Tekist á um frestun launahækkana
Að lokinni undirritun kjarsamninga ASÍ og SA í húsakynnum ríkissáttasemjara 17. febrúar 2008. mbl.is/Árni Sæberg
Formenn aðildarfélaga Alþýðusambands Íslands hafa verið boðaðir til fundar á mánudag til að ræða hugmynd miðstjórnar og forseta ASÍ um að fresta endurskoðun kjarasamninga og þeim launahækkunum til félagsmanna á hinum almenna vinnumarkaði sem eiga að koma til 1. mars nk.
Félagsmenn í ASÍ eru ríflega 108.000 í 5 landssamböndum og 64 aðildarfélögum um land allt. Þar af eru ríflega 98.000 virkir á vinnumarkaði. Stærsta landssambandið er Starfsgreinasamband Íslands með rúmlega 53 þúsund félagsmenn í 24 félögum.
Mjög skiptar skoðanir eru um hugmynd 15 manna miðstjórnar og forseta ASÍ. Fjölmörg félög innan Starfsgreinasambands Íslands hafa krafist þess að atvinnurekendur standi við gerða samninga og hafnað því algerlega að fresta endurskoðun og hækkun á launalið samninganna.
Þau félög sem hafa gagnrýnt þessa hugmynd harðlega eru t.d. Verkalýðsfélag Akraness, Framsýn Stéttarfélag, Verkalýðsfélag Vestfirðinga, Afl - starfsgreinafélag Austurlands og Drífandi í Vestmannaeyjum.
Önnur hafa talið skynsamlegt að fresta opnunarákvæðum kjarasamninga fram yfir ríkisstjórnarmyndun að afloknum kosningum til Alþingis í vor. Hins vegar yrði leitast við að ná meginmarkmiðum kjarasamningsins en það þýðir að reynt verði að ná nýju samkomulagi um tímasetningu kaupliða meðan aðrir liðir og samningurinn sjálfur halda gildi sínu.
Meðal félaga sem telja þessa leið skynsamlega eru Eflinga-stéttarfélag, Verkalýðsfélagið Hlíf og Verkalýðs- og sjómannafélag Keflavíkur.
Tekist verður á um hugmyndir miðstjórnar og forseta ASÍ á fundinum á mánudag en afstaða fyrrgreindra félaga birtist glöggt í ályktunum sem samþykktar hafa verið síðustu daga.
Bloggað um fréttina
-
Björn Grétar Sveinsson landsbyggðafélögi standa sig -
Njörður Helgason Í þágu hverra vinnur verkalýðshreyfingin?
Innlent »
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 16. febrúar 2009, Innlent Launafólkið greiði atkvæði um frestun hækkana
- Mánudagur, 16. febrúar 2009, Innlent Hitafundur um kjarasamninga
- Miðvikudagur, 11. febrúar 2009, Innlent Staðið verði við gerða samninga
- Miðvikudagur, 25. febrúar 2009, Innlent Sjá ekki ástæðu til að svara
- Þriðjudagur, 17. febrúar 2009, Innlent Vilja allsherjaratkvæðagreiðslu um frestun hækkana
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli



































