Orð forsetans fréttamatur í Þýskalandi
Ólafur Ragnar Gímsson, forseti Íslands, komst á forsíður nánast allra vefmiðla í Þýskalandi með yfirlýsingum sínum í viðtali við Financial Times Deutschland í gær um að hann hafnaði því að þýskum sparifjáreigendum yrði bætt tap sitt vegna gjaldþrots Kaupþings.
„Skýr boð frá Íslandi: Um þrjátíu þúsund manns, sem áttu sparifé í Kaupþingi, munu ekki fá neinar bætur," sagði í dagblaðinu Die Welt. „Forsetinn sagði að það væri ekki hægt að leggja það á Íslendinga að standa skil á tapinu. Ástæðan: Fólkið hefði sjálft tapað öllu."
Með ummælum sínum hefur Ólafur Ragnar vakið rækilega athygli og allt frá Bild til Frankfurter Allgemeine Zeitung lögðu út af orðum hans.
„Engar bætur fyrir þýska viðskiptavini þrotabankans," sagði á forsíðu vefmiðils Bild Zeitung, stærsta dagblaðs Evrópu. „Engir peningar fyrir sparifjáreigendur hjá Kaupþingi eftir allt!" hefst frétt blaðsins og er upphrópunarmerki skeytt við til áherslu. „Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, leggst með krafti gegn bótum fyrir þýska sparifjáreigendur ..."
Í fyrirsögn Frankfurter Allgemeine Zeitung er ekki kveðið jafn fast að orði: „Forseti Íslands veldur sparifjáreigendum hjá Kaupþingi óvissu." Í upphafi fréttarinnar segir að enn hafi skapast „ringulreið" í umræðunni um bætur fyrir Þjóðverja, sem treystu Kaupþingi fyrir sparifé sínu, nú hafi forseti Íslands lagst gegn því að bætur yrðu greiddar.
Í fyrirsögn á vefmiðli vikuritsins Die Zeit segir að við þýskum sparifjáreigendum hjá Kaupþingi „blasi algert tap" og í fyrirsögn Der Spiegel stendur: „Forseti leggst gegn skaðabótum til þýskra fórnarlamba".
Bloggað um fréttina
-
Kristján Logason Sagði hann ekki bara satt -
Gísli Foster Hjartarson Verðum við aftur hluti... -
Ólafur Tryggvason Þorsteinsson Hver má hvað? -
Heiðrún Klara Johansen Hvað getum við gefið í staðinn:) -
Þórbergur Torfason Ólafur í heimspressunni enn og aftur. -
Grímur Gíslason Forsetinn í fótspor Davíðs? -
Innlent »
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 10. febrúar 2009, Innlent Þjóðverjar fái engar bætur
- Þriðjudagur, 10. febrúar 2009, Innlent Óbreytt afstaða stjórnvalda
- Þriðjudagur, 10. febrúar 2009, Innlent Viðtalið tekið úr samhengi
- Miðvikudagur, 11. febrúar 2009, Innlent Skapstóri forsetinn
- Þriðjudagur, 7. október 2008, Innlent Vonin er í kindinni
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli




































