Fréttaskýring: Nokkur félög taka ekki í mál að fresta

Mörg félög vilja fresta endurskoðun launa. Önnur eru því mótfallin. stækka

Mörg félög vilja fresta endurskoðun launa. Önnur eru því mótfallin. mbl.is/Skapti

Morgunblaðið Eftir Ómar Friðriksson - omfr@mbl.is

Óvissa er uppi um endurskoðun kjarasamninga og hvort launahækkanir koma til greiðslu 1. mars eins og samningar kveða á um. Þó greinilegur meirihluti sé fyrir því innan ASÍ að fresta endurskoðun samninga og launahækkunum fram á sumar eru a.m.k. fjögur öflug verkalýðsfélög innan Starfsgreinasambandsins á allt annarri skoðun. Félögin hafa fundað stíft að undanförnu en línur ættu að skýrast á formannafundi ASÍ í dag.

Þó hvert félag fari með samningaréttinn er litið svo á að öll félögin séu bundin af afstöðu sameiginlegu samninganefndarinnar sem kemur fram fyrir hönd ASÍ gagnvart atvinnurekendum. Meirihlutinn ráði og líkur séu því á að niðurstaðan verði sú að fresta endurskoðun samninga.

SA standi við samninga eða segi þeim lausum

„Samninganefnd Framsýnar hafnar því alfarið að fresta endurskoðun kjarasamninga fram á sumar. Félagið vill að atvinnurekendur standi við kjarasamninga og hækki laun 1. mars nk. Félagið gerir sér fulla grein fyrir því að ekki verði meira sótt í vasa atvinnurekenda miðað við ástandið í efnahagsmálum þjóðarinnar,“ segir Aðalsteinn Á. Baldursson, formaður félagsins. Fleiri félög innan SGS hafa tekið í sama streng, s.s. AFL starfsgreinafélag á Austurlandi sem segir forsendur samninganna frá í fyrra brostnar. „Samninganefnd AFLs krefst þess að staðið verði við þau ákvæði aðalkjarasamninga er varða launahækkanir 1. mars nk. Telji Samtök atvinnulífsins fyrirtækin ekki geta staðið við þann hluta kjarasamninganna er eðlilegt að þau segi samningunum lausum,“ segir í samþykkt samninganefndar AFLs. Flóabandalagsfélögin á suðvesturhorninu, Samiðn, VM o.fl. hafa á hinn bóginn lýst yfir að fresta eigi endurskoðun á launalið fram á sumar.

Öllum er ljóst að forsendur samninga eru brostnar fyrir margt löngu og atvinnulífið er í mjög þröngri stöðu. Fyrir nokkru settu forsvarsmenn SA fram hugmyndir um frestun allra launahækkana til hausts þegar betur verður séð hvernig efnahagslægðin þróast eða jafnvel að fresta launahækkunum fram í byrjun næsta árs.

Leita að skynsemi og friði

„Við óskuðum eftir því við Alþýðusambandið að fá sveigjanleika um hvernig við getum efnt samninginn og settum fram ýmsar hugmyndir,“ segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, og vísar til mikilla erfiðleika og óvissu í atvinnulífinu. SA líst þó ágætlega á þær hugmyndir forystu ASÍ að fresta endurskoðun samninganna til 1. júlí.

Mörg fyrirtækin geta illa eða alls ekki staðið undir launahækkunum um næstu mánaðamót. ,,Sumir hafa verið að lækka laun og aðrir hafa haldið launum óbreyttum. Ég hygg að margir myndu þá annaðhvort lækka laun á móti hækkununum eða gera einhverjar aðrar ráðstafanir. Einhverjir myndu þurfa að segja fleiri upp en þeir ætluðu. Þarna er um miklar taxtahækkanir að ræða. Samningarnir voru gerðir við önnur skilyrði en eru uppi í dag,“ segir Vilhjálmur og bætir við: „Við höfum bara verið að leita að skynsemi og friði.“

13.500 króna hækkun

Almennar hækkanir launa sem eiga að öllu óbreyttu að greiðast út um næstu mánaðamót eru upp á 3,5% hjá þeim launþegum sem ekki hafa notið launaskriðs eða annarra launahækkana frá febrúar í fyrra. Einnig er um samið að lágmarkstaxtar hækki sérstaklega.

Þannig hækki mánaðarlaunataxtar verkafólks um 13.500 krónur og iðnaðarmanna um 17.500 krónur.

Verkalýðsfélag Akraness heldur því fram að fjölmörg félög vilji ekki fresta endurskoðun samninga. „Það er ljóst að á fundinum á mánudaginn verður tekist á um þetta atriði, en afstaða áðurnefndra félaga er skýr, það er að atvinnurekendur standi við þá samninga sem við þá hafa verið gerðir enda er ekki hægt að þeir sem eru með hvað lægstu launin verði af þeim hækkunum sem um hefur verið samið,“ segir í frétt frá félaginu.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Velta á fasteignamarkaði frá janúar til febrúar í ár var 46,335 milljarðar kr. en var ...

Lántakendur varaðir við

05:30 Grípi Seðlabankinn til þess ráðs að hækka vexti frekar gæti það haft veruleg áhrif á mánaðarlega greiðslubyrði af óverðtryggðum fasteignalánum. Meira »
Rússnesk skip umskipa afla í Hafnarfjarðarhöfn eftir veiðar á Reykjaneshrygg.

Athugasemdir við Rússa

05:30 Íslensk stjórnvöld hafa komið alvarlegum athugasemdum á framfæri við sendiherra Rússlands á Íslandi vegna karfaveiða Rússa á Reykjaneshrygg. Meira »

Flugfarþegi lak plötu á netið

Umslag plötunnar Valtari.
05:30 Áttunda og nýjasta plata Sigur Rósar, Valtari , kom út í gær en hún er fyrsta breiðskífa sveitarinnar frá því Með suð í eyrum við spilum endalaust kom út fyrir fjórum árum. Meira »

Störfum í bönkum fækkað um 2.000

Friðbert Traustason. Formaður Sambands íslenskra bankamanna .
05:30 Störfum hjá fjármálafyrirtækjum hefur fækkað um 2.000 frá því vorið 2008. Útibúum bankanna hefur fækkað um helming á sama tíma. „Þetta hefur verið hreint hörmungarástand,“ segir Friðbert Traustason, formaður Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Meira »

Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi

04:53 Sunnan- og suðvestanátt verður á landinu í dag, yfirleitt 5-15 m/s, hvassast norðan- og vestanlands. Rigning við Breiðafjörð og á Vestfjörðum, léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi, en skýjað og súld með köflum syðra. Meira »

Kostnaður við komu 4 milljónir

Wen Jiabao og Jóhanna Sigurðardóttir á Geysi
05:30 Ekki hefur verið sótt um aukafjárveitingu vegna kostnaðar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu við heimsókn kínverska forsætisráðherrans Wens Jiabaos. Meira »

Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi

Með batnandi veðri gefst færi til útileikja.
05:30 Vel lítur út með veður víðast hvar á landinu um hvítasunnuhelgina. Reyndar má búast við að rigni á Vestfjörðum í dag, en svo stytti upp og víða verði sólríkt. Hitastig hefur stigið verulega síðustu daga og í dag er búist við að hiti klifri yfir 20 stig á norðaustanverðu landinu. Meira »

Segir stuðning við Kanadadollar

Kanadadollari. Úr myndasafni.
Í gær, 22:15 „Þetta er rætt í alvöru á Íslandi. Efnahagsráðherrann fór til Kanada fyrir sex vikum og fundaði með kanadíska seðlabankanum og með þingmönnum og að ég tel fjármálaráðuneytinu líka. Hann kom síðan aftur til Íslands og sagði opinberlega að þetta væri möguleiki sem væri ekki hægt að útiloka.“ Meira »

Brotist inn meðan íbúar skruppu frá

Í gær, 21:09 Tilkynnt var um innbrot í heimahús í Grafarvogi klukkan sjö í kvöld og söknuðu húsráðendur sjónvarps og ýmissa raftækja. Þeir brugðu sér af bæ í rúma klukkustund og þegar þeir komu heim var búið að brjóta rúðu og komust þjófarnir þannig inn. Meira »

Meintar falsanir til lögreglunnar

Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 19:39 Tekin var ákvörðun um það í dag af yfirkjörstjórnum í Reykjavík að vísa meintum fölsunum á undirskriftum á meðmælendalistum Ástþórs Magnússonar, forsetaframbjóðanda, til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Stefnan áframhaldandi lágt gengi

Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður.
Í gær, 20:11 „Það er alveg ljóst mál að þetta kosningaplagg ríkisstjórnarinnar sem kallað hefur verið framkvæmdaáætlun er byggð á þeirri forsendu að gengi íslensku krónunnar haldist álíka veikt og það er í dag,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is. Meira »

Tryggja að allir komist heilir heim

Í gær, 18:59 Haldið verður úti auknu umferðareftirliti í sumar á Vesturlandsvegi, Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut af hálfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra. Meira »

Gæsluvarðhaldið staðfest

Í gær, 18:29 Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir tveimur karlmönnum sem grunaðir eru um að hafa valdið dauða samfanga síns í fangelsinu á Litla-Hrauni fyrir rúmri viku. Héraðsdómur hafði áður úrskurðað mennina í gæsluvarðhald til 13. júní. Meira »

Húsbíll fauk af vegi

Í gær, 18:09 Húsbíll fauk í Fljótum, skammt frá Ketilási um hádegisbilið í dag. Tvennt var í bílnum og voru þau flutt á heilsugæsluna á Siglufirði til aðhlynningar. Meira »

Yfirheyrslur héldu áfram í dag

Fangelsið á Litla-Hrauni.
Í gær, 18:00 Yfirheyrslur vegna láts fanga á Litla-Hrauni, sem talið er hafa borið að með sviplegum hætti, héldu áfram í dag og var nokkur fjöldi vitna yfirheyrður, þar á meðal fólk sem tengist fangelsinu. Meira »

Fundur Háskólalestarinnar fellur niður

Frá Ísafirði. Úr myndasafni.
Í gær, 18:22 Fram kemur í tilkynningu frá Háskólalestinni að fyrirlestur um forsetaframboðið sem fara átti fram á Ísafirði í kvöld klukkan 20:00 falli niður vegna þess að öllu flugi frá Reykjavíkur til Ísafjarðar í dag hafi verið aflýst. Meira »

Ólafur mælist með mest fylgi

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.
Í gær, 18:09 Mikill viðsnúningur hefur orðið í fylgi við forsetaframbjóðendurna Ólaf Ragnar Grímsson og Þóru Arnórsdóttur ef marka niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Capacent Gallup sem greint var frá í fréttum Ríkisútvarpsins. Meira »

Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð

Í gær, 17:49 Talsvert magn af fíkniefnum fannst við húsleit lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í kjallaraíbúð í miðborginni í gær.   Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Fallegur Snyrti og Nuddbekkur-Verð : 69.000 Sterkur - Ódýr- Fallegur. 5 ára ábyrgð
www.simnet.is/eirikurs/nuddbord.html S: 8626194. Borð með baki til að hækka og ...
GSM öryggis- hússtjórnunar- og vöktunark
Til sölu GSM öryggis- hússtjórnunar- og vöktunarkerfi fyrir, sumarhús, heimili, ...
HARÐVIÐUR TIL HÚSBYGGINGA
Harðviður til húsabygginga  Sjá nánar á...
Rúta
Rúta Iveco 20 farþega til sölu. Nýskráð 11/07 ekin 105.000 km. Upplýsingar í ...
 
Sýslumaðurinn í reykjavík - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
12836 fellahverfi - útboð

út­boð Reykja­víkur­bor­g Innka­upa­...
Samkoma - hjálpræðisherinn
Félagsstarf
Kjallarinn, fimmtudag, kl.20 Ung...
Sýslumaðurinn í vík - framhald uppboðs

Uppboð www.naudungarsolur.is Framhald up...