624961...
 
Aðalfundur félags háskólakvenna

Félag háskólakvenna og kvenstúdenta Aðal...
Deiliskipulag á grundartanga

Deiliskipulag á Grundartanga Austur...
Breyting á deiliskipulagi á húsavík

Norðurþing Skipulags- og byggingarfullt...
Sýslumaðurinn í hafnarfirði - framhald uppboð

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....