Samstaða um að móta nýja menntastefnu
Eining var í borgarstjórn Reykjavíkur um tillögu borgarfulltrúa Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks um mótun nýrrar menntastefnu. Var tillagan samþykkt með atkvæðum allra 15 borgarfulltrúanna og sömuleiðis viðbótartillaga Samfylkingarinnar.
Samkvæmt tillögunni verður skipaður vinnuhópur, sem á að móta nýja menntastefnu á grundvelli nýrra laga um leikskóla, grunnskóla, framhaldsskóla, menntun og ráðningu kennara og skólastjórnenda. Huga skuli sérstaklega að eflingu samstarfs milli skólastiga og samvinnu tónlistarskóla, leikskóla og grunnskóla.
Þá á hópurinn einnig að huga sérstaklega að enn frekari samþættingu skólastarfs við frístundastarf sem rekið er á vegum íþrótta- og tómstundaráðs. Hópur um mótun nýrrar menntastefnu taki sérstaklega til athugunar tengsl milli grunnskóla og framhaldsskóla og haldi áfram þeirri vinnu sem hófst árið 2006 og miðaði að hugsanlegri yfirfærslu framhaldsskóla frá ríki til Reykjavíkurborgar.
Borgarráð mun skipa vinnuhópinn, en í honum eiga að sitja fulltrúar úr menntaráði, leikskólaráði og íþrótta- og tómstundaráði, alls fimm fulltrúar. Fræðslustjóri, sviðstjóri leikskólasviðs og framkvæmdastjóri íþrótta- og tómstundaráðs skulu starfa með hópnum. Hópurinn skal hafa samráð við nemendur, foreldra, kennara, skólastjórnendur og aðra starfsmenn borgarinnar eftir því sem tilefni gefst.
Innlent »
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 12. febrúar 2009, Innlent Móta á nýja menntastefnu í Reykjavík
- Þriðjudagur, 1. september 2009, Innlent Borgarbúar geti tekið þátt í mótun fjárhagsáætlunar
- Þriðjudagur, 5. maí 2009, Innlent Borgarfulltrúar vilja alþjóðasamstarf
- Mánudagur, 26. maí 2008, Innlent Frávísunartillaga um framhaldsskólafrumvarp felld
- Þriðjudagur, 3. febrúar 2009, Innlent Orkusölusamningur staðfestur
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli




































