Fundu um 100 kannabisplöntur

Kannabisplöntur. Myndin tengist efni fréttarinnar ekki beint.
Kannabisplöntur. Myndin tengist efni fréttarinnar ekki beint.

Tveir karlmenn á þrítugsaldri voru handteknir seint í gærkvöldi þegar lögreglan lagði hald á um 100 kannabisplöntur og tækjabúnað í iðnaðarhúsnæði í Hafnarfirði. Plönturnar voru á lokastigi ræktunar. Að sögn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu hafa báðir mennirnir komið við sögu lögreglu áður. Málið er í rannsókn.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert