Tók mál formanns stjórnarnefndar upp í ríkisstjórn
Jóhanna Sigurðarsdóttir, forsætisráðherra, sagðist á Alþingi í dag hafa tekið það einu sinni eða tvisvar upp í ríkisstjórn, að fyrrverandi félagsmálaráðherra skipaði fyrrverandi aðstoðarmann formann stjórnarnefndar um málefni fatlaðra til fjögurra ára skömmu fyrir þingkosningarnar 2007.
Jóhanna skipti um formann stjórnarnefndarinnar eftir að hún tók við embætti félagsmálaráðherra voruð 2007. Maðurinn fór í mál og krafðist bóta á þeirri forsendu að félagsmálaráðuneytið hefði ekki farið að lögum þegar honum var vikið úr embættinu. Héraðsdómur Reykjavíkur féllst á þau rök og dæmdi ríkið í desember sl. til að greiða manninum 500 þúsund krónur í bætur.
Ólöf Nordal, þingmaður Sjálfstæðisflokks, tók málið upp á Alþingi í dag og spurði hvernig Jóhanna ætlaði að bregðast við þessum dómi. Jóhanna sagði að þegar um stjórnarskipti væri að ræða væri mjög algengt að óskað væri eftir því að trúnaðarmenn eldri ríkisstjórna væru beðnir að víkja fyrir trúnaðarmönnum nýrra ráðherra.
Jóhanna sagði, að það væri mjög sérkennilegt að viðkomandi maður hefði ekki orðið við því að víkja úr stjórnarnefndinni þegar eftir því var óskað. Sagðist Jóhanna hafa tekið málið upp í ríkisstjórn og þar hefðu menn verið yfir sig
hneykslaðir. Þá sagði Jóhanna að það væri rangt, að maðurinn hefði ekki notið andmælaréttar vegna þess að hún hefði boðið honum að koma á sinn fund en hann ekki þáð. „Dómurinn er fallinn og ég
viðurkenni hann en að mörgu leyti var mjög sérkennilega staðið að þessu af aðstoðarmanni fyrrverandi félagsmálaráðherra," sagði Jóhanna.
Ólöf sagði að málið snérist greinilega um að maðurinn hefði verið framsóknarmaður. Hún væri ekki að gagnrýna að ráðherrann hefði viljað skipta um menn en það yrði að viðurkennast, að stjórnsýsla í félagsmálaráðuneytinu hefði ekki verið til fyrirmyndar í þessu máli.
Innlent »
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 11. desember 2008, Innlent Var vikið ólöglega úr stjórnarnefnd
- Þriðjudagur, 6. maí 2008, Innlent Svipuð útlán Íbúðalánasjóðs og í fyrra
- Þriðjudagur, 5. janúar 2010, Innlent Undirbúa þjóðaratkvæðagreiðslu
- Mánudagur, 16. febrúar 2009, Innlent Segir Jóhanna ósatt um trúnaðinn?
- Föstudagur, 23. maí 2008, Innlent Jóhanna: Nú reynir á hvort bönkum sé treystandi
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli



































