Margir einfarar í umferðinni
76% fullorðinna fóru einir í einkabíl til vinnu eða skóla í nóvember og desember 2008 og 66% grunnskólabarna gengu í skólann sinn. Þetta kemur fram í könnun Umhverfis- og samgöngusviðs á ferðavenjum.
Einförum fjölgar
Spurt var „Með hvaða hætti ferðast þú að jafnaði til vinnu eða skóla á morgnana?“ Í ljós kom að 76% fóru einir í einkabíl, 7% fóru gangandi til vinnu eða skóla, 6% með strætó, 2% á reiðhjóli, 8% sem farþegar í bifreið og 2% með öðrum hætti. Sama spurning var lögð fyrir árið 2006 og þá reyndust 73% svarenda fara einir í einkabíl til vinnu eða skóla. Farþegum í bíl á leið til vinnu fjölgar einnig úr 4% í 8% milli áranna 2006 og 2008.
Færri ganga til vinnu en áður en þó reyndust íbúar í miðborginni mesta göngufólkið því 22% íbúa í Vesturbæ og miðbænum ganga í vinnuna. Einungis 2% íbúa í Grafarvogi og Kjalarnesi ganga í vinnuna. Fleiri Reykvíkingar (9%) ganga til vinnu en í öðrum sveitarfélögum (5%) á höfuðborgarsvæðinu.
Fáir í strætó
Fólk á aldrinum 17-24 ára nýtir strætó betur en aðrir aldurshópar eða 18%, en geta má þess að nemendur í framhalds- og háskólum í Reykjavík fá frítt í strætó. Næsti hópur er með 5% nýtingu en það er fólk á aldrinum 25-34 ára.
Konur reyndust oftar farþegar í bíl en karlar. 11% kvenna í könnunni voru farþegar í bíl en einungis 5% karla. Einnig kom fram í gögnum að eftir því sem launin eru hærri er líklegra að viðkomandi fari einn í einkabíl í vinnuna.
Eldri foreldra keyra börn síður í skólann
Einnig var spurt í þessari ferðavenjukönnun sem gerð var í nóvember 2008: „Með hvaða hætti fór barnið þitt/börnin þín í grunnskólann í morgun?“ Niðurstöðurnar eru að börn ganga gjarnan í skólann sinn. 66% barna fóru fótgangandi, 31% í einkabíl, 5% á hjóli, 4 með strætó og tæplega 1% með öðrum hætti.
10% færri grunnskólabörn gengu þó í skólann í nóvember 2008 miðað við 2005 en þá gengu 76% barna í skólann. 12% fleiri grunnskólabörn fóru í einkabíl í skólann í nóvember 2008 miðað við 2005. Fleiri börn fara nú í strætó í skólann en 2005 og fleiri hjóla í skólann en áður.
Úr gögnum má ennfremur lesa að ungir foreldrar keyra börnin sín oftar í skólann heldur en eldri foreldrar. Börn í Reykjavík eru líklegri til að fara fótgangandi í skólann miðað við önnur sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu. Börn í Hlíðunum, Laugardal og Háaleiti eru oftar keyrð í skólann en börn í Breiðholti, Grafarvogi og Kjalarnesi sem eru um leið líklegri til að ganga í skólann.




































