Ódýrara að ráða Færeyinga

ÞG Verk hefur verið með umsvifamestu byggingafyrirtækjum landsins. stækka

ÞG Verk hefur verið með umsvifamestu byggingafyrirtækjum landsins. Ásdís Ásgeirsdóttir

Það væri ódýrara fyrir ÞG Verk að ráða Færeyinga til starfa í Færeyjum en að senda þangað íslenska starfsmenn, að því er fram kemur í bréfi sem Þorvaldur Gissurarson, forstjóri ÞG Verks, hefur sent Finnbirni A. Hermannsyni, formanni Samiðnar, vegna viðtals við Finnbjörn á mbl.is 31. janúar.

Í viðtalinu kvaðst Finnbjörn m.a. hafa vitneskju um að ÞG Verk hafi nýtt sér gengismun á íslensku og færeysku krónunni í tengslum við starfsemi sína í Færeyjum. Þorvaldur segir að með ummælum sínum dragi Finnbjörn upp neikvæða mynd af sjálfsbjargarviðleitni ÞG Verks og geri jafnframt lítið úr þeim íslensku iðnaðarmönnum sem starfi á vegum fyrirtækisins í Færeyjum, en væru annars líkast til atvinnulausir á Íslandi. Þá segir í bréfinu:

„Í nóvember sl. gerði ÞG verk samning við færeyskt verktakafyrirtæki um útselda vinnu iðnaðarmanna (5 menn). Færeyska verktakafyrirtækið greiðir samkvæmt reikningum í íslenskum krónum og tekur þ.a.l. alla gengisáhættu og/eða gengishagnað. Hvað varðar fullyrðingar þínar um mun á launum í Færeyjum og á Íslandi vil ég upplýsa þig um eftirfarandi:
·         Trésmiðir hjá ÞG verk hafa u.þ.b 2.000 kr. í dagvinnulaun og u.þ.b 3.600 í eftirvinnu á klst.
·         Starfsmenn í Færeyjum fá greiddan vinnutíma í ferðalögum til og frá Færeyjum 8 klst. fyrir hverja ferð.
·         ÞG verk greiðir flugfargjöld og annan kostnað vegna starfsmanna í Færeyjum.
·         Starfsmenn í Færeyjum fá greidda dagpeninga í dönskum krónum  DKK 200 fyrir hvern dag.
·         Starfsmenn í Færeyjum fá gistingu og uppihald án endurgjalds.
Algeng  dagvinnulaun iðnaðarmanna í Færeyjum eru um DKK 1.400, eða ISK 2.800 sé miðað við gengi 20,0.“

Þorvaldur segir að tilgangurinn með því að senda starfsmenn til Færeyja hafi verið að forðast enn frekari uppsagnir. Jafnvel þótt það þýddi að greiða þyrfti með starfsmönnunum tímabundið. Þá gagnrýnir hann að formaður sambands iðnfélaga skuli hafa viðhaft þau ummæli sem hann hafði.

mbl.is/Ómar

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Kanadadollari. Úr myndasafni.

Segir stuðning við Kanadadollar

Í gær, 22:15 „Þetta er rætt í alvöru á Íslandi. Efnahagsráðherrann fór til Kanada fyrir sex vikum og fundaði með kanadíska seðlabankanum og með þingmönnum og að ég tel fjármálaráðuneytinu líka. Hann kom síðan aftur til Íslands og sagði opinberlega að þetta væri möguleiki sem væri ekki hægt að útiloka.“ Meira »

Brotist inn meðan íbúar skruppu frá

Í gær, 21:09 Tilkynnt var um innbrot í heimahús í Grafarvogi klukkan sjö í kvöld og söknuðu húsráðendur sjónvarps og ýmissa raftækja. Þeir brugðu sér af bæ í rúma klukkustund og þegar þeir komu heim var búið að brjóta rúðu og komust þjófarnir þannig inn. Meira »

Stefnan áframhaldandi lágt gengi

Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður.
Í gær, 20:11 „Það er alveg ljóst mál að þetta kosningaplagg ríkisstjórnarinnar sem kallað hefur verið framkvæmdaáætlun er byggð á þeirri forsendu að gengi íslensku krónunnar haldist álíka veikt og það er í dag,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is. Meira »

Tryggja að allir komist heilir heim

Í gær, 18:59 Haldið verður úti auknu umferðareftirliti í sumar á Vesturlandsvegi, Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut af hálfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra. Meira »

Fundur Háskólalestarinnar fellur niður

Frá Ísafirði. Úr myndasafni.
Í gær, 18:22 Fram kemur í tilkynningu frá Háskólalestinni að fyrirlestur um forsetaframboðið sem fara átti fram á Ísafirði í kvöld klukkan 20:00 falli niður vegna þess að öllu flugi frá Reykjavíkur til Ísafjarðar í dag hafi verið aflýst. Meira »

Meintar falsanir til lögreglunnar

Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 19:39 Tekin var ákvörðun um það í dag af yfirkjörstjórnum í Reykjavík að vísa meintum fölsunum á undirskriftum á meðmælendalistum Ástþórs Magnússonar, forsetaframbjóðanda, til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Gæsluvarðhaldið staðfest

Í gær, 18:29 Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir tveimur karlmönnum sem grunaðir eru um að hafa valdið dauða samfanga síns í fangelsinu á Litla-Hrauni fyrir rúmri viku. Héraðsdómur hafði áður úrskurðað mennina í gæsluvarðhald til 13. júní. Meira »

Húsbíll fauk af vegi

Í gær, 18:09 Húsbíll fauk í Fljótum, skammt frá Ketilási um hádegisbilið í dag. Tvennt var í bílnum og voru þau flutt á heilsugæsluna á Siglufirði til aðhlynningar. Meira »

Ólafur mælist með mest fylgi

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.
Í gær, 18:09 Mikill viðsnúningur hefur orðið í fylgi við forsetaframbjóðendurna Ólaf Ragnar Grímsson og Þóru Arnórsdóttur ef marka niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Capacent Gallup sem greint var frá í fréttum Ríkisútvarpsins. Meira »

Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð

Í gær, 17:49 Talsvert magn af fíkniefnum fannst við húsleit lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í kjallaraíbúð í miðborginni í gær.   Meira »

Yfirheyrslur héldu áfram í dag

Fangelsið á Litla-Hrauni.
Í gær, 18:00 Yfirheyrslur vegna láts fanga á Litla-Hrauni, sem talið er hafa borið að með sviplegum hætti, héldu áfram í dag og var nokkur fjöldi vitna yfirheyrður, þar á meðal fólk sem tengist fangelsinu. Meira »

Bátur fauk á annan bát

Hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í dag.
Í gær, 17:49 Afar hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í allan dag og í morgun fauk bátur á annan bát í Grindavíkurhöfn.  Meira »

Harður árekstur í Engidal

Í gær, 17:42 Harður árekstur tveggja fólksbíla varð í Engidal í Hafnarfirði, til móts við hús Actavis, skömmu eftir klukkan hálf sex í kvöld. Annar bílinn valt á hliðina við áreksturinn. Meira »

Fylgjast þarf með Krýsuvík

Frá Krýsuvík.
Í gær, 17:01 Sprungugos í norðurhluta þess sprungukerfis, sem liggur frá megineldstöðinni í Krýsuvík, geta hugsanlega komið upp í Heiðmörk eða í grennd við Elliðavatn og því er full ástæða til að fylgjast náið með því sem gerist á Krýsuvíkursvæðinu. Meira »

Harma óvæginn fréttaflutning

Í gær, 16:49 Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur leggur ríka áherslu á að mótuð verði vöktunar- og viðbragðsáætlun vegna umhverfismála á svæðinu í grennd við Hellisheiðarvirkjun. Stjórnin harmar jafnframt óvæginn fréttaflutning um tjarnarmyndun í grennd við svæðið. Meira »

33 brotlegir ökumenn myndaðir

Í gær, 17:36 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu myndaði brot 33 ökumanna í Langarima í Reykjavík í dag en fylgst var með ökutækjum sem ekið var í suðurátt að Rósarima. Meira »

Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru

Í gær, 16:51 Fylgi Ólafs Ragnars Grímssonar og Þóru Arnórsdóttur er jafnt samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar MMR sem birtar voru í dag. Samtals sögðust 41,2% ætla að kjósa hvorn forsetaframbjóðandann. Meira »

Farinn frá Landsbankanum

Jens Garðar Helgason
Í gær, 16:12 „Ég tek ekki ákvörðun fyrir aðra, en ég stofnaði í dag reikning í Sparisjóði Norðfjarðar og ætla að flytja öll mín viðskipti frá Landsbankanum.“ Þetta segir Jens Garðar Helgason, formaður bæjarráðs í Fjarðabyggð, í samtali við mbl.is. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
www.keyrsla.is Sendibílar
Heimsendingar - Búslóðaflutningar - Vörudreifing - fyrirtækjaflutningar. Öflug,G...
Gisting í Eyjafirði
Bjóðum upp á gistingu í íbúð með tveimur tveggja manna herbergjum með uppábúnum ...
4 stólar til sölu - mjög gott verð !
Þessir flottu stólar eru til sölu aðeins 4.000 kr. stk. Eru eins og nýjir (mjög ...
BÍLASTÆÐAMÁLUN, MALBIKSVIÐGERÐIR
Bílastæðamálun malbiksviðgerðir og véls...
 
Sýslumaðurinn í vík - framhald uppboðs

Uppboð www.naudungarsolur.is Framhald up...
Ársfundur vina vatnajökuls

Ársfundur Vina Vatnajökuls, hollvinasamt...
Aðstoðarskólastjóri
Grunn-/framhaldsskóla
Blönduskóli Aðstoðarskólastjóri Staða...
Breyting á aðalskipulagi norðurþings

Norðurþing Skipulags- og byggingarfullt...