Alþjóðlegir ráðgjafar aðstoði ríkið
Jóhanna Sigurðardóttir og Steingrímur J. Sigfússon á blaðamannafundi í Þjóðmenningarhúsinu í dag,. mbl.is/Kristinn
Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun, að skoðað verði að ráða alþjóðlega ráðgjafa sem aðstoði ríkið í samningum við skilanefndir gömlu bankanna. Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, sagði að erlendir kröfuhafar bankanna væru með mjög sterka aðila til að semja fyrir sig og ríkið þurfi að koma sterkt inn í þá mynd.
Jóhanna sagði á blaðamannafundi í Þjóðmenningarhúsinu, að á ríkisstjórnarfundinum hefðu verið samþykkt þrjú mál sem tengjast áætlun um endurreisn fjármálakerfisins. Á fundinum var samþykkt starfsáætlun sérstakrar samræmingarnefndar, sem í sitja fulltrúar nokkurra ráðuneyta ásamt Svíanum Mats Josepsson en sú nefnd starfar á grundvelli samkomulags sem gert var við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn. Er nefndinni m.a. ætlað að koma með tillögur um hvernig byggja eigi upp eftirlit með fjármálastarfsemi sem stenst alþjóðlegar kröfur.
Þá var samþykkt, að stofna eignaumsýslufélag í eigu ríkisins, sem yfirtaki eignir í bönkum, fyrirtæki þar sem starfsemi sé í raun komin í þrot. Jóhanna sagði, að um væri að ræða stærstu fyrirtækin, um 15-20 félög, sem verði hugsanlega tekin inn í eignaumsýslufélagið í áföngum. Þetta komi ekki í veg fyrir að bankarnir verði með sín eigin eignaumsýslufélög, þá fyrir minni og meðalstór fyrirtæki. Með þessu móti væri hægt að minnka efnahagsreikning bankanna og gera þeim fyrr kleift að endurreisa meðalstór fyrirtæki og setja atvinnulífið í gang.
Vel þekktar aðferðir
Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, sagði að aðgerðir á borð við þessar, að taka stór mikilvæg illa stödd fyrirtæki, inn í eignaumsýslufélög, væru vel þekktar. Því væri ekki verið að finna upp hjólið heldur beita aðferðum, sem reynst hafi vel annarstaðar.
Tvö frumvörp verða lögð fram á Alþingi á næstunni, annað um eignaumsýslufélög og hitt um fjármálafyrirtæki sem felur í sér að eignir félaga geta verið lengur í gjaldþrotameðferð til að koma í veg fyrir að ekki þurfi að selja þau of fljótt.
Fram kom hjá Jóhönnu að á föstudag muni væntanlega verða afgreidd frumvörp um breytingu á gjaldþrotalögum um lengri fresti og um greiðslujöfnun myntkörfulána.
Frumvarp um skyldusparnað afgreitt
Ríkisstjórnin samþykkti einnig á fundi sínum í dag frumvarp um skyldusparnað sem gerir ráð fyrir að fólk geti tekið út viðbótarlífeyrissparnað samkvæmt ákveðnum reglum á næstu árum.




































