Þjóðverjum verði ekki bætt tap, segir Ólafur Ragnar
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, segir í viðtali við blaðið Financial Times Deutschland í dag að hann hafni því að þýskum sparifjáreigendum verði bætt tap, sem þeir hafa orðið fyrir vegna innlagna á Edge-reikninga Kaupþings í Þýskalandi.
„Þjóðverjar verða að skilja að fólkið á Íslandi hefur tapað öllu," segir Ólafur Ragnar í frétt, sem birtist undir fyrirsögninni „Ísland hafnar þýskum sparifjáreigendum". Frétt þessi hefur þegar vakið athygli í Þýskalandi og hafa alþjóðlegar fréttastofur tekið hana upp.
Í ljósi þessa verði ekki lagt á íslenska skattgreiðendur að standa einnig skil á tapi þýskra sparifjáreigenda. Það sé „óréttlátt" að þýskir innistæðueigendur búist við því að Ísland beri „allan þunga" fjármálakreppunnar, er haft eftir forsetanum.
„Ég er hissa á kröfum vina okkar í útlöndum,“ segir hann. Alþjóðlega fjármálakreppan sé ekki bara mál Íslendinga, er haft eftir honum. Evrópska bankakerfið beri mun fremur ábyrgð og aðkallandi sé að gera umbætur á því.
Í fréttinni segir að þrjátíu þúsund þýskir sparifjáreigendur hafi verið lokkaðir til að leggja 330 milljónir evra inn á reikninga Kaupþings með háum vöxtum. Eftir bankahrunið hafi eignir bankans verið frystar og þýskir innistæðueigendur hafi án árangurs reynt að fá fé sitt til baka. Tekið er fram að orð forsetans stangist á við opinberar yfirlýsingar Kaupþings. Fulltrúar bankans hafi á fundi í Reykjavík á fimmtudag sagt að allir þýskir sparifjáreigendur fengju bætur. Hins vegar hefði valdið vonbrigðum að ekki hefði komið fram hvenær það myndi gerast. 250 þýskir sparifjáreigendur voru á fundinum, þar á meðal Karlheinz Bellmann, sem einnig kom til Íslands í nóvember til að krefjast 110 þúsund evra, sem hann lagði inn á reikninga Kaupþings.
Í frétt Financial Times Deutschland kennir Ólafur Ragnar auk evrópsks bankakerfis Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands, um fjármálakreppuna á Íslandi vegna þess að hann hafi beitt hryðjuverkalögum á Íslendinga. „Gordon Brown og fleiri líta hrokafullir niður á Ísland," er haft eftir Ólafi Ragnari. Ákvörðun Browns um að setja Ísland á listann yfir „hryðjuverkaríki" hafi gert „illt verra". Kaupþing hafi verið fellt með einhliða aðgerð Bretanna. Að sögn Ólafs Ragnars skuldi Brown Íslendingum skýringu á aðgerðum.
Bloggað um fréttina
-
Hallur Magnússon #9541 Ólafur Ragnar kominn í bullandi pólitík -
Hildur Sif Thorarensen Er þetta nú skynsamlegt? -
Halldóra Halldórsdóttir Loose cannon? -
Stefán Friðrik Stefánsson Enn eitt klúðrið hjá Ólafi Ragnari -
Þorsteinn Siglaugsson Hvað er í glösunum á Bessastöðum? -
Gunnar Þórðarson Bessastaðabullarinn -
Vilhjálmur Þorsteinsson Úbbs! Meira að segja forsetinn skilur þetta ekki... -
Rúnar Þór Þórarinsson Úff... Ganga fyrirfram frá að lesa viðtöl sem birta skal -
Sveinn Ingi Lýðsson Er þetta hlutverk forsetans? -
Hulda Elma Guðmundsdóttir Dorrit inn - Davíð út -
Ragnar Borgþórs Bóndinn á Bessastöðum... -
Baldvin Jónsson Drepum þá alla - látum Guð skera úr um sekt ... -
Kristján Logason Konungur vor -
Halldór Halldórsson Verður ekki búsáhaldabylting við Bessastaði? -
Guðbjörn Jónsson Eitt versta mein samtímans -
Heiða B. Heiðars Það verður að þagga niður í þessum manni! -
Jónas Egilsson Tími Ólafs Ragnars kominn? -
Sigurlaug Guðrún Inga Gísladóttir Nú skal ég skála við forsetan. -
Egill Jón Kristjánsson Hvað má Dorrit og hvað má Ólafur Ragnar? -
Margrét Rún Guðmundsdóttir Kraus Forseti sem klúðrar! -
Ingunn Guðnadóttir Mikið vildi ég.... -
Björn Finnbogason Fly him to the moon! -
Guðmundur Jónas Kristjánsson Forsetinn haldinn fordómum gagnvart albestu vinaþjóð !!!
Innlent »
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 10. febrúar 2009, Innlent Óbreytt afstaða stjórnvalda
- Þriðjudagur, 10. febrúar 2009, Innlent Orðum forsetans slegið upp
- Þriðjudagur, 10. febrúar 2009, Innlent Viðtalið tekið úr samhengi
- Þriðjudagur, 10. febrúar 2009, Innlent Forseti Íslands sendir yfirlýsingu til þýskra fjölmiðla
- Miðvikudagur, 12. nóvember 2008, Innlent Vaxandi reiði í garð Íslendinga
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli




































