Efasemdir um undirskriftalista
Keflavíkurflugvöllur. Árvakur
„Á öflugum og fjölmennum félagsfundi með öryggisvörðum var samþykkt að leggja það til við Keflavíkurflugvöll ohf. að fara í flatan niðurskurð á launum í stað uppsagna og var þá rætt um 12,5-15% niðurskurð á launum umfram 300.000 krónur á mánuði," segir Þórarinn Eyfjörð, framkvæmdastjóri SFR – stéttarfélags í almannaþjónustu, um uppsagnir á 24 starfsmönnum í öryggisvörslu á vellinum.
„Starfsfólkið vildi sameiginlegt átak vinnustaðarins um að gæta jafnræðis með þessum hætti. Við fórum með þessi skila boð á fund með yfirstjórninni og komum því á framfæri að SFR legði á það ríka áherslu að farin yrði sú leið sem fundurinn samþykkti.“
Yfirstjórn fyrirtækisins, sem tjáir sig ekki um málið, vísaði í undirskriftalista frá hluta starfsmanna sem höfnuðu flatri launaskerðingu.
Hann segir trúverðugleika listans dreginn í efa.
„Það eru uppi efasemdir um að þessi listi sé réttur og eigi sér eitthvert raunverulegt bakland því það hefur enginn fengið að sjá hann.
Þegar yfirstjórn fyrirtækisins var búin að fá þennan lista í hendur taldi hún sér ekki lengur stætt á að fara í flatan niðurskurð.
Þetta finnst okkur vera fyrirsláttur,“ segir Þórarinn og heldur áfram.
„Síðan var mönnum stillt upp við vegg og þeim sagt að annaðhvort yrði þeim sagt upp eða þeir tækju 50% starf og þá kæmi Atvinnuleysistryggingasjóður á móti.
Þeir fóru mest eftir starfsaldri, að sögn, og var yngri starfsmönnum boðin uppsögn strax eða 50% skerðing þegar í stað.
Hér er verið að setja starfsfólkinu afarkosti.
Ríkisstjórnin sem á þetta fyrirtæki hefur sagt að hún muni verja heimilin. Hvar er stjórnin núna?“
Innlent »
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 5. febrúar 2009, Innlent Fyrir neðan allar hellur
- Föstudagur, 12. febrúar 2010, Innlent Þjónusta í rúma öld er á enda
- Laugardagur, 5. september 2009, Innlent Krefst heiðarleika af hálfu stjórnvalda
- Miðvikudagur, 4. júní 2008, Innlent Nýir stúdentshúfusalar seldu nóg
- Laugardagur, 2. maí 2009, Innlent Amma á Facebook
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli




































