Lögin ganga gegn ákvæðum stjórnarskrár
Héraðsdómur Reykjavíkur hafnaði því í dag að fresta máli sem höfðað var gegn Glitni á meðan greiðslustöðvun bankans stendur. Segir í úrskurði dómarans að lög um fjármálafyrirtæki, sem breytt var í nóvember á síðasta ári, gangi gegn ákvæðum stjórnarskrár og að réttindum, sem stjórnarskránni sé ætlað að tryggja, verði ekki breytt eða þau felld úr gildi með almennri lagasetningu.
Lögunum um fjármálafyrirtæki var breytt í nóvember í fyrra og er breytingunum ætlað að verja eignir íslensku bankanna. Segir í 2. gr. lagaanna: „Hafi dómsmál verið höfðað gegn fjármálafyrirtæki sem síðar er veitt heimild til greiðslustöðvunar, þá verður meðferð þess máls ekki fram haldið meðan á greiðslustöðvun stendur nema mælt sé sérstaklega fyrir um heimild til þess í lögum eða um opinbert mál sé að ræða og krafist sé refsiviðurlaga sem ákveða má á hendur fjármálafyrirtæki."
Fram kom í greinargerð með frumvarpinu, að markmið þess væri að gera breytingar á núgildandi lögum sem snéri að gjaldþrotaskiptum og greiðslustöðvun fjármálafyrirtækja sem Fjármálaeftirlitið hafi tekið yfir stjórn á. Þingmenn VG gagnrýndu frumvarpið hins vegar harðlega og sögðu að réttarfarslegt slys væri í uppsiglingu.
Í 1. mgr. 70. gr. stjórnarskrárinnar segir: „Öllum ber réttur til að fá úrlausn um réttindi sín og skyldur eða um ákæru á hendur sér um refsiverða háttsemi með réttlátri málsmeðferð innan hæfilegs tíma fyrir óháðum og óhlutdrægum dómstóli. Dómþing skal háð í heyranda hljóði nema dómari ákveði annað lögum samkvæmt til að gæta velsæmis, allsherjarreglu, öryggis ríkisins eða hagsmuna málsaðila."
Í úrskurði héraðsdóms segir, að framangreint ákvæði stjórnarskrárinnar sé fortakslaust og verði þeim réttindum sem því er ætlað að tryggja ekki breytt eða þau felld úr gildi með almennri lagasetningu. Breyti þá engu þótt ákvæðið, sem Glitnir byggi frestkröfu sína á, sé sett við aðstæður sem telja megi óvenjulegar í þjóðfélaginu.
Ágreiningur í málinu sem tekið var fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur laut að skaðabótakröfu manns á hendur Glitnis sem maðurinn byggir á því að skilyrði til gjaldþrotaskipta á búi hans, af kröfu Glitnis, hafi ekki verið fyrir hendi þegar úrskurður um gjaldþrotaskipti var kveðinn upp á árinu 2002. Krefst maðurinn 60 milljóna króna í bætur auk dráttarvaxta.
Lögin í heildBloggað um fréttina
-
Gísli Tryggvason Réttlætið sigrar -
Vala Andrésdóttir Withrow Héraðsdómur framfylgir Magna Carta 1215 -
Guðbjörn Jónsson Athyglisverð nýmæli
Innlent »
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 9. febrúar 2009, Innlent Varaði þingforseta við stjórnarskrárbrotinu
- Laugardagur, 9. maí 2009, Innlent Neikvæðar horfur hjá Landsvirkjun að mati S&P
- Fimmtudagur, 2. apríl 2009, Innlent Laus sæti á lista Lýðræðishreyfingarinnar
- Laugardagur, 2. maí 2009, Innlent Amma á Facebook
- Fimmtudagur, 13. nóvember 2008, Innlent VG mótmælir frumvarpi um fjármálafyrirtæki
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli



































