Mælt fyrir frumvörpum um greiðsluaðlögun
Ragna Árnadóttir, nýr dómsmálaráðherra, mælti í dag fyrir sínu fyrsta máli á Alþingi, frumvarpi til laga um greiðsluaðlögun. Mælt verður fyrir tveimur þingmannafrumvörpum um sama efni síðar í dag.
Annars vegar mælir Björn Bjarnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, fyrir frumvarpi um greiðsluaðlögun en um er að ræða frumvarp sem unnið var í dómsmálaráðuneytinu þegar Björn var dómsmálaráðherra. Leggur Björn það fram fyrir hönd sjálfstæðismanna.
Þá mælir Siv Friðleifsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, fyrir frumvarpi sem hún hefur lagt fram um greiðsluaðlögun. Allir þingmenn Framsóknarflokksins standa að frumvarpinu.
Greiða þurfti atkvæði um afbrigði frá þingsköpum vegna þess að of skammur tími var liðinn frá því frumvörp dómsmálaráðherra og Björns voru lögð fram á Alþingi. Sjálfstæðismenn sögðust myndu styðja afbrigðin vegna þess að stjórnarfrumvarpið væri nánast eins og frumvarp Björns.
Frumvörpin fjalla um úrræði fyrir þá sem glíma við verulegan fjárhagsvanda, til þess að forðast gjaldþrotaskipti. Tilgangur stjórnarfrumvarpsins er að hjálpa einstaklingum sem ekki stunda atvinnurekstur, eða hafa hætt rekstri, að endurskipuleggja fjármálin á sama hátt.
Sigurður Kári Kristjánsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, spurði Rögnu hver væri munurinn á frumvarpinu, sem hún mælti fyrir, og því frumvarpi sem Björn lagði fram.
Ragna svaraði að þessi tvö mál væru áþekk og frumvarpsdrögin hefðu upphaflega verið samin af réttarfarsnefnd að frumkvæði Björns sem dómsmálaráðherra. Sagði Ragna, að munurinn á frumvörpunum væri einkum sá, að gildissviðið í stjórnarfrumvarpinu væri víkkað þannig að það nái í afmörkuðum tilfellum til einstaklinga sem stunda atvinnurekstur. Þá sé þá grundvallarmunur, að stjórnarfrumvarpið nái einnig til veðkrafna sem eru með veð í íbúðarhúsnæði hjá lánastofnunum í eigu ríkisins.
Siv Friðleifsdóttir sagði, að svo virtist sem ræður sjálfstæðismanna um frumvarpið virtust vera keppni um það hver pissaði lengst og hver hefði ljósritað hraðast. Hins vegar væri ljóst, að í þeirri keppni hefðu framsóknarmenn vinninginn því þeirra frumvarp hafi komið fram fyrst á Alþingi.
Bloggað um fréttina
-
Hallur Magnússon #9541 Dómsmálaráðherra fangi í sandkassaleik Samfylkingar og íhalds -
Gísli Tryggvason Allir vildu Lilju kveðið hafa -
Halldór Halldórsson Pissu áhugi Sivjar!
Innlent »
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 12. mars 2009, Innlent Þingstörf þenjast út
- Miðvikudagur, 19. nóvember 2008, Innlent Breytt lög í stað nýrra
- Mánudagur, 22. febrúar 2010, Innlent Uppboðum enn frestað um þrjá mánuði
- Þriðjudagur, 7. apríl 2009, Innlent Dagskrártillaga felld
- Föstudagur, 30. október 2009, Innlent 783 eignir á uppboði
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli



































