Sparnaður á geðdeild FSA 6-7 milljónir í ár

Sjúkrahúsið á Akureyri sendi frá sér eftirfarandi tilkynningu í dag:

„Vegna umfjöllunar undanfarnar vikur um þjónustu Sjúkrahússins á Akureyri, m.a. um þjónustu geðdeildar sjúkrahússins, vilja framkvæmdastjórn og stjórnendur í lækningum og hjúkrun á geðdeild sjúkrahússins koma eftirfarandi á framfæri.

Á undanförnum árum hefur orðið að hagræða í rekstri Sjúkrahússins á Akureyri (FSA). Við árlegum sparnaðarkröfum hefur verið brugðist á þann hátt að almennt hefur ýtrasta sparnaðar verið gætt, svo sem í innkaupum og yfirvinna minnkuð. Einnig hafa ýmsar deildir verið sameinaðar í sparnaðarskyni. Handlækninga-, bæklunar-, háls-, nef- og eyrna- og augndeild voru, svo dæmi sé tekið, allar sameinaðar árið 2004 og árið 2008 var kvennadeild sameinuð þessum einingum. Þá var dagdeildar- og göngudeildarstarfsemi lyflækninga flutt í nýja dag- og göngudeild lyflækninga á árinu 2007. Ýmsar þessar ráðstafana hafa verið umdeildar en augljóst er að þær hafa skilað talsverðri hagræðingu með lítilli röskun á þjónustu við sjúklinga.

Nú hefur m.a. verið ákveðið að hagræða í starfsemi geðdeildar. Geðdeildin hefur undanfarin ár skipst í þrjár starfseiningar; bráðalegudeild á jarðhæð aðalbyggingar sjúkrahússins frá 1986 með 10 sólarhringsrýmum og um 250 innlögnum á ári, dagdeild að Skólastíg 7 frá 1996 þar sem 30 til 40 sjúklingar á ári hafa fengið sérhæfða meðferð og endurhæfingu og göngudeild í aðalbyggingu sjúkrahússins frá 2001 þar sem um 700 einstaklingar hafa fengið greiningu og meðferð árlega. Sérfræðingar deildarinnar sinna einnig sjúklingum á bráðamóttöku og öðrum deildum sjúkrahússins. Legudeild og göngudeild hafa samnýtt starfsfólk og húsnæði á þriðju hæð aðalbyggingar.

Vegna fjárhagsstöðu FSA sem m.a. er tilkomin vegna endurskoðaðra fjárlaga sem samþykkt voru í ljósi aðstæðna hér á landi, s.l. desember, þarf að útfæra sparnaðarleiðir upp á 250 – 300 milljónir króna. Einn þáttur í þeim aðgerðum var ákvörðun um að loka dagdeild geðdeildar og opna síðar á árinu nýja dag- og göngudeild geðdeildar í því húsnæði sem hjúkrunardeildin Sel var í áður.  Það húsnæði býður upp á mun meiri möguleika á þróun dagdeildarþjónustu en húsnæðið að Skólastíg 7.  Húsnæðið að Skólastíg 7 verður selt og andvirði þess notað til að laga húsnæði Sels að nýrri starfsemi. Stjórnendum lækninga og hjúkrunar á geðdeildinni var ljóst  að ekki yrði hægt að undanskilja geðdeildina sparnaðarkröfum, þótt sterkar líkur væru á að eftirspurn eftir þjónustu deildarinnar myndi aukast á næstu misserum vegna vaxandi atvinnuleysis, því féllust þeir á að vinna með framkvæmdastjórninni að útfærslu á þessum sparnaðar-  og hagræðingaraðgerðum. Aðrar sparnaðarleiðir voru taldar mundu skerða bráðaþjónustu deildarinnar, sem bar að verja.

Lækkun á rekstrarkostnaði geðdeildar er fyrst og fremst fólginn í fækkun stöðugilda og samnýtingu starfsmanna. Með þessum aðgerðum er áætlað að rekstrarkostnaður lækki um  6-7 milljónir króna  árið 2009 og  17-18 milljónir króna  árið 2010. Þeim sjúklingum sem fengið höfðu vilyrði um vist á dagdeildinni í febrúar 2009 var beint aftur til tilvísandi lækna, sem ber að veita þeim úrlausn á vanda sínum í bið eftir meðferðarúrræði á nýrri deild.

Hinn 12. janúar s.l. skipaði framkvæmdastjórn sjúkrahússins vinnuhóp um stofnun nýrrar dag- og göngudeildar geðdeildar í húsnæði Sels. Í hópnum eru: Staðgengill framkvæmdastjóra lækninga, forstöðulæknir geðdeildar, yfirlæknir göngudeildar geðdeildar, hjúkrunardeildarstjóri geðdeildar og iðjuþjálfi. Verkefni vinnuhópsins er að gera tillögur umfyrirkomulag þjónustu og skipuleggja nýja dag- og göngudeild í húsnæði Sels.  Einnig mun hópurinn gera tillögur um nauðsynlegar breytingar á húsnæðinu. Vinnuhópurinn hefur þegar tekið til starfa og á að skila tillögum sínum til framkvæmdastjórnar FSA fyrir 1. mars n.k. Starfsemi nýrrar dag- og göngudeildar geðdeildar hefst í húsnæði Sels 1. október n.k. Yfirlæknir deildarinnar verður Árni Jóhannesson yfirlæknir núverandi göngudeildar geðdeildar FSA. Gert er ráð fyrir að hefðbundin göngudeildarstarfsemi, greiningar- og meðferðarviðtöl, geti þá hafist af fullum krafti með sama sniði og nú er. Vinnuhópurinn starfar nú að skipulagningu  á fyrirkomulagi dagþjónustunnar. Einhugur er um að hún verði byggð á gagnreyndum aðferðum og árangursmælingum. Stefnt er að því að fjölbreytt hópmeðferð verði helsta meðferðarformið í dagþjónustunni. Vonir standa til að hægt verði að hefja þennan þátt starfseminnar samtímis, en ljóst er að meðferðarstarfið þarf góðan tíma til aðlögunar og þróunar. Rekstur dag- og göngudeildar mun gera kleift að nýta starfskrafta á annan hátt en áður og lækka m.a. stjórnunarkostnað. Þannig verður unnt að draga úr þeirri skerðingu á þjónustu sem fækkun stöðugilda veldur.

Það er von okkar að þessar ráðstafanir ásamt fjölmörgum öðrum verði til þess að hægt verði að reka áfram góða heilbrigðisþjónustu á FSA.“

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Kanadadollari. Úr myndasafni.

Segir stuðning við Kanadadollar

Í gær, 22:15 „Þetta er rætt í alvöru á Íslandi. Efnahagsráðherrann fór til Kanada fyrir sex vikum og fundaði með kanadíska seðlabankanum og með þingmönnum og að ég tel fjármálaráðuneytinu líka. Hann kom síðan aftur til Íslands og sagði opinberlega að þetta væri möguleiki sem væri ekki hægt að útiloka.“ Meira »

Brotist inn meðan íbúar skruppu frá

Í gær, 21:09 Tilkynnt var um innbrot í heimahús í Grafarvogi klukkan sjö í kvöld og söknuðu húsráðendur sjónvarps og ýmissa raftækja. Þeir brugðu sér af bæ í rúma klukkustund og þegar þeir komu heim var búið að brjóta rúðu og komust þjófarnir þannig inn. Meira »

Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi

04:53 Sunnan- og suðvestanátt verður á landinu í dag, yfirleitt 5-15 m/s, hvassast norðan- og vestanlands. Rigning við Breiðafjörð og á Vestfjörðum, léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi, en skýjað og súld með köflum syðra. Meira »

Meintar falsanir til lögreglunnar

Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 19:39 Tekin var ákvörðun um það í dag af yfirkjörstjórnum í Reykjavík að vísa meintum fölsunum á undirskriftum á meðmælendalistum Ástþórs Magnússonar, forsetaframbjóðanda, til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Gæsluvarðhaldið staðfest

Í gær, 18:29 Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir tveimur karlmönnum sem grunaðir eru um að hafa valdið dauða samfanga síns í fangelsinu á Litla-Hrauni fyrir rúmri viku. Héraðsdómur hafði áður úrskurðað mennina í gæsluvarðhald til 13. júní. Meira »

Stefnan áframhaldandi lágt gengi

Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður.
Í gær, 20:11 „Það er alveg ljóst mál að þetta kosningaplagg ríkisstjórnarinnar sem kallað hefur verið framkvæmdaáætlun er byggð á þeirri forsendu að gengi íslensku krónunnar haldist álíka veikt og það er í dag,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is. Meira »

Tryggja að allir komist heilir heim

Í gær, 18:59 Haldið verður úti auknu umferðareftirliti í sumar á Vesturlandsvegi, Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut af hálfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra. Meira »

Fundur Háskólalestarinnar fellur niður

Frá Ísafirði. Úr myndasafni.
Í gær, 18:22 Fram kemur í tilkynningu frá Háskólalestinni að fyrirlestur um forsetaframboðið sem fara átti fram á Ísafirði í kvöld klukkan 20:00 falli niður vegna þess að öllu flugi frá Reykjavíkur til Ísafjarðar í dag hafi verið aflýst. Meira »

Húsbíll fauk af vegi

Í gær, 18:09 Húsbíll fauk í Fljótum, skammt frá Ketilási um hádegisbilið í dag. Tvennt var í bílnum og voru þau flutt á heilsugæsluna á Siglufirði til aðhlynningar. Meira »

Yfirheyrslur héldu áfram í dag

Fangelsið á Litla-Hrauni.
Í gær, 18:00 Yfirheyrslur vegna láts fanga á Litla-Hrauni, sem talið er hafa borið að með sviplegum hætti, héldu áfram í dag og var nokkur fjöldi vitna yfirheyrður, þar á meðal fólk sem tengist fangelsinu. Meira »

Ólafur mælist með mest fylgi

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.
Í gær, 18:09 Mikill viðsnúningur hefur orðið í fylgi við forsetaframbjóðendurna Ólaf Ragnar Grímsson og Þóru Arnórsdóttur ef marka niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Capacent Gallup sem greint var frá í fréttum Ríkisútvarpsins. Meira »

Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð

Í gær, 17:49 Talsvert magn af fíkniefnum fannst við húsleit lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í kjallaraíbúð í miðborginni í gær.   Meira »

Bátur fauk á annan bát

Hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í dag.
Í gær, 17:49 Afar hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í allan dag og í morgun fauk bátur á annan bát í Grindavíkurhöfn.  Meira »

33 brotlegir ökumenn myndaðir

Í gær, 17:36 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu myndaði brot 33 ökumanna í Langarima í Reykjavík í dag en fylgst var með ökutækjum sem ekið var í suðurátt að Rósarima. Meira »

Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru

Í gær, 16:51 Fylgi Ólafs Ragnars Grímssonar og Þóru Arnórsdóttur er jafnt samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar MMR sem birtar voru í dag. Samtals sögðust 41,2% ætla að kjósa hvorn forsetaframbjóðandann. Meira »

Harður árekstur í Engidal

Í gær, 17:42 Harður árekstur tveggja fólksbíla varð í Engidal í Hafnarfirði, til móts við hús Actavis, skömmu eftir klukkan hálf sex í kvöld. Annar bílinn valt á hliðina við áreksturinn. Meira »

Fylgjast þarf með Krýsuvík

Frá Krýsuvík.
Í gær, 17:01 Sprungugos í norðurhluta þess sprungukerfis, sem liggur frá megineldstöðinni í Krýsuvík, geta hugsanlega komið upp í Heiðmörk eða í grennd við Elliðavatn og því er full ástæða til að fylgjast náið með því sem gerist á Krýsuvíkursvæðinu. Meira »

Harma óvæginn fréttaflutning

Í gær, 16:49 Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur leggur ríka áherslu á að mótuð verði vöktunar- og viðbragðsáætlun vegna umhverfismála á svæðinu í grennd við Hellisheiðarvirkjun. Stjórnin harmar jafnframt óvæginn fréttaflutning um tjarnarmyndun í grennd við svæðið. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Kvistir
Kvistir Sérsmíðaðir kvistir á þök. Uppsetning tekur ...
Hyundai Trajet 2002
Hyundai Trajet 2002. Ekinn 174þ. Heillegur bíll. Nýleg tímareim, nýtt í bremsum,...
CANON EOS NÁMSKEIÐ - spennandi námskeið.
Kennum á CANON EOS vélar. Námskeið í hverjum mánuði. Í boði eru mislöng námskeið...
TÖLVUÞJÓNUSTA
Tölvuþjónusta Alhliða tölvuviðgerðir; Stýrikerfi...
 
Kristniboðssambandið samkoma
Félagsstarf
Háaleitisbraut 58-60 Samkoma í kvöld kl....
12834 stofnstígur - reykjavíkurborg

út­boð Reykja­víkur­bor­g Innka­upa­...
Aðalfundarboð félag skipstjórnarmanna

Félag skipstjórnarmanna Aðalfundarboð...
Kynning skipulagsmála í rangárþingi eystra

Kynning skipulagstillöguí Rangárþin...