Staðið verði við umsamdar launahækkanir

Fulltrúar Samtaka atvinnulífsins og Alþýðusambands Íslands á samningafundi í febrúar …
Fulltrúar Samtaka atvinnulífsins og Alþýðusambands Íslands á samningafundi í febrúar 2008.

Samninganefnd AFLs Starfsgreinafélags telur forsendur kjarasamninga sem undirritaðir voru í febrúar 2008 brostnar. Nefndin krefst þess að staðið verði við þau ákvæði aðalkjarasamninga er varða launahækkanir 1. mars nk. Telji Samtök Atvinnulífsins fyrirtækin ekki geta staðið við þann hluta kjarasamninganna, telur AFL eðlilegt að SA segi samningunum lausum.

Samninganefnd AFLs Starfsgreinafélags kom saman á fundi í kvöld. Í ályktun sem samþykkt var á fundinum segir að komi til þess að forsendunefnd telji að unnt sé að ná samkomulagi, sem telja megi til hagsbóta í ljósi þungra aðstæðna í efnahagslífi, en sem þó stenst ekki lágmarkskjör gildandi samninga, hvetur samninganefnd AFLs til þess að frágangi slíks samkomulags verði vísað til samninganefnda
landssambanda ASÍ þannig að unnt sé að láta fara fram allsherjaratkvæðagreiðslu innan hvers sambands.

„Í ljósi umróts í þjóðfélaginu er brýnt að verkalýðshreyfingin gangi í fararbroddi opinna og lýðræðislegra skoðanaskipta og ákvarðanatöku. Þar sem umboð forsendunefndar ASÍ og SA er óljóst telur samninganefnd AFLS eðlilegt að ákvörðunum um skerðingu kjara, verði vísað til félagsmanna, þ.e. þeirra sem með atkvæðum sínum gerðu samningana gilda og gáfu forsendunefndinni umboð sitt,“ segir í ályktun samninganefndar AFLs.

Nefndin bendir á að á næstu misserum muni hagsmunabarátta á Íslandi harðna til muna þar sem færri krónur eru til skiptanna og vandamálin fleiri en áður hefur þekkst. Því sé brýnt að verkalýðshreyfingin fylki sér og efli samstöðu til að búa sig undir að verja grundvöll velferðarkerfisins.

Samninganefnd AFLs hvetur forystu Alþýðusambandsins til að vera það forystuafl sem launafólk þarf á að halda.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert