Árósasamningurinn verður fullgiltur

stækka

mbl.is/Ómar

Ríkisstjórnin hefur samþykkt tillögu Kolbrúnar Halldórsdóttur, umhverfisráðherra um að Árósasamningurinn verði fullgiltur hér á landi. Samningurinn fjallar um aðgang að upplýsingum, þátttöku almennings í ákvarðanatöku og aðgang að réttlátri málsmeðferð í umhverfismálum.

Samningurinn var gerður árið 1998 og öðlaðist gildi í október árið 2001. Þrjátíu og átta ríki undirrituðu hann auk Evrópubandalagsins, þ.á m. Ísland. Fjörutíu og eitt ríki auk Evrópubandalagsins hafa fullgilt samninginn, öll norrænu ríkin þar á meðal að Íslandi undanskildu.

Þríþætt réttindi almennings

Árósasamningurinn tengir saman umhverfisrétt og mannréttindi. Í samningnum segir að það sé réttur sérhvers manns að lifa í heilbrigðu umhverfi og um leið beri honum skylda til að vernda umhverfið. Samningurinn á að tryggja almenningi réttindi til að geta uppfyllt þessa skyldu.

Réttindin eru þríþætt. Réttur til aðgangs að upplýsingum um umhverfismál, réttur almennings til þátttöku í málsmeðferð þegar undirbúnar eru ákvarðanir af hálfu stjórnvalda í umhverfismálum og aðgangur að réttlátri málmeðferð í umhverfismálum fyrir dómstólum eða öðrum óháðum og hlutlausum úrskurðaraðila.

Breytingar á íslenskri löggjöf

Nefnd sem fór yfir ákvæði Árósasamningsins skilaði skýrslu til þáverandi umhverfisráðherra haustið 2006. Hlutverk nefndarinnar var m.a. að fara yfir hvaða breytingar þyrfti að gera á íslenskum lögum yrði samningurinn fullgiltur. Niðurstaða nefndarinnar var sú að fyrir hendi sé fullnægjandi löggjöf hér á landi um fyrstu tvær stoðir Árósasamningsins, sem varða aðgang að upplýsingum um umhverfismál og rétt til að taka þátt í töku ákvarðana um umhverfismál og uppfylli því kröfur samningsins að því leyti.

Nefndin taldi hins vegar að íslensk lög uppfylltu ekki þriðju stoð Árósasamningsins, sem fjallar um aðgang að réttlátri málsmeðferð. Því þyrfti að gera breytingar á lögum kæmi til fullgildingar samningsins.

Samkvæmt þriðju stoðinni skal almenningur sem málið varðar, hafa aðgang að endurskoðunarleið fyrir dómstólum eða óháðum úrskurðaraðila innan stjórnsýslunnar vegna útgáfu leyfa til framkvæmda sem geta haft umtalsverð umhverfisáhrif eða ef stjórnvald vanrækir að krefjast leyfis fyrir tiltekinni starfsemi þrátt fyrir lagaskyldu þar um.

Samkvæmt samningnum skulu umhverfisverndarsamtök ávallt teljast falla undir hugtakið almenningur sem málið varðar, og njóta þannig kæruréttar samkvæmt samningnum án þess að þurfa að sýna fram á lögvarða hagsmuni.

Aðildarríkin geta ennfremur valið um það hverskonar endurskoðunarleiðir eru opnar almenningi sem málið varðar, þ.e. annaðhvort endurskoðunarleið innan stjórnsýslunnar, þannig að unnt sé að leggja ákvarðanir um útgáfu leyfa fyrir sérstakar úrskurðarnefndir, eða fyrir almennum dómstólum.

Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum mánudaginn 9. febrúar sl. að fela umhverfisráðherra í samráði við utanríkisráðherra og dómsmálaráðherra, að ákveða hvor leiðin verði farin hér á landi við fullgildingu Árósasamningsins og hefja undirbúning við þá vinnu.

Tillaga um fullgildingu Árósasamningsins

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Bensíngjöfin festist niðri

17:46 Bíll skemmdist þegar henni var ekið stjórnlaust inn í trjágróður við Hvassaleiti í Reykjavík um kl. 13:30 í dag.  Meira »
Þóra Arnórsdóttir ávarpaði gesti við opnun kosningamiðstöðarinnar í dag.

Gagnrýnir túlkun forseta Íslands

17:36 Helsta ógnun við stjórnskipun landsins er teygjanleg túlkun Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands, á valdsviði forseta. Þetta sagði Þóra Arnórsdóttir forsetaframbjóðandi þegar hún opnaði kosningaskrifstofu sína í dag. Meira »

Leitarmenn kallaðir til baka

Ligitu Solomenceva
18:03 Búið er að kalla til baka þá sem leitað hafa að lettnesku konunni við Meðalfellsvatn í dag. Ekki hafa borist staðfestar fréttir af örlögum konunni. Meira »

Stöðvaður eftir ofsaakstur

17:23 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði í dag ofsaakstur fólksbíls sem ók á miklum hraða eftir Miklubraut. Hann ók m.a. utan í bíl. Ökumaður grunaður um ölvun og vímuefnaneyslu. Meira »

Listflug við Reykjavíkurflugvöll

Á sýningunni var hægt að skoða flugvélar af öllum stærðum og gerðum.
15:54 Fjöldi fólks hefur í dag fylgst með flugvélum sýna listflug á Reykjavíkurflugvelli, en Flugmálafélags Íslands stóð fyrir flugsýningu þar sem hægt var að skoða flugvélar af öllum stærðum og gerðum. Meira »

Þröstur og Bragi jafnir

17:27 Jafntefli varð í fjórðu og síðustu skák úrslitaeinvígis Braga Þorfinnssonar (2449) og Þrastar Þórhallssonar (2424) um Íslandsmeistaratitilinn í dag en teflt var í Stúkunni við Kópavogsvelli. Meira »

Alsírsku drengirnir áfrýja

Héraðsdómur Suðurlands.
16:25 Alsírsku drengirnir sem sakfelldir voru í héraðsdómi Suðurlands fyrir að framvísa fölsuðum vegabréfum við komu til Íslands hafa áfrýjað dómnum til hæstaréttar. Héraðsdómur dæmdi þá til 30 daga fangelsisvistar þann 30. apríl síðastliðinn. Meira »

Ákærður fyrir að stinga mann

Guðgeir Guðmundsson var úrskurðaður í gæsluvarðhald eftir árásina.
14:26 Ákæra gegn Guðgeiri Guðmundssyni, sem sakaður er að hafa 5. mars. sl. stungið tvo starfsmenn lögmannsstofnunnar Lagastoða, verður þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur á morgun. Annar mannanna særðist lífshættulega og lá í marga daga á gjörgæsludeild. Meira »

Landsbjörg leitar enn að Ligitu

Ligitu Solomenceva
14:22 Landsbjörg leitar í dag að hinni 42 ára Ligitu Solomenceva frá Lettlandi. En til hennar hefur ekkert spurst síðan 13 maí. Hún var í sumarbústað við Meðalfellsvatn og var ein á ferð. Meira »

Hreint hjarta besta myndin

Grímur Hákonarson.
13:34 Heimildamynd Gríms Hákonarsonar Hreint hjarta var valinn besta heimildamyndin á Skjaldborg, hátíð íslenskra heimildamynda sem haldin var í sjötta sinn á Patreksfirði um helgina. Meira »

Klára kvótamálin í vikunni

Atvinnuveganefnd stefnir að því að klára umfjöllun um frumvarp um veiðigjald í vikunni.
14:05 Boðaður hefur verið fundur í atvinnuveganefnd Alþingis á morgun til að ræða um kvótafrumvörpin. Lilja Rafney Magnúsdóttir, varaformaður nefndarinnar, segir að frumvörpin verði ekki afgreidd úr nefndinni á morgun, en það verði gert síðar í vikunni. Meira »

Mætti innbrotsþjófum í forstofunni

12:05 Húsráðanda í Reykjanesbæ brá töluvert þegar hann kom heim til sín aðfaranótt laugardagsins en í forstofunni mættu honum tveir bláókunnugir karlmenn. Þeir tóku báðir til fótanna og hurfu út í nóttina. Meira »

Veðurblíða víða um land

Búast má við fjölda fólks í sundi í dag.
11:35 Hiti fer allt upp í 20 gráður á Norðurlandi í dag en að sögn veðurfræðings hjá Veðurstofu Íslands verður mjög gott veður um allt land í dag og næstu daga. Meira »

Kosningamiðstöð Þóru opnuð

Þóra Arnórsdóttir.
10:48 Kosningamiðstöð forsetaframboðs Þóru Arnórsdóttur verður opnuð í gömlu Heilsuverndarstöðinni við Barónsstíg í dag.   Meira »

Peningar ekki rót alls ills myndskeið

Peningar ekki rót alls ills
Í gær, 21:46 Framhaldsskólanemar eyða almennt mestum pening í mat, áfengi og bensín. Þeim gengur misvel að spara og fæstir hafa fengið nokkra fjármálafræðslu, en finnst þörf á því. Þetta kom í ljós þegar mbl.is spjallaði við ungmenni um fjármálalæsi, en í því hafa Íslendingar ítrekað fengið falleinkunn. Meira »

Ölvaður ökumaður reyndi að stinga af

11:08 Sautján ökumenn óku yfir leyfilegum hámarkshraða við umferðareftirlit lögreglunnar á Suðurnesjum um helgina. Ellefu gerðust brotlegir með þeim hætti á aðeins þremur klukkustundum í kringum miðnætti í gær. Meira »

Ferry heillaði í Hörpu

Bryan Ferry í grænum bjarma á tónleikunum í Hörpu í gærkvöldi.
00:43 Bryan Ferry vakti stormandi lukku þegar hann kom fram í Hörpu í gærkvöldi. Ferry lék mörg af sínum þekktustu lögum, jafnt frá sólóferli sínum sem af plötum sínum með hljómsveitinni Roxy Music. Ferry kemur aftur fram í Hörpu í kvöld. Meira »

Fyrst til að verða meistari í bílasmíði

Anna Kristín á leið í útskriftina í gær.
Í gær, 21:19 „Áhuginn hafði alltaf blundað í mér,“ segir Anna Kristín Guðnadóttir, sem í gær útskrifaðist með meistarapróf í bílasmíði fyrst íslenskra kvenna. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Óska eftir Dell 2950 þjóni ódýrt
Óska eftir Dell 2950 netþjóni eða sambærilegu. vinsamlegast sendi upplýsingar á ...
Gott hjól á góðu verði
Til sölu Honda VTX1300R árg 2004 Góð dekk og nýlegir bremsuklossar. Akstur 26....
HONDA CR-V STW 4WD
Honda cr-w 1998. Ekinn 222 þús.sjálfskiptur. Dráttarkúla.Topplúga. Nýr geymir. N...
NÝJAR VÖRUR Í HVERRI VIKU
FLOTTUR BARNAFATNAÐUR Á FRÁBÆRU VERÐI - ERTU BÚIN AÐ KÍKJA? http://www.123budin...
 
Íslandsbanki
Önnur störf
Tækifæri fyrir öfluga sérfræðinga ...
Leikskólastjóri við sunnufold
Stjórnunarstörf
Skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborg...
15210 hjólbarðar
Tilboð - útboð
Útboð 15210 Hjól...
Bl atvinnuaugl
Önnur störf
HYUNDAI FLYTUR Í NÝJA OG GLÆSILEGA FRAMT...