Davíð segir ekki af sér

Davíð Oddsson. stækka

Davíð Oddsson. mbl.is/Kristinn

Davíð Oddsson, seðlabankastjóri, hefur svarað bréfi Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, að hann hafi aldrei hlaupið frá verki sem hann hafi tekið að sér og það muni hann ekki gera nú. Það er því ljóst að hvorki Davíð né Eiríkur Guðnason verða við beiðni Jóhönnu um afsögn úr starfi seðlabankastjóra. Ingimundur Friðriksson hefur hins vegar fallist á beiðni Jóhönnu.

Davíð segir í bréfinu að hann hafi tjáð Jóhönnu að hann myndi ekki svara erindi hennar fyrr en eftir helgi og hún hafi ekki hreyft andmælum við því en hann var staddur erlendis þar til á fimmtudag.

Segir hann bréfið bera öll merki þess að hafa verið ritað utan ráðuneytisins, hvort sem það hefur verið á  flokksskrifstofu eða annars staðar. Það brýtur allar venjur um embættisleg bréf af þessu tagi. Vitað er að ráðuneytisstjóri forsætisráðuneytisins og helsti tengiliður við prógramm Alþjóða gjaldeyrissjóðinn hefur verið þvingaður út úr ráðuneytinu með áður fordæmalausum hætti, að því er segir í bréfi Davíðs til Jóhönnu.

Forsætisráðherrann er sem kunnugt er einnig efnahagsráðherra. Ráðuneytisstjórinn, sem ýtt var út úr ráðuneytinu, er einn kunnasti hagfræðingur landsins og fyrrverandi forstöðumaður Þjóðhagsstofnunar. Í stað hans kom lögfræðingur, en í bréfi forsætisráðherra virðist það helst fundið formanni bankastjórnar Seðlabankans til foráttu að hann sé lögfræðingur en ekki hagfræðingur, segir Davíð jafnframt í bréfinu.

„Þegar mér varð ljóst hvers konar bréf hafði borist heim til mín og kynnt í áróðursskyni áður en ég hafði tækifæri til að lesa það og frumvarp lagt fram til að fylgja eftir hótun í bréfinu, stóð hugur minn til þess að láta bréfinu ósvarað. Af augljósum ástæðum ber ég mikla virðingu fyrir því embætti sem núverandi forsætisráðherra gegnir. Og þrátt fyrir augljósa annmarka sem eru á öllum þessum málatilbúnaði vil ég ekki láta hjá líða að mín afstaða sé kunn. Ég var skipaður til starfa 20. október 2005 til ákveðins afmarkaðs tíma. Það starf hef ég reynt að rækja eins vel og ég kann. Það gleður mig, að jafnvel þeir sem helst vilja leggja til mín hafa ekki getað fundið neitt málefnalega athugavert við störf mín og reyndar tekið sérstaklega fram að við mín störf sé ekkert að athuga. Ég þurfi bara að fara frá af óefnislegum ástæðum."

Davíð segir að æ fleiri mönnum verði ljóst að formaður bankastjórnar persónulega og bankastjórn Seðlabankans sameiginlega hafi á undanförnum árum aftur og aftur varað við því að í óefni stefndi í bankamálum þjóðarinnar og þrýst á þá sem ábyrgð báru um að bregðast við í tíma. „Það er hlálegt að ráðherra úr hópi þeirra sem hlustuðu ekki og sjálf lyfti ekki litla fingri til þess að stemma stigu við því sem var að gerast skuli nú ganga fram þeim hætti sem hún geri."

Bréf Davíðs Oddssonar í heild

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Greta Salóme og Jónsi í kvöld.

„Ég er í skýjunum“

Í gær, 23:35 „Ég er í skýjunum,“ sagði Greta Salóme Stefánsdóttir, texta- og lagahöfundur lagsins Mundu eftir mér sem verður framlag Íslands í Evróvisjón-keppninni í Aserbaídsjan í maí. Greta sagðist vilja þakka sínum nánustu og samstarfsfélögum, en nú ætlaði hún að njóta kvöldsins og leyfa því að líða. Meira »
Jónsi og Greta Salóme.

„Mjög sérstök tilfinning“

Í gær, 23:12 „Mjög sérstök tilfinning,“ sagði Jón Jósep Snæbjörnsson, Jónsi, eftir að ljóst var að hann færi með Gretu Salóme til Bakú í Aserbaídjan til að keppa fyrir hönd Íslands í Evróvisjón. Jónsi sem tekur þátt í Evróvisjón í annað skipti sagðist ekki alveg hafa náð utan um þá staðreynd enn. Meira »

Jónsi og Greta til Bakú

Jónsi og Greta í Hörpu.
Í gær, 22:29 Mundu eftir mér er framlag Íslands til Evróvisjón-keppninnar í Aserbaídsjan í maí. Íslenska framlagið keppir í fyrri hluta fyrri undanriðils þann 22. maí en aðalkeppnin fer fram 26. maí. Símakosning auk dómnefndar skar úr um hvaða lag var valið. Meira »

Helmingur vill að ákæran verði dregin til baka

Geir H. Haarde fyrir Landsdómi.
Í gær, 19:52 Jafnmargir eru því fylgjandi að ákæra á hendur Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, verði dregin til baka og andvígir því, samkvæmt niðurstöðum úr könnun Stöðvar tvö og Fréttablaðsins sem greint var frá í kvöldfréttum Stöðvar 2. Meira »

Hvessir af suðri seint í kvöld

Á hæstu fjallvegum um landið vestanvert er spáð hríðarveðri fram á nótt.
Í gær, 17:16 Heldur hvessir af suðri í kvöld og hlýnar á landinu, samkvæmt upplýsingum frá veðurfræðingi Vegagerðarinnar. Á hæstu fjallvegum um landið vestanvert er spáð hríðarveðri fram á nótt, en slyddu og rigningu í byggð. Á norðanverðu Snæfellsnesi er spáð byljóttum vindi í nótt og mjög hvössum vindhviðum. Meira »

Úrslitakeppnin hafin í Hörpu

Keppnin fer fram í Hörpu.
Í gær, 20:33 Úrslitakvöld forkeppni Evróvisjón er hafið í Hörpu, en í kvöld kemur í ljós hverjir keppa fyrir hönd Íslands í lokakeppni söngvakeppninnar sem fram fer í Bakú í Aserbaídjan síðar á árinu. Meira »

Fjör á 112-deginum á Húsavík

Börnum og unglingum var boðið í stutta sjóferð á Jóni Kjartanssyni, báti Björgunarsveitarinnar Garðars.
Í gær, 17:35 Víðar var haldið upp á 112-daginn en aðeins í Reykjavík. Þannig lögðu fjölmargir leið sína í björgunarsveitarhúsið Naust á Húsavík þar sem viðamikil dagskrá fór fram. Meira »

Mannréttindi alltaf í fyrsta sæti

Ögmundur Jónasson
Í gær, 16:46 Ögmundur Jónasson, innanríkis- og mannréttindaráðherra Íslands, segir það vel koma til greina að skoða með hvað hætti Ísland geti beint spjótum sínum að mannréttindabrotum í Aserbaídsjan í kjölfar Evróvisjón keppninnar. Meira »

Ekki hika – hringdu til öryggis

Meðal þess sem var í boði, var að læra hvernig á að beita hjartahnoði.
Í gær, 16:46 Gagn og gaman, voru þau orð sem gestir í Smáralind höfðu um 112-daginn sem þar var haldinn í dag. Markmið dagsins var að kynna neyðarnúmerið og þá margvíslegu aðstoð sem almenningur hefur aðgang að í gegnum það. En ekki síður voru viðbragðsaðilar með umfangsmiklar kynningu. Meira »

Enginn flótti af Y-lista

Rannveig Ásgeirsdóttir, fulltrú Y-lista Kópavogsbúa og Ármann Kr. Ólafsson, sjálfstæðisflokki.
Í gær, 16:04 Rannveig Ásgeirsdóttir, bæjarfulltrúi Y-lista í bæjarstjórn Kópavogs, segir það ekki rétt að nokkur fjöldi hafi sagt sig úr Y-lista Kópavogsbúa eftir að listinn myndaði meirihluta með Framsóknarflokknum og Sjálfstæðisflokknum í Kópavogi á fimmtudaginn. Henni er aðeins kunnugt um að einn hafi sagt sig af listanum vegna þessa. Meira »

Möguleikar nýju framboðanna

Í gær, 16:05 Væntanlega mun ýmislegt skýrast á næstunni frekar varðandi stefnur stjórnmálahreyfinganna og hvernig þær ætli sér að skipuleggja starfsemi sína fyrir næstu þingkosningar sem verða í síðasta lagi vorið 2013 eða eftir rúmt ár en gætu skollið á hvenær sem er. Meira »

Iðnaðarmaður ræsti brunaboða

Kleppsspítali
Í gær, 15:57 Lögregla og slökkvilið voru kölluð að Kleppsspítala rétt fyrir hádegið í dag þegar brunaboði og innbrotsboði voru ræstir. Í ljós kom að iðnaðarmaður setti brunaboðann af stað með vinnu sinni og þegar hann reyndi að slökkva á honum ræsti hann óvart innbrotsboðann. Meira »

Búðaþjófur ógnaði starfsmanni

Maðurinn reyndi að stela vörum úr Hagkaup.
Í gær, 15:54 Starfsfólk Hagkaupa í Skeifunni óskaði eftir aðstoð lögreglu höfuðborgarsvæðisins á öðrum tímanum í dag. Þar hafði karlmaður reynt að stela vörum og brást illa við afskiptum öryggisvarðar. Búðaþjófurinn sem ógnaði öryggisverðinum með skærum var handtekinn og bíður skýrslutöku. Meira »

Fangar reyna oft að ná í fíkniefni

Fangi fluttur fyrir dómara.
Í gær, 15:39 Tilvik þess að fangar reyni að nálgast fíkniefni þegar verið er að flytja þá á spítala, fyrir dóm eða til tannlæknis koma reglulega upp. Þetta sagði deildarstjóri á fangelsinu á Litla-Hrauni í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins. Því þurfi sífellt að endurskoða fangaflutninga. Meira »

Skjálftahrina við Grímsey

Kort af skjálftunum.
Í gær, 14:48 Jarðskjálftahrina varð úti fyrir Grímsey í morgun. Á vefsvæði Veðurstofu Íslands má sjá að hrinan hófst um klukkan níu í morgun og stóð til hádegis. Stærsti skjálftinn mældist 2,3 stig, en einnig mældust skjálftar up á 2 stig og 1,9 og 1,7. Engir skjálftar hafa mælst eftir hádegið. Meira »

Börn grétu vegna útigangsmanna

Klambratún.
Í gær, 15:48 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð að Klambratúni í dag þar sem útigangsmenn voru með ofstopa og ógnuðu fólki sem þar gekk um. Tilkynnandi sagði að börn hefðu orðið mjög skelfd og brostið í grát vegna þessa. Þegar lögregla kom á vettvang voru mennirnir hins vegar horfnir á braut. Meira »

Slökkt á meðan Kolaportið er opið

Kolaportið
Í gær, 15:26 Tollstjóri hyggst slökkva á eftirlitsmyndavélum á húsi embættisins við Tryggvagötu á meðan Kolaportið er opið. Þetta kemur fram í umsögn Persónuverndar um fyrirhugaða vöktun hússins. Meira »

Öskureið út í Pál Óskar

Í gær, 14:41 Ulker Gasanova sem fluttist til Íslands frá Aserbaídsjan árið 2001 með móður sinni, Sevil Gasanova, er ekki sátt við málflutning Páls Óskars vegna undirbúnings Evróvisjónkeppninar sem fer fram í Aserbaídsjan í ár. Meira »

Innlend málefni

Svipaðar fréttir

Finnur.is
2010 TOYOTA LANDCRUSIER GX
Toyota Landcrusier 150 GX. Sjsk. Diesel, Ekinn 36.000. 2010 árgerð. Fallegur o...
Gamaldags og nýmóðins trúlofunarhringar
Gull, hvítagull, silfur, titanium, tungsten, rúna- og höfðaleturshringar á verði...
ALLSKONAR DÓT TIL SÖLU !
https://bland.is/messageboard/messageboard.aspx?badvid=27278797&showAdvid=272787...
Amerískt sófasett til sölu + sófaborð :)
Krúttlegt, amerískt sófasett til sölu, verð: 35 þús. Einnig sófaborð í gamla stí...
 
Til sölu
Tilboð - útboð
Til sölu Sveitarfélagi...
Sölumaður
Sölu/markaðsstörf
Sölu- og viðgerðar- menn óskast til...
Aðalfundur
Fundir - mannfagnaðir
Aðalfundur Félags sj...