Blómleg fasteignasala í Eyjum
Eftir Jón Pétur Jónsson jonpetur@mbl.isÞað gengur vel að selja fasteignir í Vestmannaeyjum um þessar mundir. Að sögn Guðjóns Hjörleifssonar, eiganda fasteignar- og skipasölunnar Heimaeyjar, hafa 16 fasteignir verið seldir frá því um áramót. Fjórtán í Eyjum og tvær í Reykjavík. „Ég sé fram á gott ár,“ segir Guðjón.
Alls hefur Guðjón selt sex einbýlishús í Eyjum og eitt verslunarhúsnæði. Þá segir hann að þrjár íbúðir hafi t.d. verið seldar í einum og sama stigaganginum í fjölbýlishúsi. Fólk sé greinilega í fasteignahugleiðingum. „Það er gott hljóð í Eyjamönnum.“
Hann segir hins vegar að það vanti hreyfingu á fasteignamarkaðinn í Reykjavík til að fá fleiri til Eyja. Hann segist vita af fimm eða sex sem vilji selja húsnæðið sitt í höfuðborginni og kaupa einbýlishús í Vestmannaeyjum.
„Það er mikill uppgangur og hérna er engin kreppa,“ segir Guðjón. Fyrirtækin í Eyjum séu öflug og tekjur almennt góðar.
Allt tal um kreppu sé því einfaldlega bannað. „Ef einhverjum dettur í
hug að ræða það þá er hann bara sendur út til að kæla sig og beðinn um að koma aftur þegar hann hressist.“
Spurður út í það hvernig fólki gangi að fá lán til íbúðarkaupa segir
Guðjón: „Mér finnst Íbúðalánasjóður standa sig rosalega vel í öllum
samskiptum, og það er fínn hraði á þessu.“
Hann segir að nýverið hafi átta tilboð verið samþykkt á einum og sama deginum. Það sé mjög ólíkt því sem hafi verið í janúar og febrúar í fyrra þegar hann seldi aðeins fjórar íbúðir. „Þetta er alveg ótrúlega gott,“ segir Guðjón.
Bloggað um fréttina
-
Gísli Foster Hjartarson Já það borgar sig ekki... -
Bogi Jónsson Minni kreppa í útlöndum
Innlent »
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Laugardagur, 2. maí 2009, Innlent Amma á Facebook
- Föstudagur, 12. febrúar 2010, Innlent Þjónusta í rúma öld er á enda
- Miðvikudagur, 23. desember 2009, Innlent Neita að selja Fréttablaðið í Eyjum
- Laugardagur, 5. september 2009, Innlent Krefst heiðarleika af hálfu stjórnvalda
- Mánudagur, 21. janúar 2008, Innlent Harmar persónulegar árásir
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli



































