Ekkert nýtt í athugasemdum
Álfheiður Ingadóttir. mbl.is
Álfheiður Ingadóttir, formaður viðskiptanefndar Alþingis, segir að í athugasemdum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (IMF) við frumvarpi um breytingar á lögum um Seðlabankann sé ekkert sem ekki hafi komið fram í umræðum á Alþingi eða á fundum viðskiptanefndar. Alþingi hafi löggjafarvaldið og þingmenn muni hlusta á allar athugasemdir, þ.m.t. frá sjóðnum.
Álfheiður vill ekki segja hvað henni finnist um frumvarpið en sjálfstæðismenn hafa gagnrýnt það harðlega og framsóknarmenn lýst efasemdum um ákveðna þætti þess. „En ég hlusta á það sem menn hafa fram að færa, bæði þingmenn í ræðum og athugasemdum og eins á þá sem koma fyrir nefndina," sagði hún í samtali við Morgunblaðið í dag. Frumvarpið væri til umfjöllunar í viðskiptanefnd og aftur yrði fjallað um það á nefndarfundi á mánudag.
Álfheiður sagði að margar gagnlegar ábendingar hefðu komið fram á fundi viðskiptanefndar í morgun, ekki bara um það sem þyrfti að bæta í frumvarpinu heldur líka um það sem þyrfti að breyta í núgildandi lögum um Seðlabankann. Einnig hefði verið bent á nauðsyn þess að nefndin tefði ekki afgreiðslu frumvarpsins að nauðsynjalausu, m.a. hefði Alþýðusamband Íslands lagt áherslu á það.
Fram hefur komið að viðskiptanefnd veitti Seðlabankanum sem og öðrum sem beðnir voru umsagnir aðeins tveggja daga frest til að senda nefndinni athugasemdir um frumvarpið. Aðspurð hvers vegna fresturinn væri svo stuttur sagði Álfheiður að enginn annar en Seðlabankinn hefði óskað eftir framlengingu á þeim fresti en bankinn hefði fallist á að skila inn umsögn á mánudaginn.
En tveggja daga frestur, er það ekki óvenju stuttur frestur?
„Það er ekki óvenjulega stuttur frestur í máli af þessari stærðargráðu. Ég vek athygli á því að öll stærstu mál sem varða efnahagshrunið voru ekki einu sinni send út til umsagnar," sagði hún. Um væri að ræða um tug laga sem hefðu verið sett í tengslum við hrunið. „Þetta mál er þess eðlis er að það er mikill skaði ef það væri látið liggja hér inni á þinginu að nauðsynjalausu, það þarf að ljúka þessu máli og létta þessari óvissu."
Innlent »
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 19. febrúar 2009, Innlent Aðalatriði óbreytt en kröfurnar rýmkaðar
- Miðvikudagur, 18. febrúar 2009, Innlent Menntunarkröfur rýmkaðar
- Föstudagur, 13. febrúar 2009, Innlent Afþökkuðu umsögn Seðlabanka Evrópu
- Þriðjudagur, 10. febrúar 2009, Innlent Birgir upplýsi hvar hann frétti af tölvupósti
- Fimmtudagur, 19. febrúar 2009, Innlent Seðlabankafrumvarpið úr nefnd
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli



































