Flestir vildu kosningum flýtt
Gallup kannaði viðhorf Íslendinga til þess hvort flýta ætti alþingiskosningum fram á næstu mánuði. Mikill meirihluti, eða tæp 66%, reyndist hlynntur því en rúmlega 23% andvíg. Könnunin var gerð áður en til stjórnarslita kom.
Marktækur munur reyndist vera á afstöðu fólks eftir aldri og menntun, því háskólamenntaðir reyndust frekar vera hlynntir því að boðað verði til kosninga en minna menntaðir. Mikill munur var einnig á milli stjórnmálaskoðanna, því stuðningur við kosningar var langmestur meðal kjósenda Vinstri grænna, 91%, og minnstur meðal kjósenda Sjálfstæðisflokks, 18%. Um 75% kjósenda Samfylkingar og 76% kjósenda Framsóknarflokks voru hlynnt flýttum kosningum.
Þá kannaði Gallup viðhorf fólks til mótmælanna um miðjan janúar. Mikill meirihluti aðspurðra sagðist hlynntur þeim, eða 69% en fimmtungur var andvígur þeim. 11% voru hvort með né á móti. Þegar fólk var spurt hvort það teldi mótmælendur tala fyrir sína hönd í mótmælum gegn þjóðfélagsástandinu sögðu 39% að þeir gerðu það að öllu eða miklu leyti. Tæplega þriðjungur svaraði að mótmælendur töluðu að nokkru leyti fyrir sína hönd og þriðjungur að þeir ötluðu að litlu eða engu leyti fyrir sína hönd.
Þá taldi rúmlega helmingur aðspurðra að viðbrögð lögreglunnar hefðu verið hæfileg, á mótmælunum við Alþingishúsið 20. janúar. Ríflega 68% voru á þeirri skoðun að mótmælendur hefðu gengið of langt umræddan dag.
Að síðustu kannaði Gallup hvort viðhorf til einkavæðingar hefðu breyst í kjölfar bankahrunsins. Tæplega 23% sögðus nú vera almennt hlynnt einkavæðingu ríkisstofnana eða fyrirtækja í eigu ríkisins, sem er mikil lækkun frá fyrri mælingum 2007 og 2005. Stuðningur er mestur meðal kjósenda Sjálfstæðisflokks eins og búast mátti við og minnstur meðal kjósenda Vinstri grænna. Þá eru karlar hlynntari einkavæðingu en konur, með 29% stuðning á móti 16%, og tekjuhæstu hóparnir hlynntari einkavæðingu en aðrir hópar.
Innlent »
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Laugardagur, 18. október 2008, Innlent 70% vilja þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB
- Mánudagur, 1. september 2008, Innlent Skiptar skoðanir um ákvörðun Þórunnar
- Fimmtudagur, 27. nóvember 2008, Innlent 58% vilja kjósa
- Sunnudagur, 30. desember 2007, Innlent Biskup skynjar viðhorfsbreytingu
- Laugardagur, 13. júní 2009, Innlent 58 prósent fylgjandi ESB-viðræðum
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli




































