Óritskoðaðar Íslendingasögur loks á dönsku

stækka

Þorkell Þorkelsson

Danir fagna því nú, að Íslendingasögurnar verði brátt gefnar út óritskoðaðar á dönsku. Danska blaðið Politiken segir á vef sínum í dag, að hinn íslenski getnaðarlimur fái nú loks uppreisn æru en í dönskum þýðingum hafi berorðum köflum í Íslendingasögunum verið sleppt.

Blaðið segir m.a. að í upphafi Njálu sé fjallað um kynlífserfiðleika hjóna og er blaðið væntanlega að vísa til þess þegar Unnur kvartar yfir því við Mörð föður sinn, að hörund Hrúts, eiginmanns hennar, sé svo mikið að hann megi ekki hafa eftirlæti við hana.  Blaðið segir, að þetta standi að minnsta kosti í gömlu íslensku kálfskinnshandritunum - en ekki í dönsku þýðingunni. Til þessa hafi Danir aðeins getað lesið ritskoðaða útgáfu þar sem allar tilvísanir til kynlífs söguhetjanna séu fjarlægðar en aðeins vísað til hjónabandserfiðleika.

Brátt eigi Danir þó þess kost að lesa Íslendingasögurnar eins og þær voru skrifaðar fyrir sjö öldum því von sé á nýrri útgáfu 45 Íslendingasagna eftir um það bil tvö ár. 

Til stendur að gefa Íslendingasögurnar út í óstyttri útgáfu í Svíþjóð, Danmörku og Noregi árið 2011. Hefur blaðið eftir Kim Lembek, einum af dönsku þýðendunum, að þetta sé löngu tímabært. Um er að ræða samnorrænt verkefni á vegum Saga forlags, sem stofnað var vegna þessa.  Um er að ræða stærsta þýðingarverkefni sem ráðist hefur verið í á Norðurlöndum. Er áætlað að það muni kosta um 17 milljónir danskra króna, eða nærri 290 milljónir íslenskra króna. Hefur  norræni menningarsjóðurinn m.a. styrkt verkefnið. Lembeck bendir á að þar sem verkefnið sé fjármagnað með þessum hætti þá muni núverandi efnahagskrísa á Íslandi ekki hafa neikvæð áhrif á útfærslu verksins. 

Lembek segir, að ritskoðunin á Njálu sé alls ekki eina dæmið því  danskar útgáfur Íslendingasagnanna séu mjög ritskoðaðar. Þegar N.M. Petersen þýddi þær í kringum 1840 mátti ekki skrifa hvað sem er í Kaupmannahöfn. Þegar Johannes V. Jensen var meðal þýðenda sagnanna í kringum árið 1930 hafi hann litið á þær sem hetjubókmenntir og því ákveðið að fjarlægja alla kímni og grófleika úr textanum. 

„Við höfum því aðeins fengið hálfa söguna sem gefur alranga mynd af Íslendingasögunum. Í raun eru þær afar fjölbreyttar og margþættar og innihalda allt frá því gróteska til þess harmræna," segir Lembek. 

Að sögn Lembek er stefnt að því að nýju þýðingarnar verði lesvænni fyrir nútímafólk. „Markmiðið er að textarnir höfðu jafnt til fólks á öllum aldri, þannig að tungumálið verði ekki of framandi,“ segir Lembeck. Bendir hann á að ein áskorun þýðenda felst í því að þýða íslensk orð sem ekki séu til í svipaðri mynd á dönsku. Fyrri þýðendur reyndu að gefa textunum gamalt yfirbragð með því að búa til orð, sem hljómuðu fornnorræn og gáfu, að þeirra mati, textunum aukið vægi. Í dag eru þessi orð hins vegar fullkomlega óskiljanleg. 

„Þetta eru orð sem virðast okkur framandi og sem ekki er hægt að finna í dönskum orðabókum. Í Grettis sögu hef ég t.d. fundið orðið „ældemødig“ sem ekki er til á dönsku. Ég held að Gunnar Gunnarsen þýðandi hafi búið til sitt eigið danska afbrigði af íslenska orðinu „ellimódr“ en á íslensku merkir orðið í raun bara dauðþreyttur eða veikburða af elli,“  útskýrir Kom Lembeck. 

Frétt Politiken

 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Bensíngjöfin festist niðri

17:46 Bíll skemmdist þegar henni var ekið stjórnlaust inn í trjágróður við Hvassaleiti í Reykjavík um kl. 13:30 í dag.  Meira »
Þóra Arnórsdóttir ávarpaði gesti við opnun kosningamiðstöðarinnar í dag.

Gagnrýnir túlkun forseta Íslands

17:36 Helsta ógnun við stjórnskipun landsins er teygjanleg túlkun Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands, á valdsviði forseta. Þetta sagði Þóra Arnórsdóttir forsetaframbjóðandi þegar hún opnaði kosningaskrifstofu sína í dag. Meira »

Leitarmenn kallaðir til baka

Ligitu Solomenceva
18:03 Búið er að kalla til baka þá sem leitað hafa að lettnesku konunni við Meðalfellsvatn í dag. Ekki hafa borist staðfestar fréttir af örlögum konunni. Meira »

Stöðvaður eftir ofsaakstur

17:23 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði í dag ofsaakstur fólksbíls sem ók á miklum hraða eftir Miklubraut. Hann ók m.a. utan í bíl. Ökumaður grunaður um ölvun og vímuefnaneyslu. Meira »

Listflug við Reykjavíkurflugvöll

Á sýningunni var hægt að skoða flugvélar af öllum stærðum og gerðum.
15:54 Fjöldi fólks hefur í dag fylgst með flugvélum sýna listflug á Reykjavíkurflugvelli, en Flugmálafélags Íslands stóð fyrir flugsýningu þar sem hægt var að skoða flugvélar af öllum stærðum og gerðum. Meira »

Þröstur og Bragi jafnir

17:27 Jafntefli varð í fjórðu og síðustu skák úrslitaeinvígis Braga Þorfinnssonar (2449) og Þrastar Þórhallssonar (2424) um Íslandsmeistaratitilinn í dag en teflt var í Stúkunni við Kópavogsvelli. Meira »

Alsírsku drengirnir áfrýja

Héraðsdómur Suðurlands.
16:25 Alsírsku drengirnir sem sakfelldir voru í héraðsdómi Suðurlands fyrir að framvísa fölsuðum vegabréfum við komu til Íslands hafa áfrýjað dómnum til hæstaréttar. Héraðsdómur dæmdi þá til 30 daga fangelsisvistar þann 30. apríl síðastliðinn. Meira »

Ákærður fyrir að stinga mann

Guðgeir Guðmundsson var úrskurðaður í gæsluvarðhald eftir árásina.
14:26 Ákæra gegn Guðgeiri Guðmundssyni, sem sakaður er að hafa 5. mars. sl. stungið tvo starfsmenn lögmannsstofnunnar Lagastoða, verður þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur á morgun. Annar mannanna særðist lífshættulega og lá í marga daga á gjörgæsludeild. Meira »

Landsbjörg leitar enn að Ligitu

Ligitu Solomenceva
14:22 Landsbjörg leitar í dag að hinni 42 ára Ligitu Solomenceva frá Lettlandi. En til hennar hefur ekkert spurst síðan 13 maí. Hún var í sumarbústað við Meðalfellsvatn og var ein á ferð. Meira »

Hreint hjarta besta myndin

Grímur Hákonarson.
13:34 Heimildamynd Gríms Hákonarsonar Hreint hjarta var valinn besta heimildamyndin á Skjaldborg, hátíð íslenskra heimildamynda sem haldin var í sjötta sinn á Patreksfirði um helgina. Meira »

Klára kvótamálin í vikunni

Atvinnuveganefnd stefnir að því að klára umfjöllun um frumvarp um veiðigjald í vikunni.
14:05 Boðaður hefur verið fundur í atvinnuveganefnd Alþingis á morgun til að ræða um kvótafrumvörpin. Lilja Rafney Magnúsdóttir, varaformaður nefndarinnar, segir að frumvörpin verði ekki afgreidd úr nefndinni á morgun, en það verði gert síðar í vikunni. Meira »

Mætti innbrotsþjófum í forstofunni

12:05 Húsráðanda í Reykjanesbæ brá töluvert þegar hann kom heim til sín aðfaranótt laugardagsins en í forstofunni mættu honum tveir bláókunnugir karlmenn. Þeir tóku báðir til fótanna og hurfu út í nóttina. Meira »

Veðurblíða víða um land

Búast má við fjölda fólks í sundi í dag.
11:35 Hiti fer allt upp í 20 gráður á Norðurlandi í dag en að sögn veðurfræðings hjá Veðurstofu Íslands verður mjög gott veður um allt land í dag og næstu daga. Meira »

Kosningamiðstöð Þóru opnuð

Þóra Arnórsdóttir.
10:48 Kosningamiðstöð forsetaframboðs Þóru Arnórsdóttur verður opnuð í gömlu Heilsuverndarstöðinni við Barónsstíg í dag.   Meira »

Peningar ekki rót alls ills myndskeið

Peningar ekki rót alls ills
Í gær, 21:46 Framhaldsskólanemar eyða almennt mestum pening í mat, áfengi og bensín. Þeim gengur misvel að spara og fæstir hafa fengið nokkra fjármálafræðslu, en finnst þörf á því. Þetta kom í ljós þegar mbl.is spjallaði við ungmenni um fjármálalæsi, en í því hafa Íslendingar ítrekað fengið falleinkunn. Meira »

Ölvaður ökumaður reyndi að stinga af

11:08 Sautján ökumenn óku yfir leyfilegum hámarkshraða við umferðareftirlit lögreglunnar á Suðurnesjum um helgina. Ellefu gerðust brotlegir með þeim hætti á aðeins þremur klukkustundum í kringum miðnætti í gær. Meira »

Ferry heillaði í Hörpu

Bryan Ferry í grænum bjarma á tónleikunum í Hörpu í gærkvöldi.
00:43 Bryan Ferry vakti stormandi lukku þegar hann kom fram í Hörpu í gærkvöldi. Ferry lék mörg af sínum þekktustu lögum, jafnt frá sólóferli sínum sem af plötum sínum með hljómsveitinni Roxy Music. Ferry kemur aftur fram í Hörpu í kvöld. Meira »

Fyrst til að verða meistari í bílasmíði

Anna Kristín á leið í útskriftina í gær.
Í gær, 21:19 „Áhuginn hafði alltaf blundað í mér,“ segir Anna Kristín Guðnadóttir, sem í gær útskrifaðist með meistarapróf í bílasmíði fyrst íslenskra kvenna. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Málningar- og viðhaldsvinna
Getum bætt við okkur inni- og útiverkefnum. Vönduð vinnubrögð og góð umgengni. T...
Viking 1706 Fellihýsi til sölu
Er með vel farið Viking fellihýsi 2000 árgerð til sölu, 8,5 fet. Skoðað 2013. He...
Honda 100 F
Til sölu HONDA 100 F torfæruhjól 2004 mjög lítið notað fjórgeingisvél. Fyrir ald...
Freon - Kælimiðlar - 15 ára reynsla
Eigum allar helstu gerðir af kælimiðlum á lager. Beinn innflutningur frá sama fr...
 
Aðalfundur alliance

Aðalfundur 2012 Aðalfundur Alliance...
Okkur vantar liðsauka
Heilbrigðisþjónusta
Okkur vantar liðsauka Fótaa...
Deiliskipulagstillaga á grundartanga

Deiliskipulagstillaga á Grundartang...
Bæjarlögmaður
Sérfræðistörf
Bæjarlögmaður Kópavogsbær auglýsir stö...