Áform endurskoðuð
Suðurlandsvegur
Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is
Á áætlunum er gert ráð fyrir tvöföldun Suðurlandsvegar frá Reykjavík og austur fyrir Selfoss. Fyrir liggur sú stefna að byrjað verði á kaflanum frá Litlu kaffistofunni að Hveragerði. Sú ákvörðun var tekin vegna þess að undirbúningur var þar lengra kominn en á kaflanum milli Hveragerðis og Selfoss. Miðað var við að framkvæmdin yrði unnin í einkaframkvæmd og hægt yrði að byrja snemma á þessu ári.
Þessi mál eru nú öll til endurskoðunar, að sögn Kristjáns L. Möller samgönguráðherra.
Ákvarðanir um tvöföldun vegarins um Hellisheiði voru teknar eftir langvarandi umræður um það hvort nauðsynlegt væri að gera tvær akreinar í hvora átt eða hvort það myndi duga að gera eina aukaakrein, svokallaðan 2+1-veg. Mikill þrýstingur var á tvöföldun frá heimamönnum og öðrum vegfarendum.
Kristján Möller segir að mikill munur sé á kostnaði við tvær akreinar í báðar áttir og á 2+1-vegi. „Það er hægt að gera 2+1-veg frá Hólmsá til Hveragerðis fyrir 3,4 milljarða króna á tveimur árum. Við myndum ná miklu lengra með því mótinu og auka umferðaröryggi mikið með því að aðskilja akstursstefnur. Þessu væri hægt að áfangaskipta og byrja með útboð fljótlega á þessu ári,“ segir Kristján og tekur fram að vegurinn yrði hálfum öðrum metra breiðari en núverandi 2+1-vegur í Svínahrauni.
Samgönguráðherra tekur fram að einnig komi til greina að halda sig við fyrri áform sem væru þó mun dýrari. Vegna óvissunnar í efnahagsmálum væri erfitt að sjá fyrir fjárveitingar á næstu árum. „Kannski má segja að 2+2-vegurinn hafi verið svolítið 2007-legur,“ segir Kristján.
„Hér hefur íbúum fjölgað mikið og fólk sækir vinnu vestur yfir heiði. Umferðin er ofboðsleg og álagspunktarnir meiri en nokkru sinni. Við höfum barist fyrir tvöföldun vegarins og það hefur enn ekkert komið fram sem sýnir okkur að dregið hafi úr nauðsyn þess,“ segir Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri í Hveragerði.
Nefnir hún bæði mikilvægi þess að auka flutningsgetu og öryggi vegfarenda. Hún telur aftur á móti koma til greina, ef draga þurfi úr kostnaði, að fresta hluta af mislægum gatnamótum og notast við tvöföld hringtorg fyrst í stað.
Vegurinn frá Hveragerði til Selfoss er talinn einn hættulegasti kafli landsins. Hefur rannsóknarnefnd umferðarslysa meðal annars gefið út varnaðarskýrslu vegna fjölda alvarlegra slysa þar. Kristján Möller segir engin áform um að hætta við tvöföldun þessa kafla Suðurlandsvegar enda umferð þar miklu meiri. Staða skipulagsmála og undirbúnings hafi ráðið því að ákveðið var að ráðast fyrst í Hellisheiðina.Áætlað er að tvöföldun þessa kafla kosti um 10 milljarða króna. Þar af er kostnaður við nýja brú á Ölfusá, ofan við byggðina á Selfossi, talinn nema 4,6 milljörðum króna. Er þá miðað við tvöfalda brú í báðar áttir. Kristján segir að við endurskoðun framkvæmdarinnar verði sá kostur kannaður að byggja brú fyrir tvær akreinar, í stað fjögurra.





































