Áréttar að innistæður séu tryggðar

Gylfi Magnússon, viðskiptaráðherra, á blaðamannafundi í dag. stækka

Gylfi Magnússon, viðskiptaráðherra, á blaðamannafundi í dag. mbl.is/Golli

Gylfi Magnússon, viðskiptaráðherra, kynnti á blaðamannafundi fyrr í stuttu áréttingu ríkisstjórnar þess efnis að innistæður í innlendum viðskiptabönkum og sparisjóðum og útibúum þeirra hérlendis verði tryggðar að fullu.

Aðspurður sagði Gylfi ástæðu þess, að þetta væri áréttað á þessum tímapunkti, þá að taka af allan vafa í hugum fólks um trygginguna og til að koma í veg fyrir óróa. 

Gylfi sagði vinnu við að setja upp nýja bankakerfið á rústum þess gamla ganga í grundvallaratriðum vel. Sagði hann eftir sem áður stefnt að því að þeirri vinnu yrði lokið með sama hætti og ráð hefði verið gert fyrir, en að ferlinu seinki aðeins. 

Tók hann fram að nýju viðskiptabankarnir myndu verða stofnanir með því að ríkissjóður muni tryggja þeim nýtt fé. Nýju bankarnir munu því byrja með hreint borð.

Fram kom í máli Gylfa að Fjármálaeftirlitið starfaði áfram þótt það hefði í augnablikinu enga stjórn. Sagðist hann reikna með því að ný stjórn verði skipuð á allra næstu dögum, sennilega fyrir vikulok.  

Aðspurður hvort til greina komi að sameina banka sagðist Gylfi ekki geta svarað því að svo stöddu, þar sem ekki hefði verið tekið ákvörðun um það. Hann lýsti þeirri skoðun, að bankakerfið, eins og það var, hafi verið of stórt. 

Spurður hvaða áhrif boðaður flutningur húsnæðislána frá bönkunum til Íbúðalánasjóðs myndi hafa á eignasamsetningu þeirra og eignastöðu, sagði Gylfi, að vissulega myndi það hafa áhrif, en að búast mætti við því að ríkið myndi bæta bönkunum það upp með öðrum hætti. 

Aðspurður hvort hann teldi heppilegt að sameina Seðlabankann og Fjármálaeftirlitið sagðist Gylfi þeirrar skoðunar að sameining væri ekki nauðsynleg svo lengi sem þessar tvær stofnanir störfuðu náið saman.

Spurður um hugmyndir þess efnis að Íslendingar taki upp norsku krónuna sagði Gylfi slíkt vel geta gengið, en ljóst megi vera að það geti þó aldrei verið framtíðarlausn.

Gylfi var inntur eftir svörum um stöðu mála í tengslum við Icesave-deiluna. Sagðist hann nýkominn að þessu samningsborði. Sagðist hann telja að deilan snérist núna fyrst og fremst um lánakjörin. 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Kanadadollari. Úr myndasafni.

Segir stuðning við Kanadadollar

Í gær, 22:15 „Þetta er rætt í alvöru á Íslandi. Efnahagsráðherrann fór til Kanada fyrir sex vikum og fundaði með kanadíska seðlabankanum og með þingmönnum og að ég tel fjármálaráðuneytinu líka. Hann kom síðan aftur til Íslands og sagði opinberlega að þetta væri möguleiki sem væri ekki hægt að útiloka.“ Meira »

Brotist inn meðan íbúar skruppu frá

Í gær, 21:09 Tilkynnt var um innbrot í heimahús í Grafarvogi klukkan sjö í kvöld og söknuðu húsráðendur sjónvarps og ýmissa raftækja. Þeir brugðu sér af bæ í rúma klukkustund og þegar þeir komu heim var búið að brjóta rúðu og komust þjófarnir þannig inn. Meira »

Stefnan áframhaldandi lágt gengi

Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður.
Í gær, 20:11 „Það er alveg ljóst mál að þetta kosningaplagg ríkisstjórnarinnar sem kallað hefur verið framkvæmdaáætlun er byggð á þeirri forsendu að gengi íslensku krónunnar haldist álíka veikt og það er í dag,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is. Meira »

Tryggja að allir komist heilir heim

Í gær, 18:59 Haldið verður úti auknu umferðareftirliti í sumar á Vesturlandsvegi, Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut af hálfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra. Meira »

Fundur Háskólalestarinnar fellur niður

Frá Ísafirði. Úr myndasafni.
Í gær, 18:22 Fram kemur í tilkynningu frá Háskólalestinni að fyrirlestur um forsetaframboðið sem fara átti fram á Ísafirði í kvöld klukkan 20:00 falli niður vegna þess að öllu flugi frá Reykjavíkur til Ísafjarðar í dag hafi verið aflýst. Meira »

Meintar falsanir til lögreglunnar

Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 19:39 Tekin var ákvörðun um það í dag af yfirkjörstjórnum í Reykjavík að vísa meintum fölsunum á undirskriftum á meðmælendalistum Ástþórs Magnússonar, forsetaframbjóðanda, til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Gæsluvarðhaldið staðfest

Í gær, 18:29 Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir tveimur karlmönnum sem grunaðir eru um að hafa valdið dauða samfanga síns í fangelsinu á Litla-Hrauni fyrir rúmri viku. Héraðsdómur hafði áður úrskurðað mennina í gæsluvarðhald til 13. júní. Meira »

Húsbíll fauk af vegi

Í gær, 18:09 Húsbíll fauk í Fljótum, skammt frá Ketilási um hádegisbilið í dag. Tvennt var í bílnum og voru þau flutt á heilsugæsluna á Siglufirði til aðhlynningar. Meira »

Ólafur mælist með mest fylgi

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.
Í gær, 18:09 Mikill viðsnúningur hefur orðið í fylgi við forsetaframbjóðendurna Ólaf Ragnar Grímsson og Þóru Arnórsdóttur ef marka niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Capacent Gallup sem greint var frá í fréttum Ríkisútvarpsins. Meira »

Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð

Í gær, 17:49 Talsvert magn af fíkniefnum fannst við húsleit lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í kjallaraíbúð í miðborginni í gær.   Meira »

Yfirheyrslur héldu áfram í dag

Fangelsið á Litla-Hrauni.
Í gær, 18:00 Yfirheyrslur vegna láts fanga á Litla-Hrauni, sem talið er hafa borið að með sviplegum hætti, héldu áfram í dag og var nokkur fjöldi vitna yfirheyrður, þar á meðal fólk sem tengist fangelsinu. Meira »

Bátur fauk á annan bát

Hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í dag.
Í gær, 17:49 Afar hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í allan dag og í morgun fauk bátur á annan bát í Grindavíkurhöfn.  Meira »

Harður árekstur í Engidal

Í gær, 17:42 Harður árekstur tveggja fólksbíla varð í Engidal í Hafnarfirði, til móts við hús Actavis, skömmu eftir klukkan hálf sex í kvöld. Annar bílinn valt á hliðina við áreksturinn. Meira »

Fylgjast þarf með Krýsuvík

Frá Krýsuvík.
Í gær, 17:01 Sprungugos í norðurhluta þess sprungukerfis, sem liggur frá megineldstöðinni í Krýsuvík, geta hugsanlega komið upp í Heiðmörk eða í grennd við Elliðavatn og því er full ástæða til að fylgjast náið með því sem gerist á Krýsuvíkursvæðinu. Meira »

Harma óvæginn fréttaflutning

Í gær, 16:49 Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur leggur ríka áherslu á að mótuð verði vöktunar- og viðbragðsáætlun vegna umhverfismála á svæðinu í grennd við Hellisheiðarvirkjun. Stjórnin harmar jafnframt óvæginn fréttaflutning um tjarnarmyndun í grennd við svæðið. Meira »

33 brotlegir ökumenn myndaðir

Í gær, 17:36 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu myndaði brot 33 ökumanna í Langarima í Reykjavík í dag en fylgst var með ökutækjum sem ekið var í suðurátt að Rósarima. Meira »

Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru

Í gær, 16:51 Fylgi Ólafs Ragnars Grímssonar og Þóru Arnórsdóttur er jafnt samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar MMR sem birtar voru í dag. Samtals sögðust 41,2% ætla að kjósa hvorn forsetaframbjóðandann. Meira »

Farinn frá Landsbankanum

Jens Garðar Helgason
Í gær, 16:12 „Ég tek ekki ákvörðun fyrir aðra, en ég stofnaði í dag reikning í Sparisjóði Norðfjarðar og ætla að flytja öll mín viðskipti frá Landsbankanum.“ Þetta segir Jens Garðar Helgason, formaður bæjarráðs í Fjarðabyggð, í samtali við mbl.is. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Bílskúrssala.
Velkomin á bóka-, plötu- og flóamarkað að Melgerði 16, 108 Reykjavík. Opið alla...
Kynningartilboð á garðhúsum!!
Kofar og hús eru með kynningartilboð á garhúsum. Kynntu þér málið á www.kofarog...
Ljós microfiber sófi til sölu
Hef til sölu ljósan 3ja sæta sófa úr microfiber efni. Hann er 197 cm á lengd, of...
Open ljósaskilti
Mjög áberandi Open ljósaskilti til sölu. Ljósin blikka og fara ekki framhjá nein...
 
Sýslumaðurinn í vík - framhald uppboðs

Uppboð www.naudungarsolur.is Framhald up...
Aðalfundur búmanna hsf

Aðalfundur Aðalfundur Búmanna hsf. ver...
Aðalfundur félags háskólakvenna

Félag háskólakvenna og kvenstúdenta Aðal...
Sýslumaðurinn í hafnarfirði - framhald uppboð

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....