Harma fyrirhugaðar veiðar

Hvalaskoðunarfyrirtæki mótmæla harðlega fyrirhuguðum hvalveiðum. stækka

Hvalaskoðunarfyrirtæki mótmæla harðlega fyrirhuguðum hvalveiðum. Árni Torfason

Talsmenn nokkurra hvalaskoðunarfyrirtækja harma fyrirhugaðar hvalveiðar á Íslandsmiðum í nýrri yfirlýsingu. Ákvörðun Einars K. Guðfinnssonar, fráfarandi sjávarútvegsráðherra, um að heimila takmarkaðar hvalveiðar muni verða „afdrifarík“.

Fyrirtækin sem um ræðir eru Elding, Hvalalíf, Gentle Giants, Norðursigling og Sjóferðir Snorra, en starfsmenn þeirra harma „mjög þá ákvörðun fyrrverandi sjávarútvegsráðherra um að leyfa veiðar á langreyðum og hrefnum til ársins 2013“. Hvalaskoðun sé „nú orðinn einn af vinsælli afþreyingarkostum fyrir erlenda ferðamenn“.

Í tilkynningunni segir: 

„Á síðasta ári fóru yfir 115.000 farþegar í hvalaskoðun á landinu og starfa um 200 manns í greininni. Hvalaskoðun er mikið aðdráttarafl fyrir erlenda ferðamenn og hefur íslenskum farþegum einnig fjölgað nokkuð síðustu ár og þá einkum skólahópum. Hvalaskoðun er atvinnuskapandi grein og góður vettvangur fyrir fræðslu og rannsóknir á lífríki hafsins og umhverfinu. Enn fremur rennur greinin styrkari stoðum undir rekstur veitingastaða og önnur þjónustufyrirtæki.

Í skýrslu samgönguráðuneytisins frá árinu 2003 er tilgreint að helstu þættir í skynsamlegri uppbyggingu ferðaþjónustu séu náttúra, menning og fagmennska. Þá segir að sjálfbær þróun sé forsenda þess að sérstaða og ímynd landsins verð efld. Frá því að fyrrverandi sjávarútvegsráðherra tók þessa adrifaríku ákvörðun hafa lykilviðskiptavinir fyrirtækjanna, þ.e. ferðaskrifstofur og ferðaskipuleggjendur, lýst áhyggjum sínum og vísað til vonbrigða og reiði sinna viðskiptavina; viðskiptavinir sem geta skipt sköpum fyrir öflun erlends gjaldeyris.

Hrefnur eru sú tegund hvala sem oftast sjást í ferðum okkar og því höfum við áhyggjur af afleiðingum veiðanna. Rannsóknir um borð í ferðum frá Reykjavík sýna þau dýr sem sjást eru ekki ýkja mörg og að sömu dýrin sýna sig aftur og aftur. Frá því að atvinnuveiðar hófust árið 2006 höfum við merkt breytingar á hegðun hvalanna og þeim hefur fækkað verulega í ferðum okkar. Hrefnuveiðar eru að mestu stundaðar í Faxaflóa, á svipuðum slóðum og hvalaskoðunin fer fram, þrátt fyrir ítrekuð loforð um annað. Þessar tvær greinar geta ekki dafnað hlið við hlið og við teljum einsýnt að rekstri hvalaskoðunarfyrirtækja verði stefnt í voða ef ákvörðun f.v. sjávarútvegsráðherra verður ekki dregin til baka.

Við teljum að ferðaþjónusta sé góð leið til að nýta náttúruauðlindir Íslands með sjálfbærum hætti. Hvalveiðar eru ekki sjálfbærar enda markaður fyrir afurðirnar ekki fyrir hendi. Ímynd Íslands hefur beðið hnekki og hvalveiðar munu ekki bæta þar úr. Við teljum að hvalveiðar séu mikil ógn við ferðaþjónustu á Íslandi.

Einfaldasta og öflugasta leiðin til að efla ímynd Íslands er að stjórnvöld lýsi því yfir þegar í stað að hvalveiðum verði ekki leyfðar. Slík ákvörðun myndi jafnframt vera besta hugsanlega markaðssetning fyrir Ísland sem áfangastaður ferðamanna og upprunaland sjávarafurða.“

Einar K. Guðfinnsson, fráfarandi sjávarútvegsráðherra, hefur valdið uppnámi í röðum starfsfólks hvalaskoðunarfyrirtækja með því að ...

Einar K. Guðfinnsson, fráfarandi sjávarútvegsráðherra, hefur valdið uppnámi í röðum starfsfólks hvalaskoðunarfyrirtækja með því að heimila takmarkaðar hvalveiðar. mbl.is/Kristinn

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Kanadadollari. Úr myndasafni.

Segir stuðning við Kanadadollar

Í gær, 22:15 „Þetta er rætt í alvöru á Íslandi. Efnahagsráðherrann fór til Kanada fyrir sex vikum og fundaði með kanadíska seðlabankanum og með þingmönnum og að ég tel fjármálaráðuneytinu líka. Hann kom síðan aftur til Íslands og sagði opinberlega að þetta væri möguleiki sem væri ekki hægt að útiloka.“ Meira »

Brotist inn meðan íbúar skruppu frá

Í gær, 21:09 Tilkynnt var um innbrot í heimahús í Grafarvogi klukkan sjö í kvöld og söknuðu húsráðendur sjónvarps og ýmissa raftækja. Þeir brugðu sér af bæ í rúma klukkustund og þegar þeir komu heim var búið að brjóta rúðu og komust þjófarnir þannig inn. Meira »

Stefnan áframhaldandi lágt gengi

Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður.
Í gær, 20:11 „Það er alveg ljóst mál að þetta kosningaplagg ríkisstjórnarinnar sem kallað hefur verið framkvæmdaáætlun er byggð á þeirri forsendu að gengi íslensku krónunnar haldist álíka veikt og það er í dag,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is. Meira »

Tryggja að allir komist heilir heim

Í gær, 18:59 Haldið verður úti auknu umferðareftirliti í sumar á Vesturlandsvegi, Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut af hálfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra. Meira »

Fundur Háskólalestarinnar fellur niður

Frá Ísafirði. Úr myndasafni.
Í gær, 18:22 Fram kemur í tilkynningu frá Háskólalestinni að fyrirlestur um forsetaframboðið sem fara átti fram á Ísafirði í kvöld klukkan 20:00 falli niður vegna þess að öllu flugi frá Reykjavíkur til Ísafjarðar í dag hafi verið aflýst. Meira »

Meintar falsanir til lögreglunnar

Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 19:39 Tekin var ákvörðun um það í dag af yfirkjörstjórnum í Reykjavík að vísa meintum fölsunum á undirskriftum á meðmælendalistum Ástþórs Magnússonar, forsetaframbjóðanda, til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Gæsluvarðhaldið staðfest

Í gær, 18:29 Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir tveimur karlmönnum sem grunaðir eru um að hafa valdið dauða samfanga síns í fangelsinu á Litla-Hrauni fyrir rúmri viku. Héraðsdómur hafði áður úrskurðað mennina í gæsluvarðhald til 13. júní. Meira »

Húsbíll fauk af vegi

Í gær, 18:09 Húsbíll fauk í Fljótum, skammt frá Ketilási um hádegisbilið í dag. Tvennt var í bílnum og voru þau flutt á heilsugæsluna á Siglufirði til aðhlynningar. Meira »

Ólafur mælist með mest fylgi

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.
Í gær, 18:09 Mikill viðsnúningur hefur orðið í fylgi við forsetaframbjóðendurna Ólaf Ragnar Grímsson og Þóru Arnórsdóttur ef marka niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Capacent Gallup sem greint var frá í fréttum Ríkisútvarpsins. Meira »

Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð

Í gær, 17:49 Talsvert magn af fíkniefnum fannst við húsleit lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í kjallaraíbúð í miðborginni í gær.   Meira »

Yfirheyrslur héldu áfram í dag

Fangelsið á Litla-Hrauni.
Í gær, 18:00 Yfirheyrslur vegna láts fanga á Litla-Hrauni, sem talið er hafa borið að með sviplegum hætti, héldu áfram í dag og var nokkur fjöldi vitna yfirheyrður, þar á meðal fólk sem tengist fangelsinu. Meira »

Bátur fauk á annan bát

Hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í dag.
Í gær, 17:49 Afar hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í allan dag og í morgun fauk bátur á annan bát í Grindavíkurhöfn.  Meira »

Harður árekstur í Engidal

Í gær, 17:42 Harður árekstur tveggja fólksbíla varð í Engidal í Hafnarfirði, til móts við hús Actavis, skömmu eftir klukkan hálf sex í kvöld. Annar bílinn valt á hliðina við áreksturinn. Meira »

Fylgjast þarf með Krýsuvík

Frá Krýsuvík.
Í gær, 17:01 Sprungugos í norðurhluta þess sprungukerfis, sem liggur frá megineldstöðinni í Krýsuvík, geta hugsanlega komið upp í Heiðmörk eða í grennd við Elliðavatn og því er full ástæða til að fylgjast náið með því sem gerist á Krýsuvíkursvæðinu. Meira »

Harma óvæginn fréttaflutning

Í gær, 16:49 Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur leggur ríka áherslu á að mótuð verði vöktunar- og viðbragðsáætlun vegna umhverfismála á svæðinu í grennd við Hellisheiðarvirkjun. Stjórnin harmar jafnframt óvæginn fréttaflutning um tjarnarmyndun í grennd við svæðið. Meira »

33 brotlegir ökumenn myndaðir

Í gær, 17:36 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu myndaði brot 33 ökumanna í Langarima í Reykjavík í dag en fylgst var með ökutækjum sem ekið var í suðurátt að Rósarima. Meira »

Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru

Í gær, 16:51 Fylgi Ólafs Ragnars Grímssonar og Þóru Arnórsdóttur er jafnt samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar MMR sem birtar voru í dag. Samtals sögðust 41,2% ætla að kjósa hvorn forsetaframbjóðandann. Meira »

Farinn frá Landsbankanum

Jens Garðar Helgason
Í gær, 16:12 „Ég tek ekki ákvörðun fyrir aðra, en ég stofnaði í dag reikning í Sparisjóði Norðfjarðar og ætla að flytja öll mín viðskipti frá Landsbankanum.“ Þetta segir Jens Garðar Helgason, formaður bæjarráðs í Fjarðabyggð, í samtali við mbl.is. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
BÍLASTÆÐAMÁLUN, MALBIKSVIÐGERÐIR
Bílastæðamálun malbiksviðgerðir og véls...
GLÆSILEG KENNSLUBIFREIÐ
Glæsileg kennslubifreið Subaru XV 4WD - árg. 2012. Þ...
Nissan Patrol árg. 2000 til sölu
NISSAN PATROL 2,8 L. TD ELEGANCE '35 breyttur, árg. 2000 til sölu. Verð 1.350, e...
3 Silky Terrier strákar til sölu
Tilbúnir til afhendingar. Heilsufarssk., örmerktir og fullbólusettir. Ættbókarf...
 
Aðalfundur alliance

Aðalfundur 2012 Aðalfundur Alliance...
12836 fellahverfi - útboð

út­boð Reykja­víkur­bor­g Innka­upa­...
Aðalfundur búmanna hsf

Aðalfundur Aðalfundur Búmanna hsf. ver...
12834 stofnstígur - reykjavíkurborg

út­boð Reykja­víkur­bor­g Innka­upa­...