Þreytt áhöfn og slök brautarskilyrði

Léleg brautarskilyrði, skortur á upplýsingum og þreyta áhafnar, eru líklegustu skýringar alvarlegs flugatviks á Keflavíkurflugvelli í október 2007. Boeing 737-800 þotu með tæplega 200 manns um borð hlekktist á í lendingu og rann út af brautarenda. Engan sakaði um borð. Rannsóknarnefnd flugslysa hefur nú skilað skýrslu um atvikið eftir 15 mánaða rannsókn.

Flugvélin var í eigu JetX en var að fljúga fyrir Astraeus. Vélin var að koma frá Antalya í Tyrklandi á vegum íslenskrar ferðaskrifstofu. 188 farþegar voru um borð í vélinni og 10 manna áhöfn.

Vegna langs flugtíma var aukin flugáhöfn og þjónustuáhöfn um borð, þrír flugmenn og 7 flugþjónar.

Um klukkan 02:00, aðfaranótt 29. nóvember 2007, lenti TF-JXF á flugbraut 02 á Keflavíkurflugvelli og endaði utan akbrautar November eða N-4.

Í aðflugi fékk áhöfnin uppgefin bremsuskilyrði og veður fyrir flugbraut 02 í Keflavík og voru þá bremsuskilyrði sögð góð, með ís á stöku stað. Í lendingarbruni varð áhöfn vör við að bremsuskilyrði voru ekki eins og hún bjóst við. Reyndu flugmenn að hægja á flugvélinni með beitingu knývenda og hámarks handvirkri hemlun. Þegar ljóst var að flugvélin myndi ekki stöðvast fyrir brautarenda beygði flugstjórinn vélinni af flugbraut 02 og yfir á akbraut N-4. Þar skreið flugvélin til í hálku og hafnaði með eitt aðalhjóla og nefhjól utan akbrautar.

Engan sakaði um borð. 

Rannsókn rannsóknarnefndar flugslysa, RNF, beindist að fjarskiptum, viðnámsmælingum flugbrauta, flugáætlanagerð og þreytu flugmanna.

Í niðurstöðum lokaskýrslu RNF eru sett fram fjölmörg atriði sem skýrt geta þetta alvarlega atvik.

Fram kemur að áhöfnin hafði verið á vakt í 17 klukkustundir og 20 mínútur. Þegar samskipti voru yfirfarin í flugstjórnarklefa kemur fram að þreyta var farin að segja til sín hjá áhöfn. Samskiptum flugturns og áhafnar vélarinnar virðist hafa verið ábótavant en út frá upplýsingum flugturns áleit flugmaður að brautarskilyrði væru önnur og betri en raun bar vitni. Flugáætlanagerð JetX var ekki sem skyldi. Uppgefið var að vélin tæki 186 farþega en 189 sæti voru seld og þar með sæti í svæði sem sérstaklega var ætlað sem hvíldaraðstaða áhafnar vegna langs flugtíma. Þá hafði þreyta áhrif á ákvarðanatöku flugmanns sem sá um lendingu, að mati RNF.

Í skýrslu RNF er bent á átta atriði sem betur mættu fara. Bæði JetX og yfirvöld á Keflavíkurflugvelli hafa þegar brugðist við og hreint í framkvæmd nokkrum þeirra atriða sem bent er á í skýrslunni. Þá hefur reglugerð um flug- og vinnutímamörk og hvíldartíma flugverja verið breytt. Ný reglugerð tók gildi 1. febrúar síðastliðinn en samkvæmt henni er hámarksflugvakt 13 klukkustundir en heimilt að lengja hana og þá með því að fjölga í áhöfn og gæta ákvæða um hvíldartíma.

PDF-skrá Skýrsla RNF um atvikið
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Velta á fasteignamarkaði frá janúar til febrúar í ár var 46,335 milljarðar kr. en var ...

Lántakendur varaðir við

05:30 Grípi Seðlabankinn til þess ráðs að hækka vexti frekar gæti það haft veruleg áhrif á mánaðarlega greiðslubyrði af óverðtryggðum fasteignalánum. Meira »
Rússnesk skip umskipa afla í Hafnarfjarðarhöfn eftir veiðar á Reykjaneshrygg.

Athugasemdir við Rússa

05:30 Íslensk stjórnvöld hafa komið alvarlegum athugasemdum á framfæri við sendiherra Rússlands á Íslandi vegna karfaveiða Rússa á Reykjaneshrygg. Meira »

Flugfarþegi lak plötu á netið

Umslag plötunnar Valtari.
05:30 Áttunda og nýjasta plata Sigur Rósar, Valtari , kom út í gær en hún er fyrsta breiðskífa sveitarinnar frá því Með suð í eyrum við spilum endalaust kom út fyrir fjórum árum. Meira »

Störfum í bönkum fækkað um 2.000

Friðbert Traustason. Formaður Sambands íslenskra bankamanna .
05:30 Störfum hjá fjármálafyrirtækjum hefur fækkað um 2.000 frá því vorið 2008. Útibúum bankanna hefur fækkað um helming á sama tíma. „Þetta hefur verið hreint hörmungarástand,“ segir Friðbert Traustason, formaður Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Meira »

Segir stuðning við Kanadadollar

Kanadadollari. Úr myndasafni.
Í gær, 22:15 „Þetta er rætt í alvöru á Íslandi. Efnahagsráðherrann fór til Kanada fyrir sex vikum og fundaði með kanadíska seðlabankanum og með þingmönnum og að ég tel fjármálaráðuneytinu líka. Hann kom síðan aftur til Íslands og sagði opinberlega að þetta væri möguleiki sem væri ekki hægt að útiloka.“ Meira »

Kostnaður við komu 4 milljónir

Wen Jiabao og Jóhanna Sigurðardóttir á Geysi
05:30 Ekki hefur verið sótt um aukafjárveitingu vegna kostnaðar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu við heimsókn kínverska forsætisráðherrans Wens Jiabaos. Meira »

Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi

04:53 Sunnan- og suðvestanátt verður á landinu í dag, yfirleitt 5-15 m/s, hvassast norðan- og vestanlands. Rigning við Breiðafjörð og á Vestfjörðum, léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi, en skýjað og súld með köflum syðra. Meira »

Brotist inn meðan íbúar skruppu frá

Í gær, 21:09 Tilkynnt var um innbrot í heimahús í Grafarvogi klukkan sjö í kvöld og söknuðu húsráðendur sjónvarps og ýmissa raftækja. Þeir brugðu sér af bæ í rúma klukkustund og þegar þeir komu heim var búið að brjóta rúðu og komust þjófarnir þannig inn. Meira »

Stefnan áframhaldandi lágt gengi

Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður.
Í gær, 20:11 „Það er alveg ljóst mál að þetta kosningaplagg ríkisstjórnarinnar sem kallað hefur verið framkvæmdaáætlun er byggð á þeirri forsendu að gengi íslensku krónunnar haldist álíka veikt og það er í dag,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is. Meira »

Tryggja að allir komist heilir heim

Í gær, 18:59 Haldið verður úti auknu umferðareftirliti í sumar á Vesturlandsvegi, Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut af hálfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra. Meira »

Meintar falsanir til lögreglunnar

Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 19:39 Tekin var ákvörðun um það í dag af yfirkjörstjórnum í Reykjavík að vísa meintum fölsunum á undirskriftum á meðmælendalistum Ástþórs Magnússonar, forsetaframbjóðanda, til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Gæsluvarðhaldið staðfest

Í gær, 18:29 Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir tveimur karlmönnum sem grunaðir eru um að hafa valdið dauða samfanga síns í fangelsinu á Litla-Hrauni fyrir rúmri viku. Héraðsdómur hafði áður úrskurðað mennina í gæsluvarðhald til 13. júní. Meira »

Fundur Háskólalestarinnar fellur niður

Frá Ísafirði. Úr myndasafni.
Í gær, 18:22 Fram kemur í tilkynningu frá Háskólalestinni að fyrirlestur um forsetaframboðið sem fara átti fram á Ísafirði í kvöld klukkan 20:00 falli niður vegna þess að öllu flugi frá Reykjavíkur til Ísafjarðar í dag hafi verið aflýst. Meira »

Ólafur mælist með mest fylgi

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.
Í gær, 18:09 Mikill viðsnúningur hefur orðið í fylgi við forsetaframbjóðendurna Ólaf Ragnar Grímsson og Þóru Arnórsdóttur ef marka niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Capacent Gallup sem greint var frá í fréttum Ríkisútvarpsins. Meira »

Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð

Í gær, 17:49 Talsvert magn af fíkniefnum fannst við húsleit lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í kjallaraíbúð í miðborginni í gær.   Meira »

Húsbíll fauk af vegi

Í gær, 18:09 Húsbíll fauk í Fljótum, skammt frá Ketilási um hádegisbilið í dag. Tvennt var í bílnum og voru þau flutt á heilsugæsluna á Siglufirði til aðhlynningar. Meira »

Yfirheyrslur héldu áfram í dag

Fangelsið á Litla-Hrauni.
Í gær, 18:00 Yfirheyrslur vegna láts fanga á Litla-Hrauni, sem talið er hafa borið að með sviplegum hætti, héldu áfram í dag og var nokkur fjöldi vitna yfirheyrður, þar á meðal fólk sem tengist fangelsinu. Meira »

Bátur fauk á annan bát

Hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í dag.
Í gær, 17:49 Afar hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í allan dag og í morgun fauk bátur á annan bát í Grindavíkurhöfn.  Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Fleetwood Cheyenne (Resolute) 2006
Fleetwood Cheyenne 10 fet. Mjög vel með farið fellihýsi - lítið notað, nýskr. 20...
NÝJAR VÖRUR Í HVERRI VIKU
FLOTTUR BARNAFATNAÐUR Á FRÁBÆRU VERÐI - ERTU BÚIN AÐ KÍKJA? http://www.123budin...
Hænsnahús Til sölu
Til sölu heimili fyrir landnámshænur. Einangrað og klætt að innan. Varpkassar og...
Nýleg springdýna 153 cm. á breidd.
Mjög góð og lítið notuð, Lítur út eins og ný, Fæst á aðeins 15000. ef tekin e...
 
Kristniboðssambandið samkoma
Félagsstarf
Háaleitisbraut 58-60 Samkoma í kvöld kl....
12836 fellahverfi - útboð

út­boð Reykja­víkur­bor­g Innka­upa­...
Deiliskipulag á grundartanga

Deiliskipulag á Grundartanga Austur...
Deiliskipulagstillaga á grundartanga

Deiliskipulagstillaga á Grundartang...