Mótmæla ráðningu Ásmundar

Fullt var út úr dyrum á fundi Réttlætis.is í janúar. stækka

Fullt var út úr dyrum á fundi Réttlætis.is í janúar. Kristinn Ingvarsson

Réttlæti.is, sem eru samtök þeirra, sem töpuðu fé í peningamarkaðssjóðum Landsbankans, mótmælir ráðningu Ásmundar Stefánssonar í stól bankastjóra Landsbankans. Segir í tilkynningu frá samtökunum að það, að staðan sé ekki auglýst, séu ólíðandi vinnubrögð bankaráðsins.

„Okkur finnst þetta mjög undarlegt," segir Ómar Sigurðsson, einn forsvarsmanna samtakanna. „Ásmundur er ráðinn vegna óljósrar stöðu bankans. Hver er þessi óljósa staða? Er bankinn að fara á hausinn? Við setjum spurningamerki við þetta því okkur finnst þetta mjög undarlegt."

Í yfirlýsingunni segir m.a. að viðskiptavinir Landsbanka og skattgreiðendur almennt, sem í dag eru eigendur Nýja Landsbankans, eigi heimtingu á að stunduð séu lýðræðisleg vinnubrögð eftir að sem á undan er gengið. „Um miðjan janúar gaf formaður bankaráðs, Ásmundur Stefánsson út þá tilkynningu að staða bankastjóra yrði auglýst „á næstu dögum" eins og það var orðað þá.  Nokkrum vikum síðar er tilkynnt um ráðningu Ásmundar sjálfs sem bankastjóra og um frestun umræddrar auglýsingar fram á haust.   Í kvöldfréttum sjónvarps 5.feb. kom fram að bankaráðið hefði tekið þessa ákvörðun vegna „óvissu í rekstrarumhverfi bankans"  Slík yfirlýsing hlýtur að vekja upp spurningar og er ekki til þess fallin að auka traust viðskiptavina bankans til hans.  Við þetta bætist að bankaráðið hunsar tilmæli viðskipta- og fjármálaráðherra í núverandi ríkisstjórn um að auglýsa stöðuna hið fyrsta," segir í yfirlýsingunni.

Þá segir að Ásmundur og Elín Sigfúsdóttir bankastjóri hafi fundað með forsvarsmönnum Réttlætis.is í byrjun desember, þar sem þau hafi gert tilraun til að réttlæta tap peningamarkaðssjóða bankans. „Það var ekki til umræðu að bankinn kæmi að nokkru leyti til móts við okkur," segir Ómar.

Hann segir ráðningu Ásmundar þó ekki breyta neinu um framvindu málareksturs Réttlætis.is. „Við höldum einfaldlega áfram á fullu og okkar lögmaður er með mál fyrir fleiri hundruð manns sem hann er að reka núna gegn bankanum. Við erum ekki hrifin af framgöngu Ásmundar í bankanum, en það er búið að sýna fram á að bankinn hefur algerlega klúðrað þessu máli. Hann hefur viðurkennt að hafa markaðssett peningasjóðinn ólöglega en hins vegar er enginn vilji sýndur til að leiðrétta það."

Ómar bætir því við að nú sé bara dómstólaleiðin eftir fyrir félaga samtakanna, og vinnur lögmaður þeirra að því máli. „Ég get ekki séð neitt annað í stöðunni núna."

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Kanadadollari. Úr myndasafni.

Segir stuðning við Kanadadollar

Í gær, 22:15 „Þetta er rætt í alvöru á Íslandi. Efnahagsráðherrann fór til Kanada fyrir sex vikum og fundaði með kanadíska seðlabankanum og með þingmönnum og að ég tel fjármálaráðuneytinu líka. Hann kom síðan aftur til Íslands og sagði opinberlega að þetta væri möguleiki sem væri ekki hægt að útiloka.“ Meira »

Brotist inn meðan íbúar skruppu frá

Í gær, 21:09 Tilkynnt var um innbrot í heimahús í Grafarvogi klukkan sjö í kvöld og söknuðu húsráðendur sjónvarps og ýmissa raftækja. Þeir brugðu sér af bæ í rúma klukkustund og þegar þeir komu heim var búið að brjóta rúðu og komust þjófarnir þannig inn. Meira »

Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi

04:53 Sunnan- og suðvestanátt verður á landinu í dag, yfirleitt 5-15 m/s, hvassast norðan- og vestanlands. Rigning við Breiðafjörð og á Vestfjörðum, léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi, en skýjað og súld með köflum syðra. Meira »

Meintar falsanir til lögreglunnar

Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 19:39 Tekin var ákvörðun um það í dag af yfirkjörstjórnum í Reykjavík að vísa meintum fölsunum á undirskriftum á meðmælendalistum Ástþórs Magnússonar, forsetaframbjóðanda, til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Gæsluvarðhaldið staðfest

Í gær, 18:29 Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir tveimur karlmönnum sem grunaðir eru um að hafa valdið dauða samfanga síns í fangelsinu á Litla-Hrauni fyrir rúmri viku. Héraðsdómur hafði áður úrskurðað mennina í gæsluvarðhald til 13. júní. Meira »

Stefnan áframhaldandi lágt gengi

Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður.
Í gær, 20:11 „Það er alveg ljóst mál að þetta kosningaplagg ríkisstjórnarinnar sem kallað hefur verið framkvæmdaáætlun er byggð á þeirri forsendu að gengi íslensku krónunnar haldist álíka veikt og það er í dag,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is. Meira »

Tryggja að allir komist heilir heim

Í gær, 18:59 Haldið verður úti auknu umferðareftirliti í sumar á Vesturlandsvegi, Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut af hálfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra. Meira »

Fundur Háskólalestarinnar fellur niður

Frá Ísafirði. Úr myndasafni.
Í gær, 18:22 Fram kemur í tilkynningu frá Háskólalestinni að fyrirlestur um forsetaframboðið sem fara átti fram á Ísafirði í kvöld klukkan 20:00 falli niður vegna þess að öllu flugi frá Reykjavíkur til Ísafjarðar í dag hafi verið aflýst. Meira »

Húsbíll fauk af vegi

Í gær, 18:09 Húsbíll fauk í Fljótum, skammt frá Ketilási um hádegisbilið í dag. Tvennt var í bílnum og voru þau flutt á heilsugæsluna á Siglufirði til aðhlynningar. Meira »

Yfirheyrslur héldu áfram í dag

Fangelsið á Litla-Hrauni.
Í gær, 18:00 Yfirheyrslur vegna láts fanga á Litla-Hrauni, sem talið er hafa borið að með sviplegum hætti, héldu áfram í dag og var nokkur fjöldi vitna yfirheyrður, þar á meðal fólk sem tengist fangelsinu. Meira »

Ólafur mælist með mest fylgi

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.
Í gær, 18:09 Mikill viðsnúningur hefur orðið í fylgi við forsetaframbjóðendurna Ólaf Ragnar Grímsson og Þóru Arnórsdóttur ef marka niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Capacent Gallup sem greint var frá í fréttum Ríkisútvarpsins. Meira »

Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð

Í gær, 17:49 Talsvert magn af fíkniefnum fannst við húsleit lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í kjallaraíbúð í miðborginni í gær.   Meira »

Bátur fauk á annan bát

Hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í dag.
Í gær, 17:49 Afar hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í allan dag og í morgun fauk bátur á annan bát í Grindavíkurhöfn.  Meira »

33 brotlegir ökumenn myndaðir

Í gær, 17:36 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu myndaði brot 33 ökumanna í Langarima í Reykjavík í dag en fylgst var með ökutækjum sem ekið var í suðurátt að Rósarima. Meira »

Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru

Í gær, 16:51 Fylgi Ólafs Ragnars Grímssonar og Þóru Arnórsdóttur er jafnt samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar MMR sem birtar voru í dag. Samtals sögðust 41,2% ætla að kjósa hvorn forsetaframbjóðandann. Meira »

Harður árekstur í Engidal

Í gær, 17:42 Harður árekstur tveggja fólksbíla varð í Engidal í Hafnarfirði, til móts við hús Actavis, skömmu eftir klukkan hálf sex í kvöld. Annar bílinn valt á hliðina við áreksturinn. Meira »

Fylgjast þarf með Krýsuvík

Frá Krýsuvík.
Í gær, 17:01 Sprungugos í norðurhluta þess sprungukerfis, sem liggur frá megineldstöðinni í Krýsuvík, geta hugsanlega komið upp í Heiðmörk eða í grennd við Elliðavatn og því er full ástæða til að fylgjast náið með því sem gerist á Krýsuvíkursvæðinu. Meira »

Harma óvæginn fréttaflutning

Í gær, 16:49 Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur leggur ríka áherslu á að mótuð verði vöktunar- og viðbragðsáætlun vegna umhverfismála á svæðinu í grennd við Hellisheiðarvirkjun. Stjórnin harmar jafnframt óvæginn fréttaflutning um tjarnarmyndun í grennd við svæðið. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
www.flutningur.is 5753000 sendibilastöð
Stöðin býður upp á allar stærðir sendibíla og veitir trausta og umfram allt góð...
Gisting í Eyjafirði
Bjóðum upp á gistingu í íbúð með tveimur tveggja manna herbergjum með uppábúnum ...
Stórt kvenreiðhjól 28" til sölu
Fallegt svart kvenreiðhjól til sölu Það er 28". 3 gíra með körfu Hannað fyrir ...
JEEP GRAND CHEROKEE
Jeep Grand Cherokee Overland 4.7 , 06/2004, ekinn 139 þús. Ssk., le...
 
Deiliskipulag á grundartanga

Deiliskipulag á Grundartanga Austur...
Sýslumaðurinn á selfossi - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Kynning skipulagsmála í rangárþingi eystra

Kynning skipulagstillöguí Rangárþin...
Sýslumaðurinn í hafnarfirði - framhald uppboð

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....