Engin fíkniefni í fjölbrautaskóla

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitaði að fíkniefnum í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti í hádeginu í dag. Ekkert fannst í leitinni en fíkniefnaleitarhundur frá tollinum var notaður við aðgerðina í dag.

Að sögn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu hefur lögreglan nokkrum sinnum farið þessara erinda í skólann en niðurstaðan hefur ávallt verið sú sama. Þar hafi engin fíkniefni fundist. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert