Karpað um íbúðir í Köben

Frá Kaupmannahöfn. stækka

Frá Kaupmannahöfn. mbl.is/Ómar

Morgunblaðið Eftir Guðna Einarsson gudni@mbl.is
Nítján íslenskir kaupendur hótelíbúða á Sommerstedgade 5-7 í Kaupmannahöfn, bæði einstaklingar og lögaðilar, hafa stefnt fasteignasölunni Stórhúsum ehf., eigendum hennar og starfsmönnum vegna þess sem þeir telja ólögmætt gjald og lagt var á þá í fasteignaviðskiptum. Krefjast þeir endurgreiðslu gjaldsins og tilheyrandi kostnaðar.

Einnig hafa kaupendur 34 íbúða í sama húsi kært fasteignasöluna og fasteignasala sem þar starfa til eftirlitsnefndar fasteignasala. Þess er krafist að þau verði beitt viðurlögum samkvæmt lögum um fasteignasölu og eftir atvikum leyfissviptingu.

Þá hefur lögmaður kaupenda 36 íbúða í húsinu skrifað sparisjóðnum BYR og Agnari Agnarssyni, fasteignasala hjá Stórhúsum ehf., og lýst því yfir fyrir hönd umbjóðenda sinna að þeir telji sig óbundna af gerðum samningum vegna íbúðanna.

Vorið og sumarið 2007 auglýsti fasteignasalan Stórhús ehf. til sölu „Norrænar hótelíbúðir“ í miðbæ Kaupmannahafnar. Um var að ræða 57 hótelíbúðir í fyrrnefndu húsi. Þeim skyldi skilað fullbúnum með húsögnum. Í boði voru allt að 90% lán á hverja íbúð. Auglýsingunni lauk á orðunum „Arðbær fjárfesting sem þú mátt ekki missa af“.

Þau sem kærðu til eftirlitsnefndar fasteignasala keyptu íbúðir í húsinu á fyrri hluta ársins 2007. Kaupverð var frá rúmlega 1,6 milljón DKR til ríflega 6 milljóna DKR. Íbúðirnar voru einungis seldar Íslendingum eða félögum í eigu Íslendinga.

Við kynningu á íbúðunum kom m.a. fram að um væri að ræða sérstaka eignaríbúð fyrir hvern kaupanda. Hver eigandi hefði sína íbúð til ráðstöfunar í 3-4 vikur á ári en hún yrði í útleigu á öðrum tímum. Reiknað var með góðum arði af eigninni og að hver íbúð myndi skila 100.000 DKR á hverju ári eftir að búið yrði að greiða gjöld, afborganir af lánum og fleira.

Eigandi fjölbýlishússins var danskt félag, Nordic Service Apartments A/S. Kaupendur voru síðar upplýstir um að félagið var að einum þriðja í eigu félags á vegum Agnars Agnarssonar fasteignasala, þriðjunginn átti BYR sparisjóður og þriðjung átti danskur eigandi.

Kaupendum var gert að borga 2% af kaupverðinu sem „finder's fee“ (fundarlaun) til Stórhúsa ehf. og/eða Scanis ehf. sem tengist Agnari. Það var til að mæta útlögðum kostnaði vegna viðskiptanna og starfa lögmanna. Þess var ekki getið að við það bættist virðisaukaskattur. Kaupendurnir hafa nú stefnt fasteignasölunum fyrir að taka þetta gjald, enda sé það óheimilt samkvæmt fasteignakaupalögum. Þau kveði á um að seljandi skuli bera allan kostnað vegna undirbúnings sölu fasteignar.

Í kærunni til eftirlitsnefndar fasteignasala kemur einnig fram að forsendur viðskiptanna hafi brostið ein af annarri. Þannig hafi engin lánafyrirgreiðsla verið fyrir hendi eins og lofað var. Leigusamningur við hótelrekanda liggi ekki fyrir. Þá hafi Stórhús tilkynnt kaupendum að þeir eigi sjálfir að útvega lánsfé og rekstraraðila.

Agnar Agnarsson fasteignasali segir að gengishrun krónunnar hafi valdið kaupendum erfiðleikum auk þess sem margir hafi tapað miklu á bankahruninu. Hann telur það eiga stóran þátt í að margir vilji nú draga sig út úr kaupunum.

Agnar sagði að fyrirtækið Bröndukvísl, sem hann á þriðjung í, hefði átt þriðjung í húsinu á móti BYR og danska félaginu Friis & Søborg. Hann sagði að leyft væri að taka fundarlaun (finder's fee) við sölu á viðskiptaeignum. Búið er að selja 50 af 57 íbúðum.

Agnar sagði viðræður standa yfir við danskan banka um að fjármagna dæmið. Bankinn vildi að stofnað yrði eitt hlutafélag um húsið. Skattalegar ástæður hefðu ráðið ráðleggingum um að láta félög eiga íbúðirnar. Agnar sagði unnið að því að losa þá kaupendur sem vildu losna út úr kaupsamningum í samvinnu við danska bankann og BYR sparisjóð.

Tilbúinn er samningur við DGI-Byen um rekstur hótelíbúðanna. Húsið á að vera tilbúið í apríl eða maí næstkomandi.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Kanadadollari. Úr myndasafni.

Segir stuðning við Kanadadollar

Í gær, 22:15 „Þetta er rætt í alvöru á Íslandi. Efnahagsráðherrann fór til Kanada fyrir sex vikum og fundaði með kanadíska seðlabankanum og með þingmönnum og að ég tel fjármálaráðuneytinu líka. Hann kom síðan aftur til Íslands og sagði opinberlega að þetta væri möguleiki sem væri ekki hægt að útiloka.“ Meira »

Brotist inn meðan íbúar skruppu frá

Í gær, 21:09 Tilkynnt var um innbrot í heimahús í Grafarvogi klukkan sjö í kvöld og söknuðu húsráðendur sjónvarps og ýmissa raftækja. Þeir brugðu sér af bæ í rúma klukkustund og þegar þeir komu heim var búið að brjóta rúðu og komust þjófarnir þannig inn. Meira »

Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi

04:53 Sunnan- og suðvestanátt verður á landinu í dag, yfirleitt 5-15 m/s, hvassast norðan- og vestanlands. Rigning við Breiðafjörð og á Vestfjörðum, léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi, en skýjað og súld með köflum syðra. Meira »

Meintar falsanir til lögreglunnar

Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 19:39 Tekin var ákvörðun um það í dag af yfirkjörstjórnum í Reykjavík að vísa meintum fölsunum á undirskriftum á meðmælendalistum Ástþórs Magnússonar, forsetaframbjóðanda, til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Gæsluvarðhaldið staðfest

Í gær, 18:29 Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir tveimur karlmönnum sem grunaðir eru um að hafa valdið dauða samfanga síns í fangelsinu á Litla-Hrauni fyrir rúmri viku. Héraðsdómur hafði áður úrskurðað mennina í gæsluvarðhald til 13. júní. Meira »

Stefnan áframhaldandi lágt gengi

Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður.
Í gær, 20:11 „Það er alveg ljóst mál að þetta kosningaplagg ríkisstjórnarinnar sem kallað hefur verið framkvæmdaáætlun er byggð á þeirri forsendu að gengi íslensku krónunnar haldist álíka veikt og það er í dag,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is. Meira »

Tryggja að allir komist heilir heim

Í gær, 18:59 Haldið verður úti auknu umferðareftirliti í sumar á Vesturlandsvegi, Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut af hálfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra. Meira »

Fundur Háskólalestarinnar fellur niður

Frá Ísafirði. Úr myndasafni.
Í gær, 18:22 Fram kemur í tilkynningu frá Háskólalestinni að fyrirlestur um forsetaframboðið sem fara átti fram á Ísafirði í kvöld klukkan 20:00 falli niður vegna þess að öllu flugi frá Reykjavíkur til Ísafjarðar í dag hafi verið aflýst. Meira »

Húsbíll fauk af vegi

Í gær, 18:09 Húsbíll fauk í Fljótum, skammt frá Ketilási um hádegisbilið í dag. Tvennt var í bílnum og voru þau flutt á heilsugæsluna á Siglufirði til aðhlynningar. Meira »

Yfirheyrslur héldu áfram í dag

Fangelsið á Litla-Hrauni.
Í gær, 18:00 Yfirheyrslur vegna láts fanga á Litla-Hrauni, sem talið er hafa borið að með sviplegum hætti, héldu áfram í dag og var nokkur fjöldi vitna yfirheyrður, þar á meðal fólk sem tengist fangelsinu. Meira »

Ólafur mælist með mest fylgi

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.
Í gær, 18:09 Mikill viðsnúningur hefur orðið í fylgi við forsetaframbjóðendurna Ólaf Ragnar Grímsson og Þóru Arnórsdóttur ef marka niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Capacent Gallup sem greint var frá í fréttum Ríkisútvarpsins. Meira »

Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð

Í gær, 17:49 Talsvert magn af fíkniefnum fannst við húsleit lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í kjallaraíbúð í miðborginni í gær.   Meira »

Bátur fauk á annan bát

Hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í dag.
Í gær, 17:49 Afar hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í allan dag og í morgun fauk bátur á annan bát í Grindavíkurhöfn.  Meira »

33 brotlegir ökumenn myndaðir

Í gær, 17:36 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu myndaði brot 33 ökumanna í Langarima í Reykjavík í dag en fylgst var með ökutækjum sem ekið var í suðurátt að Rósarima. Meira »

Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru

Í gær, 16:51 Fylgi Ólafs Ragnars Grímssonar og Þóru Arnórsdóttur er jafnt samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar MMR sem birtar voru í dag. Samtals sögðust 41,2% ætla að kjósa hvorn forsetaframbjóðandann. Meira »

Harður árekstur í Engidal

Í gær, 17:42 Harður árekstur tveggja fólksbíla varð í Engidal í Hafnarfirði, til móts við hús Actavis, skömmu eftir klukkan hálf sex í kvöld. Annar bílinn valt á hliðina við áreksturinn. Meira »

Fylgjast þarf með Krýsuvík

Frá Krýsuvík.
Í gær, 17:01 Sprungugos í norðurhluta þess sprungukerfis, sem liggur frá megineldstöðinni í Krýsuvík, geta hugsanlega komið upp í Heiðmörk eða í grennd við Elliðavatn og því er full ástæða til að fylgjast náið með því sem gerist á Krýsuvíkursvæðinu. Meira »

Harma óvæginn fréttaflutning

Í gær, 16:49 Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur leggur ríka áherslu á að mótuð verði vöktunar- og viðbragðsáætlun vegna umhverfismála á svæðinu í grennd við Hellisheiðarvirkjun. Stjórnin harmar jafnframt óvæginn fréttaflutning um tjarnarmyndun í grennd við svæðið. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Gönguskór
Fóðraðir gönguskór til sölu nr. 49-50 Upplýsingar í síma 8935005...
Finnsbúð 15 Þorlákshöfn
Til sölu skemmtileg eign í Þorlákshöfn. Stutt er í skóla og aðra þjónustu. Um e...
Toyota Yaris árgerð 2006 DIESEL !!!
Toyota Yaris Diesel árgerð 07/2006. Ekinn 79.000 km. Sjálfskiptur. 5 dyra. Sil...
SPÁNN - Gullna ströndin Costa Brava
Costa Brava - Pladja de Aro er frábær sólarstranda staður. Við leigum út íbúð st...
 
Kynning skipulagsmála í rangárþingi eystra

Kynning skipulagstillöguí Rangárþin...
Samkoma - hjálpræðisherinn
Félagsstarf
Kjallarinn, fimmtudag, kl.20 Ung...
Deiliskipulag á grundartanga

Deiliskipulag á Grundartanga Austur...
Sýslumaðurinn á selfosi - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....