Hvalveiðar í sátt við ferðaþjónustu

mbl.is/ÞÖK

„Formannafundur Starfsgreinasambands Íslands, fordæmir illa ígrunduð vinnubrögð fyrrverandi sjávarútvegsráðherra, Einars K. Guðfinnssonar, að úthluta völdum einstaklingum hvalveiðileyfum til fimm ára með útgáfu reglugerðar á síðasta starfsdegi sínum,“ segir í ályktun formannafundarins sem samþykkt var í gær.

Í ályktun formannafundar SGS segir að leggja beri áherslu á sjálfbæra nýtingu auðlinda í þágu atvinnulífsins og verðmætasköpunar fyrir þjóðarbúið. Ábyrgar veiðar byggi á vísindalegu mati, markvissu eftirliti, hagkvæmni og umhverfissjónarmiðum. Í þessu sambandi séu hvalveiðar einnig mikilvægar, en gæta verði þess að þær veiðar séu stundaðar í sátt og í samráði við ferðaþjónustugreinar og hvalaskoðunarfyrirtæki.

Þá segir að ferðaþjónustan sé afar þýðingarmikil og vaxandi frumatvinnugrein á Íslandi, sem eigi í samkeppni við erlendan markað og þurfi á jákvæðri ímynd að halda. Formannafundur SGS telur að vel megi samræma sjónarmið beggja greinanna, þannig að sem flestir geti vel við unað.

„Engin umræða hefur átt sér stað í samfélaginu um það hverjir fái að veiða hval, hvenær, hvar og hvernig. Fundurinn fordæmir þess vegna  illa ígrunduð vinnubrögð fyrrverandi sjávarútvegsráðherra, Einars K. Guðfinnssonar, að úthluta völdum einstaklingum hvalveiðileyfum til fimm ára með útgáfu reglugerðar á síðasta starfsdegi sínum.  Slíkt er óhæfa,“ segir í ályktun formannafundar SGS sem samþykkt var með þorra atkvæða gegn einu í gær.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert