Lögðu áherslu á sterk tengsl
Fjármálaráðherrarnir Steingrímur J. Sigfússon og Kristin Halvorsen á fundi sínum í Þjóðmenningarhúsinu. Morgunblaðið/ Golli
„Þetta var góður og gagnlegur fundur,“ sagði Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, á blaðamannafundi fjármálaráðherra Noregs og Íslands sem haldinn var í Þjóðmenningarhúsinu nú síðdegis. Lagði hann áherslu á hin góðu tengsl sem verið hafa milli Íslands og Noregs í áranna rás.
„Það er langt síðan þessi fundur var áformaður,“ sagði Kristin Halvorsen, fjármálaráðherra Noregs, og rifjaði upp að tilefni þess að hún er á landinu einmitt núna sé vegna þess að henni hafi verið boðið að vera gestur á tíu ára afmælishátíð Vinstrihreyfingarinnar-græns framboðs sem fram fer í kvöld.
Halvorsen minnti á fundinum á að Norðmenn hefðu fylgst náið með stöðu máli á Íslandi. Lagði hún áherslu á sterk tengsl landanna tveggja og að Norðmenn teldu sig verða að standa þétt upp við bakið á Íslendingum í þeirri viðkvæmu stöðu sem Íslendingar væru í kjölfar fjármálakreppunnar. Lagði hún þó áherslu á að ekki væri til nein auðveld lausn út úr vandanum og að málum yrði ekki kippt snögglega í liðinn.
Ræddu hugsanlegt myntsamstarf
Í máli ráðherranna tveggja kom fram að þeir hefðu rætt hugsanlegt myntsamstarf landanna tveggja. Halvorsen var í framhaldinu spurð hversu alvarleg umræðan um hugsanlegt myntsamstarf væri. Sagðist hún vel skilja að Íslendingar hefðu áhuga á að taka upp stöðugri gjaldmiðil.
Halvorsen benti á þá þrjá möguleika sem væru í stöðunni fyrir Íslendinga á núverandi tímapunkti, þ.e. að Íslendingar héldu íslensku myntinni, tækju upp myntsamstarf eða skiptu um mynt. Lagði hún þó áherslu á að ákvörðun um myntina þyrfti að taka í góðri sátt við þjóðina.
„En ég hef fullan skilning á því að íslensk stjórnvöld hafi áhuga á myntsamstarfi við Noreg og skoði það sem einn möguleika, en vissulega eru aðrir möguleikar í stöðunni,“ sagði Halvorsen.
Minnti hún á að á sama tíma og norska krónan væri viðkvæm fyrir sveiflum í olíuverðum þá væri íslenska krónan viðkvæm fyrir sveiflum í verðlagningu fiskafurða. Þannig hefðu ólíkir hlutir áhrif á gjaldmiðlana tvo.
Innlent »
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Laugardagur, 30. janúar 2010, Innlent Guðmundur Rúnar efstur í Hafnarfirði
- Mánudagur, 23. nóvember 2009, Innlent Rök fyrir verðtryggingu brostin
- Föstudagur, 29. janúar 2010, Innlent Grunuð um stórfelld gjaldeyrissvik
- Mánudagur, 9. nóvember 2009, Innlent Stúdentar reiðir
- Laugardagur, 13. september 2008, Innlent Rannsóknarboranir næsta sumar?
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli



































