Mikill áhugi erlendra sérfræðinga
Eftir Magnús Halldórsson magnush@mbl.is
Páll Hreinsson, formaður rannsóknarnefndar um bankahrunið, segir erlenda fræðimenn og sérfræðinga hafa mikinn áhuga á að taka þátt í því að greina vandamálin sem ollu því að íslenska bankakerfið hrundi í byrjun október.
Sigríður Benediktsdóttir, sem á sæti í nefndinni með Páli og Tryggva Gunnarssyni, umboðsmanni Alþingis, er nú stödd erlendis þar sem hún meðal annars ræðir við sérfræðinga og fræðimenn. Páll vildi ekki segja við hvaða aðila væri verið að ræða, þar sem ekkert væri ákveðið í þessum efnum ennþá. Sigríður, sem er tölvunar- og hagfræðingur að mennt, er kennari við Yale-háskóla í Bandaríkjunum.
Páll segir að líklegt sé að afleiðing einkavæðingar bankanna, sem lauk árið 2003, verði meðal þess sem nefndin rannsakar. „Það er alveg ljóst að þegar við förum í að skoða eignarhald bankanna og krosseignatengslin, og þau vandamál sem þau geta boðið upp á, þá förum við allt aftur til einkavæðingar bankanna.“
Páll segir nefndinni hafa borist mikið af ábendingum og þá meðal annars frá starfsmönnum bankanna, þeirra sem nú eru fallnir. Þeir hafi sett sig í samband við nefndina og komið til hennar málefnalegum ábendingum, sem full ástæða sé til þess að skoða. „Við höfum fengið töluvert af ábendingum. Það hafa margir núverandi og fyrrverandi bankastarfsmenn komið til okkar upplýsingum sem sýna mögulega óeðlilega viðskiptahætti og einnig upplýsingar um einstakar aðgerðir sem hafa verið til þess fallnar að skapa of mikla áhættu. Þessum ábendingum verður vitaskuld fylgt eftir.“
Rannsóknarnefndin hefur það hlutverk að rannsaka hrun bankanna í byrjun október í fyrra, aðdraganda þess og einnig aðra tengda atburði sem tengjast hruninu með einhverjum hætti. Nefndin hóf störf um áramótin og er ætlað að skila skýrslu sinni 1. nóvember á þessu ári. Sérstakur saksóknari vegna bankahrunsins, Ólafur Þór Hauksson, sýslumaður á Akranesi, hefur það hlutverk að rannsaka og fylgja eftir ætluðum refsiverðum brotum á lögum.
Innlent »
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 9. janúar 2009, Innlent Rannsóknarnefndin byrjuð
- Fimmtudagur, 8. janúar 2009, Innlent Rannsóknarnefnd leitar liðsinnis almennings
- Föstudagur, 27. febrúar 2009, Innlent Ráðamenn í skýrslutökur
- Laugardagur, 8. ágúst 2009, Innlent Verri fréttir en nokkur nefnd hefur þurft að færa
- Föstudagur, 9. janúar 2009, Innlent Öryggi rannsóknargagna tryggt
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli




































