Verklagsreglur aðgengilegar á vef Kaupþings
Stjórn Nýja Kaupþings banka hefur samþykkt verklagsreglur um úrlausnir útlánavandamála fyrirtækja. Sjónarmiðin sem liggja til grundvallar verklagsreglunum eru m.a. yfirlýsing ríkisstjórnarinnar um aðgerðir til að bæta rekstrarumhverfi fyrirtækja frá 2. desember sl.
Í tilkynningu Kaupþings segir að í ljósi þess að bankinn tekur til starfa við óvenjulegar aðstæður, þar sem traust almennings til fjármálastofnana er í lágmarki og mörg heimili og fyrirtæki eigi við fjárhagserfiðleika að etja, leggur stjórn bankans þunga áherslu á að endurvinna það traust sem hefur glatast.
Í því augnmiði hefur hún samþykkt áðurgreindar verklagsreglur sem er ætlað að tryggja gagnsæi í ákvarðanatöku bankans og hlutlæga afgreiðslu, þar sem áhersla er lögð á samræmd vinnubrögð gagnvart fyrirtækjum í tímabundnum erfiðleikum.
Með þessum viðmiðum er leitast við að takmarka tjón samfélagsins í töpuðum störfum og framleiðslu sem getur hlotist af fjárhagserfiðleikum lífvænlegra fyrirtækja ef ekki er rétt á málum haldið. Sjónarmiðin sem liggja til grundvallar verklagsreglunum eru auk almennra góðra venja í bankaviðskiptum, álit Samkeppniseftirlitsins nr. 3/2008, yfirlýsing ríkisstjórnar Íslands frá 2. desember 2008 og Lundúnaleiðin (e. London Approach) sem eru alþjóðlegar viðmiðunarreglur við úrlausn skuldavandamála.
Verklagsreglum þessum er fyrst og fremst ætlað að veita viðskiptavinum innsýn í hvernig bankinn lítur á og greinir úrlausnarmál sín, fremur en að afgreiðsla mismunandi mála verði öll felld vélrænt í sama mót. Eftir sem áður byggir bankastarfsemi fyrst og fremst á þjónustu hæfs starfsfólks með þekkingu og reynslu til að takast á við fjölbreytilegar aðstæður viðskiptavina.
Umboðsmaður viðskiptavina
Til að tryggja jafnræði á meðal viðskiptavina hefur stjórn Nýja Kaupþings banka ráðið Brynhildi Georgsdóttur í starf umboðsmann viðskiptavina. Umboðsmaður viðskiptavina starfar í umboði stjórnar og fylgist með að meðhöndlun mála sé í samræmi við skýrar verklagreglur og að sanngirni sé gætt við úrlausn þeirra. Umboðsmaður yfirfer verklagsreglur og vinnuferla bankans í þeim tilgangi að byggja upp traust á starfsemi hans. Umboðsmaður mun meðal annars yfirfara úrlausn útlánavandamála fyrirtækja og tryggja að viðskiptavinum sé ekki mismunað, afgreiðsla sé gegnsæ og gætt sé að samkeppnissjónarmiðum.
Innlent »
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 28. janúar 2009, Innlent Kaupþing ræður umboðsmann viðskiptavina
- Fimmtudagur, 4. desember 2008, Innlent Boltinn hjá bankaráðunum
- Miðvikudagur, 25. nóvember 2009, Innlent Bankar fara ekki að reglum
- Fimmtudagur, 4. febrúar 2010, Innlent Hagar í Kauphöllina
- Mánudagur, 8. desember 2008, Innlent Kaupþing auglýsir eftir umboðsmanni viðskiptavina
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli




































